Morgunblaðið - 19.11.2022, Síða 16
FRÉTTIR
Innlent16
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
B E R N H A R Ð
L A X D A L
Skipholti 29b • S: 551 4422
LAXDAL er í leiðinni
Skoðið netverslun
laxdal.is
PRJÓNASLÁ
JÓLAGJÖFIN Í ÁR
Kr.18.900
Vagnhöfði 7, 110 Reykjavík | Sími: 517 5000 | stalogstansar.is
stalogstansar.is
VARAHLUTIR Í
KERRUR
2012
2021
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Deiglan Stofnanirnar tvær deila 7. hæðinni í Borgartúni 26.
Enginn ermeð
fasta starfsstöð
lBúið að opna fyrstuDeiglu ríkisins
lTvær stofnanir eru á sömuhæð
Framkvæmdasýslan-Ríkiseign-
ir(FSRE) og Ríkiskaup fluttu nýlega
starfsemi sína á 7. hæð í Borgartúni
26. Skrifstofa stofnananna er fyrsta
Deiglan, þar sem tvær eða fleiri rík-
isstofnanir sameinast um aðstöðu,
að því er fram kemur á heimasíðu
FSRE. Er aðstaðan í Borgartúninu
liður í að þróa aðferðafræði fyrir
stærri Deiglur ríkisstofnana sem
eru í undirbúningi.
Alls starfa um 100 manns hjá
stofnununum tveimur. Hæðin í
Borgartúni 26 er í 1.250 fermetrar
og hefur hver starfsmaður því um
12,5 fermetra til ráðstöfunar. Engar
einkaskrifstofur eru á hæðinni og
enginn starfsmaður hefur fasta
vinnustöð.
Innra skipulag hæðarinnar er í
samræmi við viðmið fjármálaráðu-
neytisins um skrifstofuhúsnæði.
Á hæðinni eru 70 hefðbundnar
vinnustöðvar þar sem hver og einn
starfsmaður getur tengt fartölvu
sína við tvo skjái. Þá eru fjölbreytt
funda- og næðisrými til að sinna
stað- eða fjarfundum, símtölum
eða til að vinna án þess að kliður
trufli einbeitingu, segir á heimasíðu
FSRE. Húsnæðið er í eigu Eikur
fasteignafélags og hefur ríkið leigt
hæðina til þriggja ára.
FSRE segir að Deiglur séu
nýjung sem stofnunin hafi þróað
og sé stefnt að því að opna nokkrar
slíkrar á komandi árum. Þar fái rík-
isstofnanir nútímalega aðstöðu þar
sem fjölbreytt stoðrými eru samnýtt
með öðrum stofnunum. Aðstaða
verði fyrir störf án staðsetningar,
fjarvinnu og tímabundin verkefni
víða um landið. „Þannig skapast
mikið hagræði og samlegð auk
þess sem aukin tækifæri skapast til
þekkingarmiðlunar, samstarfs og
nýsköpunar þvert á ríkisstofnanir.“
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Íslenskum börnum, á aldrinum
þriggja til átta ára, gefst nú tæki-
færi á að læra ýmis tungumál með
aðstoð tveggja teiknimyndapersóna,
hákarlsins Atlas og litla skrímslisins
Moka Mera. Moka Mera Lingua er
einmitt heitið á appinu sem vinirnir
tveir tilheyra.
Tungumálaappið Moka Mera, úr
smíði finnska fyrirtækisinsMoilo Oy,
býður upp á tungumálanám á þrettán
tungumálum: Arabísku, kínversku,
ensku, finnsku, frönsku, þýsku, rúss-
nesku, spænsku, norsku, dönsku, ís-
lensku, sænsku og úkraínsku.
Ástæða þess að appið er til á ís-
lensku er sú að Skúlína Hlíf Kjartans-
dóttir frámenntavísindasviði Háskóla
Íslands tók þátt í Nordplus-verkefni
ásamt Helgu Dís Ísfold Sigurðar-
dóttur hjá Nordháskóla í Noregi og
og Evu Brooks frá háskólanum í Ála-
borg í Danmörku. Þær sóttu um styrk
í upphafi árs 2021 til þess að þýða
og staðfæra forritið yfir á íslensku,
norsku og dönsku og í vor kom það
út á þessum þremur tungumálum.
Úkraínsku bætt við
Helga, fulltrúi norsku tungunnar
í þessu verkefni, segir hópinn á bak
við appið vera afar stoltan af því að
það hafi líka verið þýtt á úkraínsku.
Lokið var við útgáfu forritsins á Norð-
urlandamálunum þremur um svipað
leyti og stríðið braust út í Úkraínu og
því ákvað finnska fyrirtækið að drífa í
því að sækja um styrk til þess að þýða
það yfir á úkraínsku. Það gekk eftir og
bættist úkraínska við í appinu í maí
síðastliðnum.
„Ég geri ráð fyrir að þetta sé eina
appið í heiminum sem þriggja til
sjö ára börn geta notað til þess að
læra úkraínsku eða þá fyrir úkra-
ínsk flóttabörn til að læra til dæmis
íslensku,“ segir Helga.
Í appinu er enginn texti heldur
byggist tungumálanámið á hlustun
og leik. „Við erum sammála um að
það sé ekki mjög heppileg leið fyrir
þennan aldurshóp, þriggja til átta ára,
að kenna þeim tungumál með mjög
miklum texta heldur henti þeim fyrst
og fremt að nota þeirra náttúrulegu
leið til að læra sem er að fylgjast með
og herma eftir.“
Helga segir leikinn í Moka Mera
Lingua nokkuð einfaldan í sniðum.
Þar séu ekki gefin nein stig eða
þvíumlíkt heldur geti börn einfald-
lega prófað sig áfram í þeim heimi
sem finna má í appinu og leikið sér
innan hans. „Fullorðið fólk hefur ver-
ið að spyrja hvort þetta sé ekki líka
skemmtilegt fyrir fullorðna en það er
ástæða fyrir því að markhópurinn er
þriggja til átta ára.“
Fjölskylduvænt og öruggt
Spurð út í sérstöðu þessa forrits
segir Helga að auðvitað séu til ótal
tungumálaöpp í heiminum en það séu
fá til fyrir þennan aldurshóp og með
einmitt þessum tungumálum. „Það
er fullt til ef börn vilja læra ensku
eða spænsku. En það er voða lítið til
fyrir norsku eða íslensku og að mér
vitandi úkraínsku.“
Appið uppfyllir strangar öryggis-
kröfur, það safnar ekki persónuupp-
lýsingum, þar eru engar auglýsingar,
það er algjörlega ókeypis og ekki er
hægt að kaupa neitt í leiknum. „Þetta
er mjög fjölskylduvænt og öruggt,“
segir Helga.
Skúlína Hlíf, sem hefur unnið að
íslensku útgáfunni, segist líta svo á
að appið geti verið „kærkomin viðbót
við annars fábreytta flóru námsefn-
is“ fyrir nemendur sem hafa íslensku
sem annað mál.
„Við þrjár höfum áhuga á að prófa
forritið með börnum til að sjá hvernig
forritið nýtist þeim í íslenskunámi og
aðlögun í nýju landi. Ég sótti um styrk
til Íslenskusjóðsins og fékk svolítinn
styrk til að setja þetta af stað, sem
verður vonandi fljótlega.“
Hún hefur kynnt appið fyrir kenn-
aranemum og kennarahópum og seg-
ist hafa væntingar um að Kópavogs-
bær sé byrjaður að vinnameð forritið
í leikskólum og skólum. Þá hefur hún
upplýsingar um að frá apríl og fram
í október hafi forritinu verið hlaðið
niður 2.778 sinnum af AppStore og
62 sinnum af Google Play Store hér
á landi.
lÞrettán tungumál í boði, m.a. íslenska og úkraínska
Líflegt tungumála-
app fyrir 3-8 ára
Ragnheiður Birgisdóttir
ragnheidurb@mbl.is
Leikur Hákarlinn Atlas og litla skrímslið MokaMera leiða börn á aldrin-
um 3-8 ára í gegnum einfalt tungumálanám í appinuMokaMera Lingua.