Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 19

Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 19
KYNN INGARBLAÐ ALLT LAUGARDAGUR 14. janúar 2023 Alla daga gegn kulda og sól Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup www.celsus.is Jónína Birna segir að Nourkrin hafi reynst einstaklega vel fyrir bæði konur og karla. „Árangur í prófunum hefur verið ótrúlega góður,“ segir hún. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK Nourkrin vinnur gegn hárlosi Nourkrin hefur fengist á Íslandi frá árinu 2018 og hjálpað fjölda manns sem hafa glímt við mikið hárlos. Rannsóknir sýna að einstakt innihaldsefni í Nourkrin stöðvar/minnkar hár- los, eykur hárvöxt og gerir hárið mun líflegra. 2 Geggjað snarl yfir handboltaleiknum. starri@frettabladid.is Stór hluti landsmanna mun án efa fylgjast með strákunum okkar á HM í handbolta í kvöld og á mánu- dag. Hér er skotheld uppskrift að handboltaeðlu sem er í senn ljúf- feng og saðsöm. Handboltaeðla 900 g nautahakk 2 jalapeno, fræhreinsuð og skorin smátt 1 laukur, saxaður smátt 4 hvítlauksgeirar, saxaðir smátt 2 tsk. hveiti 2 tsk. salt 1 tsk. svartur pipar 1 tsk. cayenne-pipar 2 bollar kjúklingasoð 1 bolli tómatar úr dós (saxið niður) 1 msk. Dijon-sinnep 1 tsk. Worcestershire-sósa 1 bolli Cheddar-ostur Steikið hakkið á pönnu með jala- peno, lauk og hvítlauk ásamt salti, pipar og cayenne-pipar. Bætið næst út í kjúklingasoði, tómötum, sinn- epi og Worcestershire-sósu. Sjóðið í um 25 mínútur. Hellið í eldfast mót og stráið ostinum yfir. Setjið undir grill þar til ostur er fallega brúnn. Borið fram með kartöflu- flögum, kexi eða þunnt skornu snittubrauði. n Handboltaeðla sem hittir í mark

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.