Fréttablaðið - 14.01.2023, Page 37
Hrunamannahreppur er þekktur fyrir
veðursæld allt árið um kring.
Sólríkir, heitir og notalegir sumardagar eru freistandi
en fallegir dagar í froststillu á Flúðum eru einnig
heillandi.
Í Hrunamannahreppi eru íbúar um 880.
Á Flúðum býðst íbúum öll nauðsynleg þjónusta.
Leik-, grunn- og tónlistarskóli er á staðnum.
Einstakur golfvöllur, sundlaug, íþróttahús og góðar
gönguleiðir. Hótel, veitingastaðir og verslanir.
Í Hrunamannhreppi blandast sveitin og þéttbýlið með
skemmtilegum hætti og þar má upplifa takt bænda-
samfélagsins í bland við góða þjónustu þéttbýlisins.
Á Flúðum eru til úthlutunar eftirfarandi lóðir við Fannborgartanga:
4 lóðir fyrir parhús
2 lóðir fyrir 4 íbúða raðhús
2 lóðir fyrir 3 íbúða raðhús
3 lóðir fyrir einbýlihús.
Úthlutun fer fram á fundi sveitarstjórnar þann 2. febrúar 2023. Umsóknir berist í síðasta lagi 30. janúar. Við úthlutun verður farið
eftir reglum Hrunamannahrepps um úthlutun lóða. Vakin er athygli á að lóðirnar verða byggingarhæfar í júní næstkomandi.
Nánari upplýsingar um lóðir, gjöld, skilmála og umsóknareyðublöð er að finna á heimasíðu Hrunamannahrepps, www.fludir.is
og hjá sveitarstjóra í síma 488-6600 eða tölvupósti á hruni@fludir.is
Sveitarstjóri
VILTU NJÓTA VEÐURSÆLDAR EINS OG HÚN GERIST BEST!
SVIÐSSTJÓRI MANNAUÐS
VIRK Starfsendurhæfingarsjóður leitar að öflugum og reynslumiklum aðila í
starf sviðsstjóra mannauðs. Um er að ræða mjög krefjandi starf sem unnið
er í nánu samstarfi við framkvæmdastjóra VIRK sem og aðra stjórnendur.
Verkefnin eru afar fjölbreytt og varða m.a. mannauðsþróun starfsfólks og
ráðgjafa VIRK sem og þróun gæðakerfis mannauðsmála ásamt því að bera
ábyrgð á þjónustuveri VIRK.
Sviðsstjóri mannauðs heyrir beint undir framkvæmdastjóra.
Helstu verkefni
• Þróun og framkvæmd mannauðsmála starfsmanna og ráðgjafa VIRK í
samstarfi við stjórnendur innan og utan VIRK
• Að stuðla að góðum starfsanda og velferð starfsmanna í samstarfi við
aðra stjórnendur
• Stefnumótun, áætlanagerð og umbótastarf
• Aðstoð og ráðgjöf í mannauðsmálum
• Gerð og viðhald gæðaferla um mannauðsmál
• Yfirumsjón með jafnlaunavottun
• Upplýsingagjöf og skráning
• Umsjón með þjónustuveri VIRK s.s. þróun, umbótastarf og
starfsmannamál
• Önnur verkefni sem honum eru falin af framkvæmdastjóra
Menntunar- og hæfnikröfur
• Stjórnunarreynsla
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Leiðtoga- og stjórnunarhæfni
• Framhaldsmenntun sem nýtist í starfinu er kostur
• Framúrskarandi samskiptahæfni, frumkvæði og metnaður
• Þekking á gæðakerfum er kostur
• Gott vald á íslensku og ensku, bæði í ræðu og riti
• Mjög góð tölvukunnátta
Hlutverk VIRK er að efla starfsgetu einstaklinga með heilsubrest sem
stefna að aukinni þátttöku á vinnumarkaði.
VIRK hefur í samstarfi við fagaðila, fyrirtæki og stofnanir skilað sam-
félagslegum ávinningi með aukinni þátttöku einstaklinga á vinnumarkaði
og er leiðandi í rannsóknum og þróun á sviði starfsendurhæfingar.
Að VIRK standa öll helstu samtök launamanna og atvinnurekenda á
vinnumarkaði.
VIRK er metnaðarfullur vinnustaður þar sem lögð er áhersla á jákvæðan
starfsanda og sterka liðsheild. VIRK kappkostar að skapa jákvæða menningu
með traustu fagfólki. Gildi VIRK eru fagmennska, virðing og metnaður og
er starfsfólk hvatt til að hafa gildin að leiðarljósi í störfum sínum.
Upplýsingar veitir
Geirlaug Jóhannsdóttir
geirlaug@hagvangur.is
Umsóknarfrestur er til og með
18. janúar 2023.
Umsóknir óskast fylltar út á
hagvangur.is
Umsókn þarf að fylgja starfsferilskrá og einnar
blaðsíðu kynningarbréf þar sem á kerfisbundinn
hátt er gerð grein fyrir því hvernig viðkomandi
uppfyllir hæfnikröfur starfsins.
ATVINNUBLAÐIÐ 15LAUGARDAGUR 14. janúar 2023