Fréttablaðið - 14.01.2023, Síða 6

Fréttablaðið - 14.01.2023, Síða 6
Eiga störf hins opin- bera að vera staðsett úti um allt land eða viljum við að öllu landinu verði sinnt frá einum stað? Þóroddur Bjarnason, prófessor í fé- lagsfræði við HÍ Þetta er mikilvægt skref, sem undirstrikar að framkvæmdanefnd- in sem var skipuð á síðasta ári hefur unnið gott og mikilvægt starf. Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Auglýst er eftir umsóknum um styrki vegna vinnustaðanáms á árinu 2022. Sjóðurinn veitir styrki til fyrirtækja og stofnana vegna vinnustaðanáms og starfsþjálfunar sem er skilgreindur hluti af starfsnámi skv. aðalnámskrá framhaldsskóla. Umsóknarfrestur er til 20. janúar 2023, kl. 15:00. Markmið sjóðsins er að hvetja fyrirtæki og stofnanir til þess að taka við nemendum sem stunda vinnustaðanám sem hluta af námi á framhaldsskólastigi og gera þeim kleift að ljúka tilskildu vinnustaðanámi. Umsóknargögn og leiðbeiningar er að finna á slóðinni www.rannis.is/sjodir/menntun/vinnustadanamssjodur/ Umsóknum skal skilað á rafrænu formi. Nánari upplýsingar veitir Skúli Leifsson, sími 515 5843, vinnustadanamssjodur@rannis.is Vinnustaðanámssjóður Umsóknarfrestur til 20. janúar H N O T S K Ó G U R g ra fí sk h ön nu n Langanesbyggð berst til síðasta blóðdropa fyrir einu ríkisstarfi. Pólitísk spurning hvort öllum opinberum störfum verður sópað undir einn hatt að sögn prófessors. bth@frettabladid.is Langanesbyggð Eina opinbera starfið í Langanesbyggð, starf sýslu­ mannsfulltrúa á Þórshöfn, er á síð­ asta söludegi og stefnir í að ekkert opinbert starf verði eftir í sveitar­ félaginu innan árs. Kona sinnir starfinu. Ástæða þess að leggja átti niður starf hennar um síðustu áramót er að ekki er kveðið á í nýrri reglugerð um að sýslumað­ urinn á Húsavík reki útibú á Þórs­ höfn að sögn Björns S. Lárussonar, sveitarstjóra Langanesbyggðar. Verkefni sýslumannsfulltrúa á Þórshöfn hafa falist í skönnun á ýmsum skjölum og f leiri verk­ efnum á landsvísu. Hluti starf­ anna felst í staðbundinni þjónustu, útgáfu ökuskírteina, þinglýsingum, vegabréfum og f leira. Það sparar Þórshafnarbúum og öðrum íbúum Langanesbyggðar mikil ferðalög að þurfa ekki að aka til Húsavíkur til að sækja sér þjónustu, enda 320 kíló­ metra akstur fram og til baka þannig að til mikils er að vinna fyrir íbúana að halda starfinu í heimabyggð. Heimamenn á Þórshöfn með sveitarstjórnarfólk í broddi fylk­ ingar fóru fram á að reglugerðinni yrði breytt. Það gekk ekki í gegn en dómsmálaráðuneytið féllst á að framlengja samninginn um starfið í Langanesbyggð um eitt ár. Að óbreyttu verður ekkert opinbert starf á Þórshöfn eftir næstu áramót. „Af því að við búum svo afskekkt og höfum mikinn kostnað af því að sækja okkur ýmsa lögbundna þjón­ ustu, sem dæmi bifreiðaskoðun, finnst okkur þessi þróun stinga í stúf,“ segir Björn. Hann segir það einnig hafa hleypt illu blóði í heimamenn að inn viða­ ráðherra hafi hróðugur heimsótt Akureyringa fyrir skömmu og fært þeim fjögur ný störf hjá Húsnæðis­ og mannvirkjastofnun. Á sama tíma hafi Þórshafnarbúum verið tilkynnt að eina opinbera starfið þeirra yrði lagt niður. Þóroddur Bjarnason, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands, segir að tæknibreytingar hafi gjör­ breytt aðstæðum í opinberri starf­ semi. Fyrir tíma internetsins og nútíma hátta hafi þurft opinbera starfsemi víða um land vegna fjar­ lægðanna. „Svo koma þessar miklu tækni­ breytingar sem gefa kost á að skipuleggja störf hins opinbera heildstætt,“ segir Þóroddur. Tækni­ breytingarnar bjóði upp á meiri dreifingu starfa en nokkru sinni. „En tæknibreytingarnar gefa líka kost á meiri samþjöppun en nokkru sinni,“ segir Þóroddur. „Það er sem sagt hægt að nýta sömu tækni til að ýmist dreifa opinberum störfum út um allt land eða sinna öllu landinu frá einum stað.“ Þóroddur segir að eitt opinbert starf skipti miklu máli fyrir fámennt sveitarfélag en þetta mál sé stærra en svo að það snúist bara um það. „Það snýst um pólitískan vilja og stefnumótun. Eiga störf hins opin­ bera að vera staðsett úti um allt land eða viljum við að öllu landinu verði sinnt frá einum stað?“ n Eina ríkisstarfið í hættu Þórshöfn í Langanesbyggð þar sem sýslumannsfulltrúinn hefur aðsetur í dag. Fréttablaðið/Pjetur kristinnpall@frettabladid.is Íþróttir „Þetta er mikilvægt skref, sem undirstrikar að framkvæmda­ nefndin sem var skipuð á síðasta ári hefur unnið gott og mikilvægt starf. Nefndin er búin að leggja grunn að verkefninu, hefur fundað með mér, ráðherrum ríkisstjórnarinnar og nú borgarráði. Þau eru að funda með sérstökum ráðgjafarhópi allra hagsmunaaðila, íþróttafélaganna í Dalnum og sérsamböndunum á næstunni til þess að fá viðbrögð við drögunum að uppleggi þessa verk­ efnis,“ segir Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur, spurður út í tíðindi af nýrri þjóðarhöll. Borgarráð samþykkti í vikunni að veita borgarstjóra umboð til að ganga til samninga við ríkið um verkefnið, stofnkostnað og rekstur á þjóðarhöll í Laugardal. Í bókuninni kemur fram að borgar­ ráð hafi fengið kynningu á starfi framkvæmdanefndar um þjóðar­ höll og að borgarstjóri fái heimild til að hefja viðræður við ríkið. „Það er samráð um þessar hug­ myndir sem liggja fyrir, en það er líka ljóst að ef þessi metnaðarfulla tímaáætlun á að standast sem er miðað við, þá þurfa ríki og borg að ná samkomulagi um skiptingu stofnkostnaðar og rekstrarkostn­ aðar til framtíðar. Það er verkefnið sem er að koma inn á okkar borð,“ segir Dagur sem segir að horft sé til að ný höll verði tilbúin árið 2025. Borgarráðsfulltrúar Samfylk­ ingarinnar, Framsóknarf lokks, Pírata og Viðreisnar lýstu yfir að þetta væri fagnaðarerindi í bókun og töluðu um að þetta myndi stór­ bæta aðstöðu barna og ungmenna í Laugardal ásamt því að vera lyfti­ stöng fyrir aðstöðu landsliða. Þá auki þetta samkeppnishæfi borg­ arinnar á alþjóðavettvangi og því sé mikilvægt að ná samningum við ríkið sem fyrst. „Leiðarljós borgarinnar í þessu er að skapa framúrskarandi aðstæður fyrir börn og unglinga í Laugardaln­ um ásamt því að vera þjóðarleik­ vangur í íþróttum. Þetta er hugsað til lengri tíma,“ segir Dagur. n Boða skref í átt að nýrri þjóðarhöll gar@frettabladid.is Leikir Fréttablaðið byrjar í dag í samstarfi við flugfélagið Play nýjan gjafaleik þar sem þátttakendur geta á næstu fjórum vikum unnið fjögur eitt hundrað þúsund króna gjafa­ bréf frá Play. Til að taka þátt þarf að finna Play­ þotuna á flugi í Fréttablaði dagsins, skrá sig inn á www.frettabladid. is/lifid/playleikur og segja á hvaða blaðsíðu þotan er. Dregið er viku­ lega úr lausnum frá allri vikunni. Því oftar sem þú skráir þig, því lík­ legra er að þú vinnir. n Finndu þotu Play og fljúgðu út í heim Hundrað þúsund króna gjafabréf frá Play er dregið út í hverri viku. Fréttablaðið/ernir bth@frettabladid.is kjaramáL Ummæli Sólveigar Önnu Jónsdóttur, formanns Eflingar, um stéttaandúð eru ekki úr lausu lofti gripin að sögn sérfræðings í stétta­ rannsóknum. Guðmundur Ævar Oddsson, pró­ fessor í félagsfræði við Háskólann á Akureyri, segir rannsóknir styðja málflutning Sólveigar. „Við upplifum mikla stéttaandúð, mikla andúð á láglaunakonum og ekki síst aðf luttum láglaunakon­ um,“ sagði Sólveig í Fréttablaðinu í gær sem telur ekki hlustað sem skyldi á sjónarmið Eflingar. „Það eru gild rök fyrir því sem Sólveig segir,“ segir Guðmundur. Hann segir að láglaunafólk og ekki síst aðfluttar konur hafi sam­ kvæmt rannsóknum afar lága rödd í samfélaginu. Hinir velmegandi hafa meiri völd en hinir fátæku. Viðmið millistéttar hér á landi séu önnur en hjá þeim sem lægst launin hafa. „Þetta er hópur sem situr neðst í virðingarstiganum um allan heim,“ segir Guðmundur Ævar. Þá fylgi oft fordómar gagnvart láglaunahópum sem jafnvel birtist í mismunun innan heilbrigðis­ kerfisins. „Stéttaskipting er sannarlega fyrir hendi hér á landi þótt hún sé kannski ekki eins ýkt og sums stað­ ar annars staðar,“ segir Guðmundur Ævar. Hann segir að frekari rann­ sóknir þurfi til hér á landi á högum láglaunafólks og frekari stéttarann­ sóknir. n Sammála Sólveigu um stéttamismunun Guðmundur Ævar Oddsson, prófessor í fé- lagsfræði við HA 14. janúar 2023 Laugardagur6 Fréttir Fréttablaðið

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.