Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 16
Við sem vorum þarna
og lentum í þessu
vorum bara venjulegt
fólk.
Snorri Þrastarson vann hetju-
dáð þegar skotárás var framin
í verslunarmiðstöðinni Field’s
þann 3. júlí í fyrra. Nú, sex
mánuðum síðar, lítur hann til
baka og veltir fyrir sér hvað
hann hafi lært af árásinni,
hvað hafi breyst í lífi hans,
og tjáir sig um vináttu sína
við konu sem hann bjargaði
þennan dag.
Ég er bara í mínu daglega
amstri. Það er lítið búið að
breytast hjá mér. Ég er enn
þá bara að hugsa um mína
fjölskyldu, að sjá um mín
börn,“ segir Snorri Þrastarson hálfu
ári eftir skotárás í Kaupmannahöfn
þar sem hann kom fjölda fólks í
öruggt skjól og bjargaði konu sem
hafði verið skotin.
Snorri er Íslendingur sem er
búsettur í Svíþjóð og starfar í Dan-
mörku. Fjölskylda hans hefur rekið
KFC í Danmörku um árabil, og þar
starfar hann til að mynda við inn-
kaup og starfsmannamál.
Daginn örlagaríka í júlí var hann
staddur á KFC í verslunarmiðstöð-
inni Field’s. Á venjulegum sunnudegi
hefði hann ekki verið á þeim stað á
þessum tíma, en vegna stórtónleika
sem áttu að fara fram í grenndinni
þetta kvöld var meira að gera í þessu
tiltekna útibúi.
„Maður getur ekki undirbúið sig
fyrir þennan atburð í einu eða neinu.
Maður getur ekki menntað sig fyrir
svona lagað,“ segir hann. „Við sem
vorum þarna og lentum í þessu
vorum bara venjulegt fólk.“
Einn árásarmaður hóf skothríð og
endaði á að drepa þrjá og særa fjóra
alvarlega. Í viðtali við Fréttablaðið
nokkrum dögum eftir árásina lýsti
Snorri viðbrögðum sínum. Hann
heyrði hvell og í kjölfarið öskur.
Hann hjálpaði fólki að koma sér
fyrir í bakherbergjum og skrifstofum
KFC-staðarins og telur að þar hafi
verið fimmtíu til sextíu manns.
Síðan ákvað Snorri að taka málin í
sínar hendur og fór á flakk um versl-
unarmiðstöðina. Þar sá hann til að
mynda fólk frosið af hræðslu og sjálf-
an árásarmanninn í mikilli fjarlægð.
Þá kom hann, ásamt fjórum öðrum,
að konu sem hafði verið skotin og
ungri stúlku sem var látin.
Þeim tókst að hlúa að konunni,
með því að stoppa blæðingu úr læri
og halda henni vakandi. Síðan, þegar
viðbragðsaðilar komu á vettvang,
hjálpaði Snorri við að búa að sárum
konunnar. Að lokum skildu leiðir
þeirra þegar konan var flutt á brott
með sjúkrabíl.
Þurfti að grípa til aðgerða
„Maður spyr sig: Gerði maður virki-
lega það sem maður gerði?“ segir
Snorri. Þó líkir hann atburðunum
að einhverju leyti við dag í vinnunni.
„Ég lít eiginlega svolítið á þetta eins
og venjulegan vinnudag þar sem
það var mikið að gera, mikið álag. Ég
þurfti bara að gera þetta,“ segir hann.
„En það viðhorf á við um mig,
það er ef laust ekki staðan hjá
öðrum,“ segir Snorri sem telur að
margir þeirra sem lentu í árásinni
og aðstandendur þeirra líti þennan
dag allt öðrum augum.
Stundum segist hann velta fyrir
sér hvort hann hefði getað gert
meira. „Ég hugsa til þeirra sem létust.
Hvar voru þeir? Maður á auðvitað
ekki að hugsa þetta, en hefðum við
getað bjargað, einum í viðbót, tveim-
ur eða þremur?“ spyr hann sig.
Snorri segist hafa rætt um þetta í
skýrslutöku hjá lögreglu. Lögreglu-
þjónninn hafi sagt honum að pæla
ekki í þessu. „En þessi hugsun kemur
upp inni á milli,“ segir hann og bætir
við: „Maður verður bara að læra af
þessu og vera ánægður með það sem
maður gerði.“
Þrátt fyrir það vill hann meina
að atburðirnir hafi tekið merkilega
lítið á sig. Honum finnst sérstakt að
hann hugsi ekki um atburðarásina
klukkutímum saman. „Það er eng-
inn kvíði þegar ég fer að sofa,“ segir
hann.
Ætti ég að vera niðurbrotinn?
Fólki sem var í Field's þann 3. júlí
árið 2022 var boðið upp á áfalla-
hjálp sem Snorri sótti. Þar segist
hann hafa spurt sálfræðing hvort
sér ætti ekki að líða verr með það
sem átti sér stað.
„Ætti ég ekki að vera niður-
brotinn? Ætti ég ekki að vera með
stærsta PTSD sem fyrirfinnst?“ seg-
ist hann hafa spurt sálfræðinginn
sem hafi svarað með því að benda
á að fólk bregðist á ólíkan hátt við
áföllum.
„Ef það sama kemur fyrir hundrað
manns þá geta komið hundrað mis-
munandi viðbrögð,“ segir hann sál-
fræðinginn hafa útskýrt fyrir sér.
Snorri segist ekki hafa leitað sér
frekari hjálpar.
Þó minnist hann útskýringar sál-
fræðingsins á þremur hópum sem
fólk skipist í í erfiðum aðstæðum
líkt og þeim sem Snorri lenti í.
„Það eru þeir sem eru hræddir
og hlaupa í burtu. Síðan eru það
þeir sem eru hræddir og frjósa. Og í
þriðja lagi eru það þeir sem ákveða
að gera eitthvað í þessu, hvort sem
það er heimskulegt eða ekki, en þeir
geta alveg verið hræddir líka.“
Samkvæmt sálfræðingnum til-
heyrir Snorri síðastnefnda hópnum.
„Af einhverri ótrúlegri ástæðu til-
heyri ég þessum síðasta þriðjungi.
Mann hafði ekki órað fyrir því. Auð-
vitað hafði maður vonast til þess
þegar maður var að horfa á teikni-
myndir eins og Transformers þegar
maður var lítill, en ég bjóst ekki við
því.“
Honum skilst að heilinn í sumum
Konan á lífi vegna þess sem hann gerði
Jón Þór
Stefánsson
jonthor
@frettabladid.is
Það var ekki
vaninn að Snorri
væri staddur í
Field’s á sunnu-
degi líkt og þann
örlagaríka dag,
3. júlí í fyrra.
Þá hóf maður
skotárás í versl-
unarmiðstöð-
inni og Snorri
bjargaði meðal
annars konu
sem hafði orðið
fyrir tveimur
skotum.
Mynd/BryndÍs
ÞorsteinsdÓttir
14. janúar 2023
Laugardagur16 Helgin FrÉttablaðið