Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.10.2022, Side 32

Morgunblaðið - Sunnudagur - 16.10.2022, Side 32
SUNNUDAGUR 16. OKTÓBER 2022 ÞRÍFARARVIKUNNAR Ava Phillippe dóttir ReeseWitherspoon kvikmyndaleikkona Þóra Erlingsdóttir fráfarandi framkvæmdastjóri hjá Play GAMLA FRÉTTIN Misjafn sauð- ur í mörgu fé Ungfrú Hrefna Ingimundar- dóttir íþróttakennari hafði í mörg horn að líta haustið 1952, ef marka má viðtal við hana í Morgunblaðinu. Hún kenndi leikfimi í kvöldflokkum ÍR og á daginn fór hún á hjólinu sínu á milli barnaleikvallanna í bænum og leit þar eftir starfi og leikjum barnanna. „Ég ferðast á milli leikvall- anna og, þegar gott er veður, kenni ég börnunum leiki, reyni að tala um fvrir þeim, ef eitt- hvað ber út af, jafna ágrein- ing, sem upp kann að koma o.s.frv.,“ sagði Hrefna. Í máli hennar kom fram að börnin væru yfirleitt ágæt en þó væri misjafn sauður í mörgu fé, eins og gengur. Spurð hvern- ig hún stillti til friðar, kæmi til þess, svaraði Hrefna: „Ég reyni auðvitað fyrst með góðu að fá þá til að bæta ráð sitt. Ef það hrífur ekki, fer ég heim til foreldranna og kvarta yfir framferði barnsins, sem í hlut á. Móttökurnar, sem ég fæ í þessum umkvörtunarferðum eru ærið misjafnar. Sumir for- eldrar vilja engu misjöfnu trúa um börn sín og bregðast æfir við, ef að þeim er fundið. Sem betur fer, eru þó hinir fleiri, sem taka kvörtunum mínum af skilningi og sýna vilja og viðleitni til bóta.“ Leikvellir voru athvarf barnanna og þar undu þau hag sínum vel 1952. Börnin okkar í brennidepli Myndaflokkurinn Börnin okkar hefur göngu sína á RÚV í dag, sunnudag. Börnin okkar er myndaflokkur í sex hlutum sem fjallar í víðu samhengi um skóla-, menntunar- og uppeldismál og það út frá því hvar við erum stödd í þeim efnum og hvað betur mætti fara. Umsjónarmaður er Gunnþórunn Jónsdóttir en meðhöfundur hennar er Hermundur Sigmundsson prófessor, sem um árabil hefur skrifað pistla um menntamál í Sunnudagsblað Morgun- blaðsins. „Hugmyndin að þáttunum kom fyrst út frá umfjöllun minni um fanga og meðal annars rétt þeirra til menntunar. Fangelsin okkar eru oftast full og stór hluti fanga eru karlmenn. Einhvern tímann voru allir þessir einstaklingar börn. Ég trúi því að hægt sé að koma í veg fyrir svo mörg samfélagsleg vandamál ef rót vandans yrði skoðuð. Hvar getum við sem samfélag gert betur? Við þurfum að hlúa betur að börnum frá grunni, í stað þess að þurfa seinna meir að takast á við krísur,“ sagði Gunnþór- unn í samtali við Morgunblaðið þegar hún kynnti þættina í fyrra. Morgunblaðið/Eggert Ekkert er okkur kærara en börnin okkar. Morgunblaðið/Ásdís Gunnþórunn Jónsdóttir kvikmyndagerðarkona hefur umsjón með þáttunum sem eru sex talsins. LEUCA model 3186 L 167 cm Leður ct. 15 Verð 389.000,- L 207 cm Leður ct. 15 Verð 439.000,- EUFOLIA model 3226 L 178 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- L 232 cm Leður ct. 25 Verð 709.000,- TRATTO model 2811 L 145 cm Leður ct. 25 Verð 449.000,- L 207 cm Leður ct. 25 Verð 579.000,- ESTRO model 3042 L 164cm Leður ct. 25 Verð 439.000,- L 198 cm Leður ct. 25 Verð 489.000,- ítölsk hönnun – ítölsk framleiðsla CASA býður upp á vaxtalausar raðgreiðslur (Visa / Euro) í allt að 6 mánuði. Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is Opið virka daga 10-18 VALZER model 3222 L164-199 cm Leður ct. 15 Verð 529.000,- L188-223 cm Leður ct. 15 Verð 569.000,-

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.