Morgunblaðið - 19.11.2022, Side 14
FRÉTTIR
Innlent14
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
Garðatorg 6 | Kringlunni | sími 551 5021 | vefverslun – aprilskor.is
Apríl hefur nú einnig
opnað í Kringlunni
2. hæð beint á móti World Class.
Verið velkomin
30 ára afmæli Kvikmyndaskóla Íslands fagnað í gær
Styrkja
tengsl við
skólann
Kvikmyndaskóli Íslands fagnaði
30 ára afmæli sínu í gær í hús-
næði skólans við Suðurlands-
braut. Rektor skólans, Börkur
Gunnarsson, var á meðal þeirra
sem fluttu ræðu. „Þetta var
rosalega gaman,“ segir hann og
bætir við að gaman hafi verið að
sjá gamla nemendur og kennara
mæta til að styrkja tengslin
við sinn gamla skóla. Frá árinu
2004 hefur skólinn útskrifað
um 600 nemendur. Á myndinni
hér til hliðar má sjá Börk, Odd-
nýju Sen, Hrafnkel Stefánsson,
Baldvin Albertsson og Guðna
Th. Jóhannesson forseta.
Guðni flutti einnig ræðu og
segir Börkur að gaman hafi
verið að Guðni var viðstaddur,
meðal annars þar sem forsetinn
hafi svo góða nærveru. „Hann
hélt öfluga ræðu þar sem hann
hvatti okkur áfram og skoðaði
síðan skólann og mætti á gjörn-
ingasýningu hjá nemendum.
Síðan skar hann auðvitað fyrstu
sneiðina af kökunni,“ segir
Börkur. Morgunblaðið/Eggert
Faxaflóahafnir hafa ákveðið að taka upp
einkunnakerfi fyrir skemmtiferðaskip
með ívilnun eða álögum, allt eftir því
hvaða áhrif skipin hafa á umhverfið.
Kerfið nefnist Environmental Port
Index (EPI) og á upptök sín í Noregi.
Höfnin í Björgvin, Det Norske Veritas
(DNV) ásamt helstu skemmtiferða-
skipahöfnum Noregs tóku sig saman
og þróuðu nýtt umhverfiseinkunnakerfi
sem tekur sérstaklega á „umhverfis-
hegðun“ skipa á hafnarsvæðum. Faxa-
flóahafnir eru fyrsta fyrirtækið utan
Noregs sem tekur upp EPI-einkunna-
kerfið og tengir það við sína gjaldskrá
fyrir árið 2023, upplýsir Sigurður Jökull
Ólafsson, markaðsstjóri Faxaflóahafna.
Við innleiðinguna var stuðst við fyr-
irkomulag hjá höfninni í Stavanger,
en með vægari álögur, þar sem Faxa-
flóahafnir eru ekki enn komnar með
landtengingar rafmagns fyrir stærri
skemmtiferðaskip. „EPI er verkfæri
sem gerir höfnum kleift að skilgreina
umhverfisspor skemmtiferðaskipa
meðan á viðdvöl stendur. Markmiðið
er að koma á fjárhagslegu hvatakerfi til
umhverfisvænni og sjálfbærari reksturs
skemmtiferðaskipa og draga þannig úr
ávinningi við að koma til hafna Faxa-
flóahafna með mengandi skip,“ segir
Sigurður.
Skemmtiferðaskipum ber að skila
inn gögnum til mats á umhverfis-
frammistöðu í höfn eigi síðar en 72
klukkustundum eftir brottför. Á grunni
þeirra gagna færhvert skipEPI-einkunn
milli 0 (verst) og 100 (best).
Landtenging á Faxagarði
Faxaflóahafnir stefna að því að næsta
vor verði landtenging rafmagns fyrir
minni skemmtiferðaskip tilbúin á Faxa-
garði í Gömlu höfninni. Sú tenging verð-
ur eitt megavatt og þar verður einnig
tíðnibreytir fyrir 60 Hertz. Í framtíð-
inni er stefnt að því að koma upp land-
tengingu fyrir stóru skemmtiferðaskipin
í Sundahöfn. Aflnotkun skemmtiferða-
skipa er gríðarlega mikil á sama tíma
og þau stoppa stutt við. Mjög kostnað-
arsamt verkefni er að koma upp búnaði
fyrir tengingu stórra skemmtiferðaskipa
en engu að síður er það verkefni á lang-
tímaáætlun hjá Faxaflóahöfnum.
lÍvilnun eða álögur eftir því hvaða áhrif skipin hafa á umhverfiðlFaxaflóahafnir eru fyrsta fyrirtækið
utan Noregs sem tekur þetta kerfi upplLandtenging fyrir smærri farþegaskip tilbúin næsta vor
Einkunnakerfi fyrir farþegaskip
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Morgunblaðið/sisi
Glæsiskip Nýtt farþegaskip, Seabourn Venture, hóf siglingar í sumar. Það lagðist að bryggju í Gömlu höfninni.