Morgunblaðið - 19.11.2022, Qupperneq 33
MESSUR 33á morgun
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 19. NÓVEMBER 2022
Allur arður af þjónustunni rennur til reksturs kirkjugarðanna
Tökum á móti ástvinum í hlýlegu
og fallegu umhverfi
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
Öll aðstaða í samræmi við tilefnið. Hlýlegt og fallegt
húsnæði og nýir glæsilegir bílar.
Sjá nánari upplýsingar á utfor.is
Útfararþjónusta
Við veitum alla þjónustu tengda andláti ástvina
– Þjónusta um allt land og erlendis
– Þjónusta í heimahúsi og á stofnunum
í yfir 70 ár
Guðný Hildur
Kristinsdóttir
Framkvæmdastjóri
Ellert Ingason
Sálmaskrár,
útfararþjónusta
Emilía Jónsdóttir
Félagsráðgjöf,
útfararþjónusta
Guðmundur
Baldvinsson
Útfararþjónusta
Magnús Sævar
Magnússon
Útfararþjónusta
Helga
Guðmundsdóttir
Útfararþjónusta
Hinrik Norðfjörð
Útfararþjónusta
Helena Björk
Magnúsdóttir
Útfararþjónusta
AKRANESKIRKJA | Sunnudagaskóli
kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl. 20. Ný
sálmabók tekin í notkun. Kór Akranes-
kirkju leiðir söng, organisti er Hilmar
Örn Agnarsson. Prestur er Ólöf Margrét
Snorradóttir. Meðhjálpari er Fjóla Lúð-
víksdóttir.
AKUREYRARKIRKJA | Sunnudaga-
skóli í safnaðarheimilinu kl. 11. Um-
sjón Sonja Kro og Sigrún Magna Þór-
steinsdóttir. Hátíðarmessa kl. 14. Kór
Akureyrarkirkju syngur. Sóley Björk Ein-
arsdóttir leikur á trompet. Stjórnendur
og organistar eru Eyþór Ingi Jónsson og
Þorvaldur Örn Davíðsson. Prestar eru
Svavar Alfreð Jónsson, Hildur Eir Bolla-
dóttir og Jóhanna Gísladóttir. Fjáröflun-
ardagur Kvenfélags Akureyrarkirkju,
kaffihlaðborð og lukkupakkasala í að
messu lokinni.
ÁRBÆJARKIRKJA | Guðsþjónusta kl.
11. Sr. Þór Hauksson þjónar fyrir altari
og prédikar. Kór Árbæjarkirkju syngur
undir stjórn Krisztinu Kalló Szklenár
organista. Sunnudagaskólinn er á
sama tíma í safnaðarheimilinu í umsjá
Andreu Önnu Arnardóttur, Thelmu Rós-
ar Arnardóttur og Sigurðar Óla Karls-
sonar. Messukaffi og spjall eftir stund-
ina.
ÁSKIRKJA | Lesmessa og sunnudaga-
skóli kl. 13. Viktoría Ásgeirsdóttir leiðir
samveru sunnudagaskólans og sr. Sig-
urður Jónsson prédikar og þjónar fyrir
altari við messuna. Hressing að messu
lokinni.
BESSASTAÐASÓKN | Sunnudaga-
skóli í Brekkuskógum 1 kl. 11. Umsjón
með stundinni hafa Sigrún Ósk, Þórar-
inn og Þórey María.
BORGARNESKIRKJA | Kvöldmessa
sunnudag kl. 20. Ólöf María Birnu Brynj-
arsdóttir flytur hugvekju um sjálfsást,
en hún rannsakaði hugtakið og birting-
armyndir þess í meistararannsókn
sinni. Sr. Heiðrún Helga leiðir stundina,
og kirkjukórinn syngur undir stjórn
Steinunnar Árnadóttur.
BREIÐHOLTSKIRKJA | Guðsþjónusta
kl. 11. Prestur er Sigurjón Árni Eyjólfs-
son. Kór Breiðholtskirkju syngur undir
stjórn Arnar Magnússonar. Léttar veit-
ingar í safnaðarsal eftir messu.
Guðsþjónusta Alþjóðlega safnaðarins
kl. 14. Prestar eru Toshiki Toma og Ása
Laufey Sæmundsdóttir. Organisti er
Örn Magnússon. Barnagæsla. Veiting-
ar eftir messu.
BÚSTAÐAKIRKJA | Barnamessa kl.
11. Jónas Þórir, Danni, Iðunn, sr. Eva
Björk og Rebbi taka á móti börnunum.
Kvenfélags- og prjónamessa sunnudag
kl. 13. Hólmfríður Ólafsdóttir djákni pré-
dikar og með henni þjónar sr. Eva Björk
Valdimarsdóttir. Ný sálmabók verður
tekin í notkun með sálmum eftir konur,
félagar úr Kammerkórnum leiða söng
og Jónas Þórir spilar. Eftir messu verða
seldar vöfflur og kaffi í safnaðarsal og
jólabasar Kvenfélags Bústaðasóknar.
DÓMKIRKJAN | Messa kl. 11. Sr. Sol-
veig Lára Guðmundsdóttir fyrrverandi
vígslubiskup þjónar fyrir altari og prédik-
ar. Dómkórinn og Guðmundur Sigurðs-
son er organisti.
FELLA- OG HÓLAKIRKJA | Guðsþjón-
usta sunnudagi kl. 17. Sr. Pétur Ragn-
hildarson þjónar fyrir altari og prédikar.
Félagar úr kór Fella- og Hólakirkju leiða
tónlistina undir stjórn Arnhildar organ-
ista. Nemandi úr Söngskóla Reykjavík-
ur syngur einsöng. Í guðsþjónustunni
verður ný sálmabók þjóðkirkjunnar tek-
in formlega í notkun. Barnastarf í
kennslustofunni á sama tíma í umsjón
Nönnu og Benna. Eftir stundina verður
kirkjugestum boðið upp á kjúklinga-
súpu að hætti Kristínar kirkjuvarðar.
FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnu-
dagaskóli kl. 11. Kvöldguðsþjónusta kl.
20. Einar Eyjólfsson og Margrét Lilja Vil-
mundardóttir þjóna. Kór og hljómsveit
kirkjunnar leiðir sönginn undir stjórn
Arnar Arnarsonar.
GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjón-
usta kl. 11. Sr. Sigurður Grétar Helga-
son þjónar. Kór Grafarvogskirkju leiðir
söng. Organisti er Lára Bryndís Eggerts-
dóttir. Sunnudagaskóli er á sama tíma
á neðri hæð kirkjunnar. Umsjón hafa
Ásta Jóhanna Harðardóttir og sr. Guð-
rún Karls Helgudóttir. Undirleikari er
Stefán Birkisson. Selmessa er kl. 13 í
Kirkjuselinu í Spöng. Sr. Sigurður Grét-
ar Helgason þjónar. Vox Populi leiðir
söng. Undirleikari er Lára Bryndís Egg-
ertsdóttir.
GRENSÁSKIRKJA | Domus Vox syng-
ur við messu sunnudag kl. 11. Stjórn-
andi kórsins er Margrét J. Pálmadóttir
og undirleikari er Ásta Haraldsdóttir,
kantór Grensáskirkju. Séra Þorvaldur
Víðisson prédikar og þjónar fyrir altari
ásamt messuþjónum. Framkvæmdir
standa yfir á húsnæðinu, sem senn
verða yfirstaðnar.
GUÐRÍÐARKIRKJA í Grafarholti |
Guðsþjónusta þar sem skólakórar Ing-
unnar- og Dalsskóla syngja við mess-
una undir stjór Jóhönnu Halldórsdóttur.
Sr. Leifur Ragnar Jónsson þjónar. Org-
anisti er Arnhildur Valgarðsdóttir og kór
Guðríðarkirkju syngur. Sunnudagaskól-
inn undir stjórn Tinnu Rósar á sínum
stað. Rokkuð helgistund kl. 19 þar sem
Sigmundur Sigurgeirsson gítarleikari og
Arnór Brynjar Vilbergsson orgelleikari
leika tónlist úr ýmsum áttum, rokk,
blús, gospel, klassík og allt þar á milli.
Leifur Ragnar Jónsson leiðir stundina.
HAFNARFJARÐARKIRKJA | Kyrrðar-
messa kl. 11. Sr. Aldís Rut Gísladóttir
þjónar ásamt Bylgju Dís Gunnarsdóttur.
Kári Þormar og Barbörukórinn flytja fal-
lega Taizesálma. Barn borið til skírnar.
Sunnudagaskóli á sama tíma í safnaðar-
heimili.
HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og
barnastarf kl. 11. Prestur er Sigurður
Árni Þórðarson. Messuþjónar aðstoða.
Félagar í Kór Hallgrímskirkju syngja.
Organisti er Steinar Logi Helgason.
Kristný Rós Gústafsdóttir stýrir barna-
starfinu.
HALLGRÍMSKIRKJA Saurbæ |
Guðsþjónusta sunnudag kl. 11 - ný
sálmabók tekin í notkun. Kór Saurbæj-
arprestakalls syngur, organisti er
Zsuzsanna Budai. Prestur er Ólöf Mar-
grét Snorradóttir. Meðhjálpari er Ágústa
Björg Kristjánsdóttir.
HÁTEIGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Prestur er Eiríkur Jóhannsson, organisti
er Guðný Einarsdóttir. Eldri félagar
Karlakórs Reykjavíkur leiða messu-
söng. Stjórnandi er Aron Axel Cortes. Í
tilefni af útgáfu nýrrar sálmabókar
hvetjum við til almenns söngs. Þriðju-
dagur kl. 13.30. Gæðastund í safnað-
arsal. Miðvikudagur kl. 10. Foreldra-
morgunn.
HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa
sunnudag kl. 17. Sr. Sunna Dóra Möller
leiðir stundina. Vox Gospel kórinn syng-
ur undir stjórn Matthíasar V. Baldurs-
sonar.
HVÍTASUNNUKIRKJAN Fíladelfía |
Samkoma kl. 11. Service. Translation
into English. Samkoma á ensku kl. 14.
English speaking service. Samkoma á
spænsku kl. 16. Reuniónes en esp-
añol.
KEFLAVÍKURKIRKJA | Sunnudagur
20. nóvember kl. 11. Arnór Vilbergsson
leiðir sálmasöng við ukulelespil. Arnon
Smári er messuþjónn. Sr. Erla Guð-
mundsdóttir þjónar á síðasta sunnu-
degi kirkjuársins. Sunnudagaskóli er á
sama tíma í umsjón Marínar Hrundar
Jónsdóttur, Helgu Sveinsdóttur og Alex-
anders Grybos. Súpa og brauð matreitt
af fermingarfjölskyldum. Kór Keflavíku-
kirkju fagnar 80 ára afmæli með af-
mælistónleikum í kirkjunni 19. nóvem-
ber kl. 14. Boðið er upp á kaffisamsæti
í Kirkjulundi.
KIRKJA HEYRNARLAUSRA | Messa
í Grensáskirkju 20. nóvember kl. 14.
Táknmálskórinn syngur undir stjórn Ey-
rúnar. Kaffi eftir messu.
KIRKJUSELIÐ Í SPÖNG | Selmessa
sunnudag kl. 13. Sr. Sigurður Grétar
Helgason þjónar. Vox Populi leiðir söng.
Undirleikari er Lára Bryndís Eggertsdóttir.
KÓPAVOGSKIRKJA | Messa kl. 11.
Sr. Grétar Halldór Gunnarsson prédikar
og þjónar fyrir altari. Gengið verður til
altaris. Félagar úr kór Kópavogskirkju
syngja undir stjórn Lenku Mátéová,
kantors kirkjunnar. Sunnudagaskóli
verður á sama tíma í safnaðarheimilinu
Borgum.
LANGHOLTSKIRKJA | Messa og
sunnudagaskóli kl. 11, Ásta Ingibjörg
Pétursdóttir prestur þjónar, félagar úr
Fílharmóníunni leiða sönginn undir
stjórn Magnúsar Ragnarssonar organ-
ista. Sara Grímsdóttir söngkona stýrir
sunnudagaskólanum. Léttur hádegis-
verður í safnaðarheimilinu að messu
lokinni.
LÁGAFELLSKIRKJA | Danssunnu-
dagaskóli kl. 11. Íhugunarguðsþjón-
usta kl. 20. Sr. Henning Emil Magnús-
son leiðir stundina. Lögð er áhersla á
einfaldleika, biblíulega íhugun, þátt-
töku og kyrrð. Söngkonan Margrét Árna-
dóttir syngur ásamt kirkjukór Lágafells-
sóknar. Organisti er Þórður
Sigurðarson. Meðhjálpari: Andrea
Gréta Axelsdóttir. Kaffisopi í skrúðhúsi
eftir guðsþjónustu.
NESKIRKJA | Messa og barnastarf kl.
11. Sameiginlegt upphaf. Félagar úr
Kór Neskirkju leiða safnaðarsöng. Org-
anisti er Steingrímur Þórhallsson.
Prestur er Steinunn Arnþrúður Björns-
dóttir. Söngur, sögur og gleði í sunnu-
dagaskólanum. Umsjón Kristrún Guð-
mundsdóttir og Ari Agnarsson.
Kaffisopi og samfélag á Torginu eftir
messu.
SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta
kl. 11, Siggi Már og Arnar leiða stund-
ina. Helgi Hannesson spilar á píanóið.
Guðsþjónusta kl. 13, sr. Sigurður Már
Hannesson prédikar og þjónar fyrir alt-
ari og félagar úr kór Seljakirkju leiða
safnaðarsöng. Organisti er Ástvaldur
Traustason.
SELTJARNARNESKIRKJA | Fræðslu-
morgunn kl. 10. Trúarbragðastríðin í
frönsku leikhúsi. Guðrún Kristinsdóttir,
nýdoktor, talar. Guðsþjónusta og
sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór
Bjarnason þjónar og Friðrik Vignir Stef-
ánsson er organisti. Félagar úr Kamm-
erkórnum syngja. Þór Kárason og
Agnes Sólbjört Helgadóttir, nemendur í
Tónlistarskóla Seltjarnarness, leika á
gítar. Kaffiveitingar eftir athöfn í safn-
aðarheimilinu. Morgunkaffi kl. 9-11 og
kyrrðarstund kl. 12 á miðvikudag.
VÍDALÍNSKIRKJA | Sunnudagaskóli í
Urriðaholti kl. 10 og í safnaðarheimilinu
kl. 11. Sr. Guðrún Eggerts Þórudóttir
prédikar og þjónar fyrir altari. Félagar í
kór Vídalínskirkju syngja undir stjórn Jó-
hanns Baldvinssonar organista.
VÍÐISTAÐAKIRKJA í Hafnarfirði |
Sunnudagaskóli kl. 10. Fjölbreytt og
skemmtileg stund í umsjá Dísu og
Benna. Tónlistarguðsþjónusta kl. 11.
Gaflarakórinn syngur undir stjórn Krist-
jönu Ásgeirsdóttur og sr. Sighvatur
Karlsson þjónar með aðstoð messu-
þjóna. Hressing í safnaðarheimilinu að
guðsþjónustu lokinni.
YTRI-Njarðvíkurkirkja | Prjónamessa
sunnudag kl. 11. Allir hvattir til að koma
með prjónana sína. Meðlimir Vinavoða
koma og kynna starfssemi sína. For-
eldrar fermingabarna hvattir til að fylgja
börnum sínum.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Hofskirkja á Höfðaströnd, Skagafirði.