Fréttablaðið - 14.01.2023, Blaðsíða 64
frettabladid.is
Eftir þinni uppskrift
Njóttu þess að eiga einstakt eldhús sem endurspeglar
þig. Hvort sem þú vilt skipta um eldhús eða færa því nýtt
útlit þá getur samsetning af litum, mynstri og efni haft
meiri háttar áhrif á yfirbragð og andrúmsloft.
Finndu stílinn þinn í fjölbreyttu úrvali!
©
Inter IKEA System
s B.V. 2023
Verslun opin 11-20 alla daga ̵ IKEA.is
GAMLESJÖN
blöndunartæki
19.950,-
ENERYDA
hnúðar, Ø27 mm
950,-/2 í pk.
Skoðaðu
eldhúsframhliðar
hér!
LERHYTTAN skúffuframhlið
B60�H40 cm
7.450,-
LERHYTTAN glerhurð
B40�H80 cm
9.950,-
+
+
+
SKOGSÅ borðplata
L186�D63,5 cm 39.950,-
27.950,-
ÚTSALA
Sparaðu
tímann
og gerðu
einfaldari
innkaup á
netto.is
Innanhússfótbolti er hættulegasta
íþrótt í heimi. Fullorðnir karlar
með mikið keppnisskap bæta fyrir
horfna knatttækni með krafta
stælum og ofbeldi. Slysatíðnin er
há enda menn farnir að þyngjast
og missa oft stjórn á skapi sínu.
Innanhússfótbolti samtímans er
því barnaleikur miðað við átök í
knattleikjum sögualdar sem iðu
lega enduðu með mannvígum.
Egill afi minn Skallagrímsson
var tortrygginn og afbrýðisamur
og treysti engum. Læknar í Borgar
nesi töldu að hann væri illa hald
inn af áfallastreituröskun. Í æsku
Egils gekk á með ýmsu enda var
Skallagrímur faðir hans þekktur
ofbeldismaður. Einhverju sinni
var Egill að knattleikum á ís ásamt
fleiri piltum. Skallagrímur vildi
leika með þeim en reiddist svo
mjög í leiknum að hann tók einn
félaga Egils og drap hann á hroða
legan hátt. Hann ætlaði reyndar að
drepa Egil líka en fóstra hans, Brák,
gat bjargað honum. Skallagrímur
drekkti henni þá í Brákarsundi.
Þetta atvik hafði djúp áhrif á Egil
enda var hann í bráðri lífshættu
þegar Skallagrímur var í þessu
frekjukasti. Egill sat eftir með mar
traðir og önnur einkenni áfalla
streituröskunar sem fylgdu honum
ævina á enda.
Egill sagði síðar að sér hefði þó
sárnað mest þegar Borgnesingar
nefndu ungmennafélag staðarins
Skallagrím. Hann gat aldrei fyrir
gefið þessa smekkleysu og sakaði
heimamenn um gerendameð
virkni. „Nær hefði verið að nefna
félagið eftir Þórði Granasyni sem
kallinn drap,“ sagði hann. Egill
f lutti í ellinni í Mosfellssveit í
mótmælaskyni og sat í stjórn ung
mennafélagsins Aftureldingar til
dauðadags. Hann horfði aldrei á
knattleika í sjónvarpi eftir þetta að
ráði áfallasálfræðinga. n
Egill afi
Óttars
Guðmundssonar
bakþankar |
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
flyPLAY.is
Takk!
Við erum í skýjunum...
...með 1. flugsætið