Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 20
FRÉTTIR Innlent20 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022 „Viti menn! Hárlosið minnkaði áður en flaskan tæmdist“. - Tinna Miljevic RENEW 1 msk á dag fyrir hár, húð og neglur LAUGAVEGI 24 - REYKJAVÍK - S. 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - AKUREYRI - S. 462 4646 Á alþjóðlegum minningardegi fórnarlamba umferðarslysa á morgun, sunnudag, verður sjónum sérstaklega beint að þeim sem verða vegna misgánings, skorts á athygli eða annarra ástæðna valdir að því að ein- hver slasast eða lætur lífið. „Ekki má gleyma þessu fólki sem stundum þarf vegna slysanna að glíma við mikla sorg, sjálfsásakanir og vanlíðan,“ segir Einar Magnús Magnússon hjá Samgöngustofu. Hann er sér- fræðingur í öryggis- og fræðsludeild stofnunarinnar og undirbýr nú dagskrá sem efnt er til á minn- ingardeginum. Athöfn verður í eftirmiðdaginn við þyrlupallinn við bráðadeild Landspítalans í Fossvogi í Reykjavík. Dæma sig til refsingar „Um dagana hef ég oft rætt við þau sem hafa valdið banaslysum í umferðinni og sársaukinn er oft mikill. Oft kýs þetta fólk að lifa í skugganum, þjakað af sektarkennd. Dæmir sig sjálft til ævilangrar refsingar. Því má spyrja hvort ekki þurfti að taka betur utan um þau sem lenda í þeim hörmungum að verða völd að banaslysi. Jafnvel að slíkt sé virkari hluti af þeim viðbrögðum og aðgerðum sem fylgja umferðarslysum,“ segir Einar Magnús. Auk Samgöngustofu standa innviðaráðuneytið, lögregla, Slysavarnafélagið Landsbjörg, Sjálfsbjörg – landssamband hreyfihamlaðra og Vegagerðin að alþjóðlega minningardeginum. Sá var settur á almanakið fyrir tilstuðlan Sameinuðu þjóðanna og hefur verið haldinn á Íslandi frá árinu 2011. Sérstök málefni tengd umferðarslysum eru kynnt hverju sinni af þessu tilefni. Í gær, 18. nóvember, voru banaslys í umferð á Íslandi á árinu orðin 6 og 92 hafa slasast alvarlega. Á síðasta ári voru banaslysin 6 og 101 slasaðist alvarlega. Tölurnar eru sannarlega háar. Þó verður að halda til haga að slysunum hefur fækkað mikið í seinni tíð. Árið 2000 létust 32 í umferðinni, þau voru 29 árið 2002 og 31 árið 2006. Á seinni árum hafa tölur þessari verið talsvert lægri, hvort heldur er litið til fjölda látinna eða slasaðra. Betri vegir og öruggari bílar Öruggari bílar, betri vegir, öflugri löggæsla, bætt ökunám og skynsamlegri akstur. Einar Magnús Magnússon segir að allir þessir þættir hafi dregið úr fjölda umferðarslysa á síðustu árum, en sömuleiðis hafi aukin áhersla á fræðslu og forvarnastarf skilað sér. Þá séu vegfarendur orðnir meðvitaðri um hætturnar en áður og ef til vill betri í sínu hlutverki. „Viðhorfin hafa líka breyst. Áður fyrr heyrðist stundum í mönnum sem sögðust fara létt með að keyra milli Reykjavíkur og Akureyrar á fjórum klukkustundum. Ég held að enginn hljómgrunnur sé lengur fyrir slíkum sögum,“ segir Einar Magnús. Inntak og boðskapur alþjóðadags fórnarlamba umferðarslysa hefur meðal annars verið að þakka og sýna virðingu þeim sem bjargir veita í slysum; lögreglu, læknum hjúkrunarfólki, sjúkraflutningsliði, þyrluáhöfnum, björgunarsveitum og fleiri slíkum. Einnig hefur tæki- færið verið nýtt með degi þessum til að skapa umræðu um umferðarslys almennt. „Að verða öðrum að bana er án efa það versta sem nokkur getur lent í. Þetta er oft gleymdur hópur fólks sem þarf að fá hjálp og stuðning og þess vegna beinum við sjónum okkur að þessu atriði nú,“ segir Einar Magnús. Sjálfsmynd brotin Við athöfnina á morgun, sunnu- dag, flytur kona ávarp sem lenti því að drengur hjóp í veg fyrir bíl hennar og lést. Þetta gerðist í Vest- mannaeyjum fyrir þrjátíu árum og hefur æ síðan litað líf hennar. „Ég tel að þau sem völd verða að slysum séu á stundum hreinlega ekki í fær um að leita eftir hjálpinni; svo brotin getur sjálfsmynd fólksins verið og líðan þess slæm. Ég held að þess vegna skipti máli að átt sé frumkvæði að því að taka utan um þetta fólk. Áfallastreituröskun er mjög alvarleg og því verður að veita þessu fólki, rétt eins og öðrum sem slysinu tengjast, stuðning. Skoða þarf hvort eitthvað vanti upp á viðbrögð okkar hvað þetta varðar og hvort bæta þurfi úr því,“ segir Einar Magnús. lAlþjóðlegurminningardagur umferðarslysa er ámorgunlAthöfn í Fossvogil Árangur hefur náðst og slysum fækkaðlÞau semvalda slysi eru oft í skugganumlFólk þarf á stuðningi að halda Gleymdur hópur fái hjálp og stuðning Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Morgunblaðið/Sigurður Bogi VegurinnMörg slys í umferð hafa í tímans rás orðið milli Reykjavíkur og Selfoss. Sjúkraflutningamenn, lögreglu- lið og björgunarsveitarfólk hér á minningarstund við Kögunarhól nærri Ingólfsfjalli haustið 2019. FRÆÐSLAOG UMFJÖLLUN HJÁSAMGÖNGUSTOFU Skúturnar eru í skoðun Verkefni Samgöngustofu á sviði umferðaröryggis eru fjölbreytt. Hamra þarf járnið með umfjöllun, fræðslu og forvirkum aðgerðum og til þess eru ýmsar leiðir færar. Um þessar mundir er sjónum meðal annars beint að óvörðum vegfarendum. Til þess hóps heyrir til að mynda fólk sem fer um á rafknúnum hlaupahjólum, sem gjarnan eru nefndar skútur. „Við þurfum að gefa slysum sem tengjast slíkum farartækj- um betri gaum. Sérstaklega er umhugsunarvert hve mörg þessara slysa verða að nóttu til um helgar og þá í tengslum við ölvun. Umhugsunarvert er að í nýlegri viðhorfskönnun sem Sam- göngustofa lét gera kom fram að mörgum fannst í lagi að fara um á rafskútu og vera undir áhrifum. Þessi viðhorf þurfa að breytast því við sjáum að afleiðingarnar eru nú þegar mjög alvarlegar,” segir Einar Magnús Magnússon. Einar Magnús Magnússon Nú finnur þú það sem þú leitar að á FINNA.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.