Fréttablaðið - 14.01.2023, Síða 60
Hann er svaka vinsæll
og þeir bræður eru
náttúrulega búnir að
selja yfir milljón plötur
og enn þá algjörar
stórstjörnur.
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050: Auður Húnfjörð audur@
frettabladid.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrir@frettabladid.is , Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078:
Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Kolbeinn Kolbeinsson kolbeinn@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir ruth@frettabladid.is
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is TÍMAMÓTA- OG
ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
Ólafur býður í Olsen-veislu
Friðrik Ómar Hjörleifssons stóðst ekki mátið og fékk mynd af sér með Ólafi Laufdal. MyND/AÐSEND
Olsen-bræð-
urnir á sviði í
Stokkhólmi
árið 2000.
Einn reynslumesti veitinga-
maður landsins, Ólafur Lauf-
dal í Grímsborgum, býður
landsmönnum upp á Euro-
vision-sigurvegarann Jørgen
Olsen á bóndadagshelginni.
Ólafur segist mikill aðdáandi.
odduraevar@frettabladid.is
Hinn 78 ára gamli Ólafur Laufdal,
veitingamaður í Grímsborgum,
býður hinn eina sanna danska tón-
listarmann Jørgen Olsen velkominn
til landsins um næstu helgi, sjálfa
bóndadagshelgina.
„Þessir tónleikar áttu að vera
fyrir kófið en svo var náttúrulega
öllu lokað úti í Danmörku, þannig
að Olsen komst hvorki út né inn og
við höfðum því þurft að fresta þessu
þar til núna,“ segir Ólafur.
Jørgen er líklega þekktastur fyrir
að hafa sigrað í Eurovision-söngva-
keppninni árið 2000 í Stokkhólmi.
Þar steig hann á svið ásamt bróður
sínum Niels Olsen þar
sem þeir sungu
frumsamið
l ag s it t ,
Fly On the
W i n g s
of Love,
sem upp-
r u nalega
hét á
dönsku Smuk som et stjerneskud.
Niels hefur ekki komið fram síðan
árið 2019 vegna veikinda.
„Þannig að þetta áttu í rauninni
að vera 20 ára afmælistónleikar,“
segir Ólafur, sem sjálfur hefur verið
í veitinga- og hótelbransanum síðan
hann var 12 ára gamall, yfir 60 ár.
Hann er öllum hnútum kunnugur
þegar kemur að því að skipuleggja
viðburð líkt og þennan.
„Ég hef, sjáðu til, f lutt inn yfir
áttatíu heimsþekkt númer hér á
landi, meðal annars á Hótel Ísland
og á Broadway á sínum tíma. Ég
flutti inn meira af tónlistarmönn-
um en nokkur annar hefur gert á
landinu,“ segir Ólafur.
„Það var fjöldinn allur af heljar-
mennum eins og Jerry Lee Lewis,
Fats Domino og Tom Jones,“ segir
Ólafur sem sendi blaðinu lista yfir
tónlistarmenn sem hann hefur
f lutt inn, lista sem er bæði langur
og glæsilegur.
„Hinn Olsen-bróðirinn er orðinn
veikur og er hættur að spila. En Jør-
gen samdi lögin og er aðalröddin.
Hann er enn að spila á fullu úti um
allan heim. Hann er svaka vinsæll
og þeir bræður eru náttúrulega
búnir að selja yfir milljón plötur og
enn þá algjörar stórstjörnur.“
Ólafur viðurkennir að hann sé
Eurovision-aðdáandi. „Ég
er það og horfði auðvitað
þegar þeir sigruðu í keppn-
inni á sínum tíma. Svo
ber maður taugar til
Danmerkur, Kim Lar-
sen kom til dæmis
tvisvar til landsins
á sínum tíma á mínum vegum.“
Ólafi fannst ekki nóg að bjóða
upp á eina tónleika heldur mun
Olsen-bróðirinn spila á sjálfan
bóndadag, föstudagskvöldið 20.
janúar, og svo aftur laugardags-
kvöldið 21. janúar á fimm stjörnu
hótelinu.
Ólafur viðurkennir að hann sé
frekar spenntur fyrir tónleikunum.
„Ég get ekki ímyndað mér annað en
að þetta verði bara gríðarlega gott
og skemmtilegt,“ segir Ólafur. Hann
svarar því játandi að rómantíkin
verði eflaust svífandi yfir vötnum á
Hótel Grímsborgum um
næstu helgi. „Það held
ég nú!“ segir Ólafur
hlæjandi. n
Á markaðshliðinni vöktu fréttir af
miklum gengishækkunum líftækni-
fyrirtækisins Alvotech athygli mína.
Gengi félagsins hefur verið á miklu
f lugi og hækkaði til að mynda um
9,5 prósent síðastliðinn mánudag og
er félagið nú það stærsta í íslensku
kauphöllinni. Fréttir af nýjum rann-
sóknum, samstarfi á Japansmarkaði
og ólíkum skoðunum markaðsað-
ila á hlutabréfaverði félagsins hafa
verið birtar, nánast upp á dag. Það
verður spennandi að fylgjast með
áframhaldandi gengi félagsins.
Ef svo er svo aðeins litið upp úr
viðskiptasíðunum þá get ég ekki
sleppt því að nefna fréttir af hand-
boltalandsliðinu. Lokamínúturnar
í leiknum gegn Portúgal fengu
eflaust f lesta landsmenn til
að brosa út að eyrum enda
ekkert eðlilega skemmti-
legt að fylgjast með
l iðinu hrök k va í
svona svakalegan
gír og sýna sínar
bestu hliðar. Síðan
s k e m m d i e k k i
fyrir að sjá íslensku
stuðningsmennina
í stúkunni fylla höllina af
söng og lófaklappi.
Þá má líka minnast á
fréttir um brotthvarf
Söru Bjarkar landsliðs-
fyrirliða úr fótbolta-
landsliðinu. Hún er
mögnuð íþróttakona
og skilur eftir sig stórt
spor í íslenskri knatt-
spyrnusögu. n
Rósa Kristinsdóttir, hjá
Vex og Fortuna Invest
Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is
Laser andlitslyfting styrkir húðina með því að örva
nýmyndun kollagens og eykur teygjanleika með því
að bæta elastín. Við það lyftist húðin, andlitslínur
minnka og húðin verður fallegri.
Tryggðu þér tilboðið með því að bóka tíma á
www.hudin.is eða síma 519-3223
30% afsláttur
af laserlyftingu
Verið velkomin!
*gildir til 20. janúar.
*
Lokamínúturnar í
leiknum gegn Portúgal
fengu eflaust flesta
landsmenn til að brosa
út að eyrum.
HVAÐ ER
AÐ FRÉTTA?
Frétt vikunnar |
Ekki hægt að minnast ekki á landsliðið
14. janúar 2023
Laugardagur32 Lífið Fréttablaðið