Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 4
bth@frettabladid.is
skaftárhreppur Jóhannes Gissur
arson, oddviti í Skaftárhreppi, segir
að það séu vonbrigði að fellt hafi
verið úr gildi framkvæmdaleyfi fyrir
Hnútuvirkjun.
„Sem forsvarsmaður í sveitarfélagi
eru það vonbrigði að felld sé úr gildi
framkvæmd sem stóð fyrir dyrum.
Ég get ekki sagt annað en að mér er
alveg sama hvort einkaaðilar eða hið
opinbera stuðli að framkvæmdum
og uppbyggingu, allt slíkt er af hinu
jákvæða og þess vegna eru þetta
vonbrigði,“ segir Jóhannes.
Hann segir að framhaldið muni
ráðast af vilja framkvæmdaaðilans
til að halda áfram með virkjana
áform. Sjálfur hafi hann komið inn
í sveitarstjórn eftir að ákvörðun um
framkvæmdaleyfi var tekin.
Um gagnrýni í úrskurðinum um
að ekki hafi verið nógu vel unnið og
rökstuðning hafi skort sem réttlæti
virkjunina segir Jóhannes að eflaust
hefði verið hægt að halda betur á
málum.
„En með þessari framkvæmd
hefði með vissum hætti orðið styrk
ing innviða í þessu sveitarfélagi í
formi raforkuöryggis og ekki síst ef
kemur til áfalla vegna náttúruham
fara.“ n
tölur vikunnar |
Þrjú í fréttum |
Framkvæmdaleyfi fyrir
Hnútuvirkjun var fellt
úr gildi eftir kærur.
Hegðunarvandinn er
sagður mestmegnis
bundinn við yngri bíl-
stjóra.
Sem forsvarsmaður í
sveitarfélagi eru það
vonbrigði að felld sé úr
gildi framkvæmd sem
stóð fyrir dyrum.
Jóhannes
Gissurarson,
oddviti í Skaftár-
hreppi
Það má alveg segja að
við vinnum stundum
við þær aðstæður að
kalla megi að daðra við
dauðann.
Sigurvin
Haraldsson,
atvinnubílstjóri
Elín
Magnúsdóttir
eldri borgari
á Hraunvangi í
Hafnarfirði
segir íbúa þar
ánægða með að
Fréttablaðið ber
ist aftur í húsið
eftir örstutt hlé. „Það er einn hér á
mínum gangi sem dreifir blaðinu
á morgnana og setur á húnana á
herbergjunum. Ef einhver er ekki
búinn að taka blaðið sitt og við
vitum að sá var ekki að fara neitt
þá vitum við að það er eitthvað að.
Fréttablaðið er öryggisatriði.“
Dagur B.
Eggertsson
borgarstjóri
undirritaði í
viljayfirlýsingu
um byggingu
fimm stjörnu
hótels malasíska
félagsins Berjaya
Land Berhad
í landi Stardals við Skálafell.
„Þetta eru stórhuga áform og
þetta verður stór vinnustaður,“
sagði Dagur sem kvað um að ræða
stórtíðindi fyrir íslenska ferða
þjónustu. „Meðal annars verður
reist stórt baðlón.“
Daníel Már
Magnússon
skósmiður
í Þráni skóara á
Grettisgötu
segir skóara
óttast skort á
fagmönnum í
framtíðinni. „Ég
er langyngsti gaurinn í greininni,
en flestir kollega minna eru að
nálgast eftirlaunin, eða eru jafnvel
komnir yfir hefðbundinn vinnu
aldur,“ sagði Daníel og undirstrik
aði að fagið væri skemmtilegt fyrir
alla; konur jafnt sem karla. n
450
24
7
pr
ós
en
ta
10,3
prósentum tekna sinna verja Ís-
lendingar í veitingastaði og hótel.
28
prósent Íslendinga styðja upp-
byggingu vindmyllugarða í landinu
en 26 prósent segjast á móti.
5,3
milljónir
ferðamanna
gætu komið
til Íslands
árið 2025
samkvæmt
ítrustu spám.
hækkun varð á hús-
næðisverði á Íslandi frá
2010 þar til í fyrrahaust.
milljóna styrk
var í vikunni út-
hlutað af ríkinu
til íþrótta-
félaga vegna
tekjutaps af
völdum Covid.
Atvinnubílstjóri segir að
bílstjórar stórra bíla geti líka
blindast af háum ljósum
lítilla bíla. Hann fagnar
umræðu um háskaakstur en
segir ferðalög um þjóðvegi
landsins ekkert grín.
bth@frettabladid.is
umferð „Maður er oft alveg búinn
eftir daginn,“ segir Sigurvin Har
alds son atvinnubílstjóri sem ekur
stórum vöruflutningabíl sem verk
taki fyrir Eimskip.
Fréttablaðið hefur undanfarið
sagt sögur vegfarenda sem hafa lent
í hættu þegar þeir mæta vöruflutn
ingabílum.
Brögð eru að því að ökumenn
stórra bíla skelli kösturum sem
líkt er við f lóðlýsingu á ökutæki
sem þeir mæta ef þeim misbýður
ljósanotkun. Hefur verið rætt við
fólk sem staðhæfir að stundum láti
atvinnubílstjórarnir ekki duga að
blikka til ábendingar um að lækka
ljós heldur haldi þeir uppi f lóðlýs
ingunni með þeim afleiðingum að
fólk blindist. Þetta ökulag skapar
stórhættu samkvæmt lögreglu og
Samgöngustofu.
„Því miður eru alls staðar svartir
sauðir og líka í stétt atvinnubíl
stjóra,“ segir Sigurvin. „Það eru til
tappar í stétt atvinnubílstjóra sem
telja sig eiga heiminn eftir að þeir
eru komnir með meirapróf.“
Með ummælum sínum tekur
Sigurvin undir raddir f leiri við
mælenda Fréttablaðsins um að
hegðunarvandinn virðist mestur
hjá yngri atvinnubílstjórum.
„En það er ekki rétt að ökuljós á
fólksbílum nái ekki upp til okkar,“
segir Sigurvin. „Hluti fólksbíla getur
blindað okkur, einkum bílar með
xenonperur, þau ljós geta verið
mjög erfið en maður á auðvitað bara
að blikka til aðvörunar, langflestir
okkar slökkva á kösturunum áður
en við nálgumst bíla.“
Nú er sá árstími þar sem varasam
ast er að vera á ferð um vegi lands
ins, skammdegi og hálka. Hlutskipti
atvinnubílstjóra er oft mjög erfitt,
þeir þurfa oft að fara yst út í kant
þegar þeir mæta bílum, jafnvel í
roki. Það segir sig sjálft að ef um er
að ræða ökutæki upp á tugi tonna
með farmi þarf ekki nema eina
snögga vindhviðu til að adrena
línið flæði.
„Það má alveg segja að við
vinnum stundum við þær aðstæður
að kalla megi að daðra við dauð
ann,“ segir Sigurvin.
Hann segir Kjalarnesið í hópi
hættulegustu vegkafla.
„Þau eru verst þessi vindmiklu
svæði og ekki síst í blindri illfærð.
Maður getur lent í vindhöggi sem
snýr bílnum. Það tekur langan tíma
að hemla og menn halda oft fast um
stýrið.
Maður er ekki bara að hugsa um
að keyra, við erum stanslaust að
hugsa um öryggi þeirra sem verða
á vegi okkar.“
Ferðamannasprengjan hefur
einnig leitt af sér nýjar áskoranir
fyrir atvinnubílstjóra. Erlendir
ferðamenn stoppa oft bíla í veg
kanti til að taka myndir af norður
ljósum eða öðru. Sumir leggja upp
á íslenska vegi að vetri án þess að
hafa nokkru sinni ekið bíl að sögn
Sigurvins.
Desember var mjög erfiður vegna
snjóa og oft á tíðum fljúgandi hálku.
„Öll okkar vinna gengur út á að
koma farmi á réttum tíma, oft við
erfiðar aðstæður. Það er oft mikið
stress.“ n
Oft alveg búinn á því eftir daginn
info@arcticstar.is - www.arcticstar.is
Síðumúli 31 - 108 Reykjavik - S: 562-9018 / 898-5618
MARINE COLLAGEN
Kollagen er eitt helsta uppbyggingarprótein líkamans.
Kollagen er að finna í öllum liðum, liðamótum, vöðvum,
sinum og beinum mannslíkamans.
Arctic Star Marine Collagen inniheldur
íslensk sæbjúgu, kollagen úr þorskroði
og C vítamíni.
C vítamín er þekkt fyrir:
• Stuðlar að eðlilegri myndun kollagens
fyrir starfsemi brjósks, beina og húðar.
• Stuðlar að eðlilegri starfsemi tauga-
kerfisins og ónæmiskerfisins.
• Stuðlar að því að verja frumur fyrir
oxunarálagi og draga úr þreytu og lúa.
• Stuðlar að endurnýjun afoxaðs forms
E-vítamíns og auka upptöku járns.
• Stuðlar að eðlilegum orkugæfum
efnaskiptum.
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA,
Framleiðandi er Arctic Star ehf.
Allar nánari upplýsingar fast www.arcticstar.is
Arctic Star Marine Collagen
Varan fæst í flestum apótekum, heilsubúðum,
Hagkaupum, Fjarðakaup og Heimkaup.is
Sigurvin hefur starfað sem atvinnubílstjóri í um 15 ár og fagnar umræðunni. Fréttablaðið/anton brink
Lýsir vonbrigðum með úrskurðinn
14. janúar 2023
Laugardagur4 fréttir Fréttablaðið