Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 25
www.fsre.is
AÐSTAÐA
Í ALLRA ÞÁGU
FRAMKVÆMDASÝSLAN
- RÍKISEIGNIR
FSRE.IS
• Háskólapróf sem nýtist í starfi, s.s. á sviði viðskipta eða fjármála
• Meistaragráða í fjármálum fyrirtækja eða endurskoðun er kostur
• Leiðtogahæfileikar og farsæl stjórnunarreynsla ásamt reynslu af því að leiða breytingar
• Þekking og reynsla af fjármálastjórn og stefnumörkun á sviði fjármála
• Reynsla af áætlanagerð, fjárhagslegum greiningum og rekstrar- og verkbókhaldi
• Reynsla af fjármögnun framkvæmda eða eignastýringu er kostur
• Þekking á opinberri stjórnsýslu og opinberum fjármálum er kostur
• Þekking eða reynsla af stafrænni þróun er kostur
Nánari upplýsingar um starfið og hæfniskröfur má finna á www.intellecta.is
Helstu menntunar- og hæfniskröfur
FRAMKVÆMDASTJÓRI FJÁRMÁLA
OG STAFRÆNNA INNVIÐA
Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir (FSRE) óskar eftir að ráða öfluga og framsýna
manneskju í stöðu framkvæmdastjóra fjármála og stafrænna innviða. Við
leitum að drífandi leiðtoga sem hefur færni til að leiða metnaðarfullan
hóp fagfólks til árangurs. Við bjóðum upp á frábæran vinnustað í stöðugri
framþróun og tækifæri til að taka þátt í að auka velsæld og verðmætasköpun
í íslensku samfélagi.
Undir svið fjármála og stafrænna innviða falla fjárhagsleg stjórnun og reiknings-
hald, launavinnsla og verkbókhald, rekstur skrifstofu, rekstur og þróun
stafrænna innviða og gæða- og ferlamál. Sviðið gegnir stoðhlutverki þvert
á FSRE og sinnir jafnframt formlegri skýrslugerð til ytri aðila. Framkvæmda-
stjóri sviðsins situr í framkvæmdastjórn FSRE og er jafnframt staðgengill
forstjóra.
UMSÓKNARFRESTUR ER TIL OG MEÐ 30. JAN
Öll áhugasöm eru hvött til að sækja um. Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is
Nánari upplýsingar í síma 511 1225:
Thelma Kristín Kvaran, thelma@intellecta.is
Við hjá FSRE mótum og rekum
aðstöðu sem nýtist öllum íbúum
landsins með einum eða öðrum
hætti. Við önnumst fasteignir og
jarðir ríkisins, öflum húsnæðis og
stýrum framkvæmdum við breyt-
ingar, endurbætur og nýbyggingar.
FSRE heldur utan um stærsta
fasteignasafn landsins sem
samanstendur af 530 þúsund m²
húsnæðis í 380 eignum auk um
300 jarða og landsvæða. Við
vinnum jafnframt að fjölbreyttum
fasteignaþróunarverkefnum sem
snerta flest svið mannlífsins s.s.
heilbrigðis- og velferðarmál,
menningu, menntun, dómskerfi,
löggæslu, náttúru og friðlýst svæði.
Hjá FSRE starfa 74 sérfræðingar
með breiða þekkingu á sviði
fasteignaþróunar, framkvæmda
og rekstrar. Við erum spennandi
vinnustaður á fleygiferð inn í
framtíðina, bjóðum upp á verk-
efnamiðað vinnuumhverfi og
sveigjanlegan vinnutíma. Við
leggjum áherslu á að styðja
starfsfólk okkar í þekkingaröflun,
m.a. í gegnum alþjóðlegt
tengslanet. Við bjóðum upp á
markvissa stjórnendaþjálfun,
brennum fyrir jafnrétti, frábærri
vinnustaðamenningu og
fjölskylduvænum vinnustað.
Móberg: LOOP Architects
Umsjón með starfinu hafa Jensína K.
Böðvarsdóttir (jensina@vinnvinn.is) og
Margrét Stefánsdóttir (margret@vinnvinn.is).
Heimilistæki fagnaði á síðasta ári 60 ára
afmæli, en fyrirtækið hefur verið leiðandi í
innflutningi og sölu á raf- og heimilistækjum
um árabil. Stefna Heimilistækja er að hjá
fyrir tækinu starfi metnaðarfullt og þekkingar-
sækið starfsfólk og leggur fyrirtækið áherslu
á jákvætt og vinalegt starfsumhverfi.
Í janúar 2022 hlaut Heimilistæki viður-
kenningu fyrir að mælast með ánægðustu
viðskiptavinina á raftækja markaði.
Auk fimm verslana Heimilistækja um allt
land, eru Tölvulistinn, Rafland, Byggt og
búið, Kúnígúnd, @tt.is og heildsalan Ásbjörn
Ólafsson í sam stæðunni. Heildarfjöldi starfs-
fólks er um 200, þar af tæpur helmingur í
hluta starfi.
Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt
kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir
ástæðu umsóknar og rökstuðningur um
hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Mannauðsstjóri
Heimilistæki leita að öflugum mannauðsstjóra til að leiða einstakan hóp starfsmanna. Um er að
ræða krefjandi starf í líflegu umhverfi. Viðkomandi þarf að búa yfir forystuhæfni, samskiptafærni
og frumkvæði til að ná árangri í starfi.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Ábyrgð og framkvæmd á mótun stefnu í mannauðsmálum.
• Yfirumsjón með fræðslumálum og starfsþróun.
• Ráðningar, móttaka nýliða og nýliðaþjálfun í samstarfi við stjórnendur.
• Hagnýting mannauðsmælikvarða sem styðja við ákvarðanatöku.
• Ábyrgð á þróun, innleiðingu og nýsköpun á sviði mannauðsmála.
• Ábyrgð á jafnlaunastaðli og eftirfylgni.
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi. Framhaldsmenntun á sviði mannauðsmála kostur.
• Þekking og marktæk reynsla á sviði mannauðsmála.
• Framúrskarandi samskiptafærni og jákvætt viðhorf.
• Reynsla af umbótaverkefnum, teymisvinnu og breytingastjórnun er kostur.
• Frumkvæði og fagleg vinnubrögð.
• Drifkraftur og metnaður til að ná árangri.
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar nk.
Sótt er um starfið á www.vinnvinn.is.
ATVINNUBLAÐIÐ 3LAUGARDAGUR 14. janúar 2023