Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 32
Við hjá deild Þróunar vatnsafls hjá Landsvirkjun leitum að sérfræðingi sem hefur
þekkingu og áhuga á jarðtækni. Við rekum fjölmargar jarðvegsstíflur, göng og
skurði og öryggi þessara mannvirkja er ein af megin áherslum í rekstri fyrirtækisins.
Helstu verkefni:
– Hafa umsjón og eftirlit með mælakerfum stíflueftirlits, úrvinnslu mæligagna
og sértækum greiningum
– Vakta ástand og öryggi jarðvegsstíflna
– Taka virkan þátt í teymi stífluöryggis
Hæfni og reynsla:
– Grunnmenntun á háskólastigi á sviði jarðeðlisfræði, jarðfræði
eða byggingarverkfræði
– Reynsla af uppsetningu og rekstri mælitækja ásamt úrvinnslu gagna
– Reynsla af umsjón og þátttöku í verkefnum á sviði jarðtækni
– Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna í þverfaglegum hópum
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar
Sótt er um starfið á vef Landsvirkjunar
landsvirkjun.is/laus-storf
Starf
Hefurðu gaman
af jarðvegsstíflum?
Landsvirkjun er orkufyrirtæki í eigu íslensku þjóðarinnar og vinnur rafmagn úr
endurnýjanlegum orkugjöfum, vatnsafli, jarðvarma og vindi. Hjá fyrirtækinu starfa rúmlega
300 manns, víða um land. Fyrirtækið hefur metnaðarfulla jafnréttis- og mannauðsstefnu,
hugar að vellíðan starfsfólks og leggur áherslu á að viðhalda orkumikilli fyrirtækjamenningu.
Fasteignasalar óskast til starfa
Fasteignasali - skjalagerð
Við óskum eftir að ráða til starfa reyndan fasteignasala til að
annast skjalagerð. Í starfinu felst gerð kaupsamninga, uppgjöra
og allra skjala sem tengjast sölu fasteigna.
Starfssvið
• Ábyrgð á skjalagerð, uppgjörum, samskipti við viðskiptavini.
Hæfniskröfur
• Löggilting til sölu fasteigna.
• Reynsla af skjalagerð.
• Lipurð í samskiptum og góðir skipulagshæfileikar.
• Sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Hreint sakavottorð.
Fasteignasali – sala fasteigna
Við óskum eftir að ráða fasteignasala til að annast sölu fast-
eigna. Viðkomandi þarf að vera löggiltur fasteignasali eða í
námi til löggiltingar. Spennandi verkefni eru framundan. Starfssvið
• Sala fasteigna, samskipti við viðskiptavini.
Hæfniskröfur
• Reynsla af sölu fasteigna.
• Löggilting fasteignasala eða vera í námi til löggiltingar.
• Gott skipulag og sjálfstæði í starfi.
• Eiga auðvelt með mannleg samskipti.
• Hreint sakavottorð
Heimili fasteignasala er rótgrón og traust fasteignasala sem
byggir á áratuga reynslu. Fasteignasalan er staðsett í björtu og
fallegu húsnæði við Grensásveg 3, miðsvæðis í Reykjavík. Mjög góð vinnuaðstaða og jákvætt starfsumhverfi.
Þeir sem hafa áhuga vinsamlegast sendið inn umsókn með
upplýsingum um menntun og fyrri störf til Finnboga Hilmars-
sonar, fasteignasala, á netfangið finnbogi@heimili.is Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Öllum umsóknum verður svarað.