Morgunblaðið - 19.11.2022, Blaðsíða 32
32 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
Skoðið fleiri innréttingar á
innlifun.is
Suðurlandsbraut 26 Sími 587 2700
Opið 11-18 virka daga, 11-16 laugardaga. innlifun.is
Samtökin 22 – Hags-
munasamtök samkyn-
hneigðra hafa verið að-
eins í umræðunni
undanfarna daga. Ég
er talsmaður þessarar
tiltölulega nýju gras-
rótarhreyfingar. Við
erum hópur samkyn-
hneigðra sem hefur
haft áhyggjur af þeim
breytingum sem hreyf-
ingin okkar hefur tek-
ið.
Í síðustu viku skiluðum við inn
umsögn til Alþingis varðandi svo-
kallað „bælingarmeðferðarfrum-
varp“ Hönnu Katrínar Friðriksson
úr Viðreisn. Með henni flytja frum-
varpið þingmenn úr öðrum stjórn-
málaflokkum.
Umsögnin okkar er á þann veg að
við getum ekki stutt frumvarpið eins
og það er lagt fram.
Ástæðan fyrir því er einfaldlega
sú, að frumvarpið fyrir það fyrsta er
augljóslega ekki smíðað með þarfir
samkynhneigðra að leiðarljósi – þó
það sé neytendavænna að selja þing-
heimi það svoleiðis.
Frumvarpinu er ætlað að gera
svokallaðar „bælingarmeðferðir“ er
varða kynhneigð, kynvitund og
kyntjáningu fólks refsiverðar, séu
þær framkvæmdar með „nauðung,
blekkingum eða hótunum“. Refsi-
ramminn er þrjú ár í fangelsi, en
fimm ár ef um er að ræða barn
yngra en 18 ára.
„Hver sem framkvæmir, hvetur
með beinum eða óbeinum hætti til
eða hefur þegið fé vegna meðferðar
sem greinir í 1. mgr. skal sæta sekt-
um eða fangelsi allt að 2 árum.“
Í greinargerðinni sem fylgir
frumvarpinu er látið líta út eins og
þessi lög séu smíðuð til þess að
vernda samkynhneigða sérstaklega
og ýmsar staðhæfingar án rök-
studdra heimilda þar lagðar fram,
eins og t.d. sjálfsmorðstíðni og tíðni
tilrauna til sjálfsvíga meðal samkyn-
hneigðra.
Hanna Katrín sagði í fram-
söguræðu sinni, er hún lagði frum-
varpið fram, að þetta
væri glufa í hegning-
arlögunum sem þyrfti
að loka. Það er einfald-
lega rangt, því það er
alltaf ólöglegt að beita
blekkingum, hótunum
og nauðung við fólk.
Lögin eru einfaldlega
þannig að þau vernda
okkur öll – jafnt. Einn-
ig vildi hún að málið
fengi eins hraða með-
ferð og mögulegt væri.
Þ.e. beint í nefnd, úr
nefnd, umræða, lög. Svo mikill var
æsingurinn að ekki var beðið um
umsagnir við frumvarpið fyrr en eft-
ir að umsögn okkar var skilað við lok
umsagnarfrestsins.
Það var eftirtektarvert að þessi
frumvörp byrjuðu að „dúkka upp“ á
þjóðþingum Vesturlanda frá miðju
síðasta ári og í byrjun þessa. Það er
tiltölulega augljóst að um samstillt
átak öfgasinnaðara trans aktívista
sé að ræða. Það er því augljóst að
Hanna Katrín er að ganga erinda
þess hóps. Hver og einn þarf ekki að
leita víðar en á Twitter til þess að
skoða samskipti hennar við þann
hóp.
Í frumvarpinu er fjallað um að
banna eigi að svokallaðar bæling-
armeðferðir er varða kynhneigð,
kynvitund og kyntjáningu. En hvað
þýða þessi orð? Hvernig eru þau
skilgreind í lögum? Hvað telst til
blekkinga?
Samtökin ’78 skilgreina t.d. 14
kynhneigðir og fleiri tugi kynja.
Hvað er frumvarpinu eiginlega ætl-
að að banna?
Miðað við viðbrögðin við umsögn
okkar hjá 22, og svo umsögnum fag-
aðila sem lýsa áhyggjum sínum,
meðalhófs trans aðgerðasinna eins
og Buck Angel og svo t.d. frá Ritchie
Herron sem var blekktur í kynleið-
réttingarferli, þá er ljóst að mark-
miðið var ekki að hjálpa samkyn-
hneigðum.
Það er okkar upplýsta skoðun að
hér átti að greiða götur kynjafræð-
inga og trans öfgasinna til að gera
ólögráða börn að lyfjaþrælum fyrir
lífstíð.
Þetta eru hörð orð, hugsa eflaust
sumir. Við erum sammála því. Þetta
eru hörð orð.
Það er nokkuð augljóst að hérna
eru hagsmunir ákveðinnar hug-
myndafræði sett ofar hagsmunum
barna og ungmenna. Viðbrögðin við
umsögnunum eru svo harkaleg og
öfgafull.
Þriðjudaginn 15. nóvember sagði
framkvæmdastjóri Samtakanna ’78
og varaþingmaður VG, Daníel E.
Arnarson, eftirfarandi úr ræðustól
Alþingis: „Haturssamtök gegn trans
fólki hafa í fyrsta sinn skilað inn um-
sögn til fastanefndar Alþingis. Þar
er tilveruréttur trans fólks ekki ein-
ungis dreginn í efa heldur er sagt
beinum orðum að trans fólk sé
hreinlega ekki til og samfélagið búi
til trans fólk með ólöglegum skurð-
aðgerðum og lyfjanotkun. Allt sam-
an hið mesta bull. Samtök tengd
þeim samtökum sem um ræðir eru á
lista erlendis yfir opinber haturs-
samtök og deila þar sæti með nýnas-
istum og öðrum öfgasamtökum.“
Ég hef margoft beðið Daníel að
tala við okkur. Óháðir aðilar úti í bæ
hafa einnig boðist til að leyfa okkur
að takast á í umræðum á opinberum
vettvangi. Við erum einfaldlega
hunsuð. Fjölbreytileiki skoðana er
ekki á dagskrá hjá þessari „ný-
trúuðu“ hinsegin hreyfingu á Suður-
götunni, þó hún sé að mestu rekin
með opinberu fé.
Ummælin sem Daníel lét falla
hérna eru forkastanleg. Fyrir það
fyrsta, þá eru þau röng. Fyrir það
annað, þá er hann vanhæfur þar sem
hagsmunaáreksturinn er augljós.
Hann er eini launaði starfsmaður
Samtakanna ’78 í fullu starfi og það
kemur ekki fram í hagsmunaskrá al-
þingismanna. Þarna er þinghelginni
misbeitt í algeru tilfinningauppnámi
og í blindum nýtrúuðum aktívisma
sem rænir hann dómgreindinni.
Við vísum þessum ásökunum á
bug og við hvetjum til umræðu.
Ekki aðeins á meðal samkyn-
hneigðra og trans fólks. Heldur líka
í samfélaginu öllu.
Kynjafræðingar stálu hreyfing-
unni okkar og eru með hana í gísl-
ingu.
Þess vegna erum við farin okkar
eigin leið.
Öfgafull viðbrögð á Alþingi
Eldur Deville » Öfgafull viðbrögð við
umsögnum um
frumvarp til breytinga á
hegningarlögum er
varða svokallaðar bæl-
ingarmeðferðir.
Eldur Deville
Höfundur er talsmaður Samtakanna
22 – Hagsmunasamtaka samkyn-
hneigðra.
Dómur Hæsta-
réttar Íslands féll
ekki Gráa hernum í
vil. Eftir þessa nið-
urstöðu hljóta marg-
ir að velta því fyrir
sér hverra hagsmuna
nokkrir af for-
ystumönnum Lands-
sambands eldri borg-
ara voru að berjast
fyrir. Var það virki-
lega meining þeirra
að sækja 25 milljónir
króna til þeirra sem
hæstu greiðslurnar fá
úr lífeyrissjóði á
meðan þeir sem hafa
eingöngu tekjur frá
Tryggingastofnun
ríkisins hefðu ekki
fengið eina einustu
krónu ef Grái herinn
hefði unnið málið við
Tryggingastofnun og
ríkissjóð? Finnst fólki þetta
virkilega réttlát barátta?
Dr. Haukur Arnþórsson skrifar
athyglisverða grein í Morgun-
blaðið þar sem hann vekur m.a.
athygli á að þeir sem nú hafa 600
þús. kr. eða meira hefðu fengið
25 milljónir króna fyrir skatt.
Nú liggur niðurstaða Hæsta-
réttar fyrir og vonandi læra for-
ystumenn eldri borgara sína
lexíu.
Tökum upp alvörubaráttu
til að bæta kjörin
Þó að um 30% þeirra eldri
borgara sem fá greiðslur frá líf-
eyrissjóði hafi það góðar tekjur
að þeir fá ekki neinar greiðslur
frá Tryggingastofnun hefur samt
um helmingur eldri borgara lítil
réttindi í sínum lífeyrissjóði. Má
þar t.d. nefna margar konur sem
ekki voru á vinnumarkaði og
unnu við að sinna heimilis-
störfum. Við þurfum að vinna að
því að bæta kjör þessa fólks. Það
gengur ekki að skerðingar frá
Tryggingastofnun skuli byrja
strax eftir 25 þúsund krónur frá
lífeyrissjóði. Sú upphæð hefur
verið óbreytt frá 2017. Það verð-
ur að draga úr skerðingum og
hækka frítekjumarkið. Grái her-
inn og forysta Landssambands
eldri borgara eiga að taka upp
baráttu fyrir þennan hóp eldri
borgara.
Ég hef áður sagt
það og skrifað að
þeir sem hafa hæstu
greiðslurnar úr líf-
eyrissjóðum þurfa
ekki að fá viðbót-
argreiðslur upp á
hundruð þúsunda
hvern mánuð frá
Tryggingastofnun
ríkisins.
Skýr skilaboð frá
Landsfundi Sjálf-
stæðisflokksins til
forystunnar
Á fjölmennum og
glæsilegum Lands-
fundi Sjálfstæð-
isflokksins var eft-
irfarandi ályktun
velferðarnefndar um
málefni eldri borgara
samþykkt: „Málefni
aldraðra og öryrkja
verði aðgreind form-
lega sem tveir að-
skildir málaflokkar.
Þeir öryrkjar sem verða 67 ára
haldi réttindum sínum við þau
aldursskil.
Endurskoða þarf lífeyrissjóða-
og almannatryggingakerfi m.t.t.
hagsmuna eldra fólks. Sérstök
lífeyrisuppbót verði tekin upp til
þeirra sem hafa áunnið sér tak-
mörkuð lífeyrisréttindi og viðbót-
argreiðsla skerðist ekki vegna
tekna. Starfslok verði sveigjanleg
og fólki gert kleift að starfa í
fullu starfi eða hlutastarfi miðað
við áhuga og færni en ekki ein-
göngu miðað við aldur og tíma-
sett starfslok. Margir hópar ljúka
ekki starfsævinni með rík lífeyr-
isréttindi og auka þarf svigrúm
til atvinnuþátttöku án umtals-
verðra skerðinga. Skerðing vegna
greiðslna frá Tryggingastofnun
til eldri borgara er í dag 45% og
ber að lækka. Draga þarf úr
skerðingu ellilífeyris vegna líf-
eyristekna og annarra tekna,
hvaðan sem þær koma. Sama
gildir um eftirlaunagreiðslur
Tryggingastofnunar, þær hafa
ekki fylgt hækkun launavísitölu.“
Á Landsfundi Sjálfstæðis-
flokksins var mikið rætt um að
flokkurinn þyrfti að ná til baka
fyrra fylgi. Stórt atriði til að það
markmið náist er að hlusta á
eldra fólkið og bæta kjör þeirra
sem þess þurfa.
Drögum úr skerð-
ingum á lægstu
og meðallaunum
Sigurður Jónsson
Sigurður Jónsson
» Stórt atriði
til þess að ná
fyrra fylgi Sjálf-
stæðisflokksins
er að hlusta á
eldra fólkið og
bæta kjör þeirra
sem þess þurfa.
Höfundur er fv. bæjarstjóri í Garði.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?
Móttaka að-
sendra greina
Morgunblaðið er vettvangur lif-
andi umræðu í landinu og birtir
aðsendar greinar alla útgáfudaga.
Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk-
un og tryggir öryggi í samskiptum
milli starfsfólks Morgunblaðsins
og höfunda. Morgunblaðið birtir
ekki greinar sem einnig eru send-
ar á aðra miðla.
Kerfið er aðgengilegt undir
Morgunblaðslógóinu efst í hægra
horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt
er á lógóið birtist felligluggi þar
sem liðurinn „Senda inn grein“ er
valinn.
Í fyrsta skipti sem inn-
sendikerfið er notað þarf notand-
inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít-
arlegar leiðbeiningar fylgja hverju
þrepi í skráningarferlinu. Eftir að
viðkomandi hefur skráð sig sem
notanda í kerfið er nóg að slá inn
kennitölu notanda og lykilorð til
að opna svæðið.