Fréttablaðið - 14.01.2023, Side 18

Fréttablaðið - 14.01.2023, Side 18
Það sem ég hef lært sem „freelance“ leikari er að maður verður að vera duglegur að búa sér til sitt eigið efni. Það þýðir ekkert að sitja heima og bíða eftir að fá eitthvað upp í hendurnar. Ingi hefur starfað sem leikari í tæplega fjórtán ár, eða allt frá árinu 2009. fréttablaðið/ sigtryggur ari Að sögn Inga var leikstjóri myndarinnar, Max Gold, afar heillaður af íslensku landslagi, það varð til þess að myndin var tekin upp hér. Hér má sjá þau Guðmund Inga Þorvaldsson, Bertu Andreu Snædal, Max og Inga Hrafn. mynd/aðsend Leikarinn Ingi Hrafn Hilm- arsson hefur verið starfandi í leiklistarbransanum í tæp- lega fjórtán ár. Í sumar kemur út hans veigamesta verkefni til þessa, kvikmyndin Fanga, sem byggir á ævintýrinu um Fríðu og dýrið. Ég lærði leiklist í London frá 2006 til 2009 í skóla sem heitir Rose Bruford College og í beinu fram- haldi af útskrift kem ég heim og byrja að vinna sem „freel- ance“ leikari. Til að byrja með var ég meira í leikhúsunum að vinna, skrifa leikrit og setja upp leiksýn- ingar, en svona í seinni tíð hef ég fært mig meira út í kvikmyndir og auglýsingar, að leika, framleiða og leikstýra. Þannig að ég hef komið víða við síðustu árin,“ segir leikar- inn Ingi Hrafn Hilmarsson. Í sumar kemur út hans veigamesta verkefni hingað til, kvikmyndin Fanga, en auk þess að leika annað aðalhlut- verk myndarinnar er hann einnig framleiðandi. Heillaður af töfrum leikhússins Að sögn Inga stóð leiklistin alltaf nærri hjarta hans, allt frá barns- aldri. Hins vegar hafi það tekið hann dágóðan tíma að átta sig á því hvað hann virkilega langaði til að gera. „Ég var búinn að prófa alls konar, til dæmis fór ég í Iðnskólann í Hafn- arfirði að læra trésmíði. Ég átti tvö ár eftir þegar ég fann að þetta var ekki alveg það sem ég vildi gera. Svo prófaði ég líka að fara í íþrótta- fræði þar sem ég hef mikinn áhuga á íþróttum, fótbolta sérstaklega, en fann mig ekki alveg þar,“ segir Ingi og heldur áfram: „Þá fór ég að hugsa til baka, hvað það var sem heillaði mig alltaf svo mikið og leikhúsið kom strax upp í hugann. Ég var duglegur að fara í leikhús þegar ég var lítill og heill- aðist mikið af þessum svokölluðu leikhústöfrum sem maður upplifir í barnaleikhúsi.“ Í kjölfarið hafi hann skráð sig á leiklistarnámskeið og segir Ingi að þá hafi eitthvað smollið hjá honum. „Ég hugsaði: Þetta er það sem ég vil gera til framtíðar. Út frá því var stefnan sett á leiklistina. Ég fer út í nám, útskrifast og hér er ég í dag,“ segir Ingi. Ingi segir leiklistarbransann harðan bransa og að erfitt sé að lifa á leiklistinni einni saman. Íslend- ingar eigi svo mikið af hæfileika- ríku fólki og margir séu að berjast um sömu bitana. „Það er náttúrulega hark að vera í þessu, en það sem ég hef lært sem „freelance“ leikari er að maður verður að vera duglegur að búa sér til sitt eigið efni. Það þýðir ekkert að sitja heima og bíða eftir að fá eitthvað upp í hendurnar. Maður verður að hugsa fram í tímann, hvað vil ég gera og hvernig á ég að fara að því. Það er kannski „bjútíið“ við það að vera „freelance“, maður getur svolítið valið hvað maður vill gera hverju sinni. En ég er alltaf með allar klær úti,“ segir Ingi. Gåsmamman í uppáhaldi Unnendur sænska spennuþáttarins Gåsmamman, eða Gæsamamman, sem sýndur var á Stöð 2 kannast ef laust við Inga. Þar var hann í hlutverki glæpamannsins Hrafns, sem gerði allt vitlaust í þriðju þátta- röðinni. „Við vorum tveir íslenskir leik- arar sem fórum þarna út, ég og Guðmundur Ingi Þorvaldsson, en við lékum íslenska glæpona í Stokk- hólmi. Þetta er svakalega stórt bat- terí þessir þættir, en ég held að sjötta sería sé í sýningu núna. Upp á sýnileika er þetta eitt stærsta verk- Besta hlutverkið að vera fjölskyldufaðir Erla María Davíðsdóttir erlamaria@ frettabladid.is efnið sem ég hef tekið þátt í og eitt af mínum uppáhalds hingað til,“ segir Ingi. Í sumar kemur út bíómyndin Fanga, sem Ingi segir að sé eitt veigamesta verkefni sem hann hafi tekið þátt í á sínum ferli. Söguþráð- urinn byggir á ævintýrinu um Fríðu og dýrið, en auk þess að framleiða myndina leikur Ingi annað aðal- hlutverkið, dýrið sjálft. Myndin var tekin upp á Íslandi sumarið 2019 og segir Ingi handrits- höfund og leikstjóra myndarinnar, Max Gold, hafa fallið fyrir landi og þjóð á ferðalagi sínu um Ísland fyrir nokkrum árum. „Max kemur fyrst hingað til lands til að skoða landslagið og var alltaf með þetta handrit í huga og hvort hann gæti tekið upp hér. Hann heillaðist af Íslandi og ákvað í þeirri ferð að halda prufur fyrir íslenska leikara. Hann var þá búinn að halda prufur úti í Bandaríkjunum, en þegar hann kom heim og fór yfir allar prufurnar small þetta hjá honum og hann tók ákvörðun um að taka myndina upp hér,“ segir Ingi. Þrátt fyrir að myndin sé á alfarið á ensku eru allir leikararnir íslensk- ir, en að sögn Inga var það meðvituð ákvörðun leikstjórans. „Sögusviðið er Ísland á víkinga- tímanum, í kringum árið 800. Max var búinn að vera að horfa á þættina Vikings og vildi fá þennan íslenska grófleika í enska hreimnum. Þetta er úrvalslið af leikurum sem er þarna með mér og maður vonar bara að þetta eigi eftir að heilla áhorfendur,“ segir Ingi. Að sögn Inga er Fanga í söluferli í Bandaríkjunum um þessar mundir og því ekki komið á hreint hvar hún verður tekin til sýningar fyrir almenning. „Til þess að stýra væntingum er þetta „low budget“ bíómynd og fólk þarf að hafa það svolítið bak við eyrað þegar það horfir á hana. Hún hefur þó farið á þó nokkrar kvikmyndahátíðir, meðal annars í Bandaríkjunum og Brasilíu, og almennt fengið góða dóma. En ég er gríðarlega stoltur af þessu verk- efni og öllum sem tóku þátt í því,“ segir Ingi. Fyrst og fremst fjölskyldufaðir Að sögn Inga hefur líf hans sem leikara breyst talsvert á þessum tæplega fjórtán árum sem hann hefur verið starfandi, þá mest þegar hann varð faðir. „Áður en drengirnir mínir tveir fæddust var maður duglegur að búa til efni, jafnvel langt fram eftir kvöldi að búa til söluvöru eða skapa eitthvað skemmtilegt. En það hefur breyst, það er minni tími til að skjótast til útlanda og taka þátt í einhverjum lengri verkefnum þar. Það fer meiri orka í að vera heima og vera fjölskyldufaðir,“ segir Ingi. „Maður vaknar fyrir allar aldir og er helst kominn upp í rúm klukkan tíu að kvöldi til þess að vakna snemma og vera tilbúinn í daginn. En það er samt mitt besta hlutverk, af öllu því sem ég hef gert, að vera fjölskyldufaðir,“ bætir hann við. Ingi segist sjaldnast sitja auðum höndum, hvort sem er í leik eða starfi. Hann er með mörg járn í eldinum þessa dagana, en hann er meðal annars að vinna að tónlist fyrir barnaleikrit og skrifa handrit. „Ég hef gaman af svo mörgu og er alltaf að pæla eitthvað og gera eitt- hvað. Ég væri mikið til í að leikstýra meira, færa mig inn í leikhúsin og nýta krafta mína þar. Svo hef ég rosa gaman af því að smíða, en ég fór á sínum tíma í húsasmíði. Ég hafði plön um að smíða garðhúsgögn við tækifæri, ef ég kemst einhvern tímann í það,“ segir Ingi. „Það gefur mér svo mikið að búa eitthvað til, að skapa, og ég finn að ég verð svolítið órólegur ef ég er ekki í einhverju verkefni. Ég þarf alltaf að vera með puttana í ein- hverju, hvort sem það er að leika eða skrifa. En maður veit ekkert hvert tíminn og lífið leiðir mann, og það er aldrei að vita nema maður geri eitthvað allt annað en ég hef verið að gera,“ bætir hann við. n 14. janúar 2023 Laugardagur18 Helgin FrÉttaBlaðið

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.