Fréttablaðið - 14.01.2023, Side 2
Íslenska karlalands-
liðið í handbolta spilar
sinn annan leik í riðla-
keppni HM í kvöld. Þá
verður Ungverjaland
andstæðingurinn.
Hafnfirðingar þreyðu þorrann
Glatt var á hjalla í Kaplakrika í gærkvöldi þar sem þorrablót FH fór fram. Fjölmörg önnur íþróttafélög eru einnig með þorrablót um helgina. Fréttablaðið/Valli
Það var blátt haf í höllinni í
Kristianstad þegar íslenska
karlalandsliðið í handbolta
lagði það portúgalska á
heimsmeistaramótinu í Pól-
landi og Svíþjóð með fjórum
mörkum á fimmtudagskvöld.
Silja Rán Arnarsdóttir var
með góðu fólki í stúkunni og
segir stemninguna hafa verið
hreint ólýsanlega.
helgifannar@frettabladid.is
handbolti „Andinn var mjög góður,
alveg frá stuðningsmannasvæðinu,
inn í leikinn og eftir hann. Þetta
var eiginlega ótrúlegt,“ segir Silja
Rán Arnarsdóttir, stuðningsmaður
íslenska karlalandsliðsins í hand-
bolta, í samtali við Fréttablaðið.
Íslendingar yfirtóku stúkuna í
Kristianstad á fimmtudag, enda
hátt í tvö þúsund þeirra á staðnum.
Silja segir stemninguna hafa verið
eins og strákarnir okkar væru á
heimavelli. „Þetta var eins og að vera
í Laugardalshöll.“
Leikurinn var spennandi lengi
vel en svo tók íslenska liðið fram
úr því portúgalska. Silja neitar því
ekki að það hafi verið smá stress
á meðal fólks í höllinni. „Fram að
miðjum seinni hálf leik var þetta
mjög dramatískt. Þá var það bara að
hvetja liðið enn meira áfram. Þetta
var ótrúleg upplifun.“
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
Silja fylgir íslenska liðinu eftir á
stórmóti. Hún var mætt á HM í
Danmörku og Þýskalandi fyrir
f jór um ár um. Það var meiri
stemning á f immtudag en þá.
„Höllin er minni hér svo það mynd-
aðist þessi einstaka stemning.“
Lagið Ferðalok er gjarnan spilað
þegar íslensku landsliðin í hinum
ýmsu íþróttum eru annars vegar.
Það var engin breyting á því á
fimmtudag og fékk lagið að óma
eftir leik.
„Ég hélt að ég væri algjörlega
búin að fá nóg af þessu lagi en það
sleppur á svona stundum. Það voru
allir til í þetta. Það var sungið þegar
leikurinn var búinn og fólk að labba
á næsta pöbb, þá ómaði þetta um
bæinn.“
Silja hvetur alla sem geta til að
fara til Svíþjóðar og upplifa stemn-
inguna meðal íslenskra stuðnings-
manna í höllinni.
„Þetta var ótrúleg stemning. Ég
mæli með fyrir alla að skella sér út.
Þetta er þægilegt ferðalag og það vill
enginn missa af þessu.“
Íslenska landsliðið mætir Ung-
verjum í þessari sömu höll í kvöld
klukkan 19.30. Bæði lið unnu góða
sigra í fyrstu umferð. Fari íslenska
liðið með sigur af hólmi er staðan
góð fyrir komandi átök. n
Einstök stemning þegar
bláa hafið yfirtók stúkuna
Íslenskir stuðn-
ingsmenn voru
afar áberandi í
höllinni á fyrsta
leik Íslands.
Þessar íslensku
konur nutu
svo sannarlega
lífsins og ætla
að halda því
áfram.
MYND/aðseND
Standar Fréttablaðsins eru víða.
gar@frettabladid.is
fjölmiðlar Dreifing Fréttablaðs-
ins á fjölförnum stöðum gengur vel
eftir að breyting var gerð á tilhögun
dreifingarinnar. Nú má nálgast
blaðið á yfir 150 stöðum víðs vegar
á höfuðborgarsvæðinu.
Nýjasta viðbótin er Smáralind
þar sem þúsundir eiga leið um dag-
lega. Blaðið var þegar í Kringlunni.
„Dreifingin gengur framar vonum
og er alltaf að styrkjast. Við finnum
fyrir miklum áhuga og velvilja hjá
fólki," segir Jón Þórisson, forstjóri
Torgs, útgáfufélags Fréttablaðsins.
Nú fara tæplega þrjátíu þúsund
eintök í dreifingu á höfuðborgar-
svæðinu auk þess sem 10 þúsund
eintökum er dreift á landsbyggð-
inni. Um helgar er enn f leiri ein-
tökum dreift. Stefnt er að því að
auka við dreifinguna jafnt og þétt. n
Fréttablaðið er nú
einnig í Smáralind
njall@frettabladid.is
bÍlar Tesla lækkaði verð á bílum
eftir áramót á heimsvísu og í mörg-
um tilvikum um hundruð þúsunda
króna.
Dæmi er um að Tesla Model Y Per-
formance, sem kostaði 9.270.000
krónur í desember síðastliðnum
á Íslandi, hafi lækkað um 421.000
krónur í verði, samkvæmt athugun
Fréttablaðsins.
Lækkunin á Íslandi er ekkert
einsdæmi, en sami bíll, Tesla Model
Y Performance, lækkaði um átta
þúsund pund í Bretlandi fyrir jól.
Stutt er frá því að verð á Tesla-
bílum lækkaði í Kína og fyrir vikið
gerðu óánægðir kaupendur áhlaup
á sýningarsali, þar sem þeir höfðu
verið nýbúnir að kaupa bíla á hærra
verði.
Samkvæmt fréttamiðlinum Reu-
ters er lækkunin allt að 20 prósent á
sumum bílum og nær hún einnig til
Bandaríkjanna. sjá síðu 32
Tesla lækkar verð á bílum á heimsvísu
Lækkunin er allt
að 20 prósent.
MYND/aðseND
14. janúar 2023
Laugardagur2 FréTTir Fréttablaðið