Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Page 15

Tímarit rafvirkja - 01.10.1951, Page 15
Nokkrar endurminningar Hinn 20. maímánaðar árið 1926 komu nokkrir menn, er stunduðu rafvirkjastörf, saman í húsi K. F. U. M. í Reykjavík. Tilgangur samkomunn- ar var að ræða, þá furðulegu hugmynd, að stofna stéttarfélag í iðn, sem raunverulega var ekki til. Það var ekki fyrr en árið eftir, eða nánar til- tekið um áramótin 1927—28 að rafvirkjastörf urðu löggilt iðn. A fundi þessum var kosin nefnd til að undir- búa stofnun félagsins. Stofnfundinn, sem haldinn var 4. júní, sátu 27 menn og voru sumir, þar á meðal ég, nýliðar í iðninni. Urðu um það allsnarpar umræður, hverjir skyldu tækir í félagið, en að lokum var samþykkt að allir þeir, er mættir voru skyldu teljast fullgildir meðlimir. En síðan teldust þeir einir fullgildir félagar, sem starfað hefðu í 4 ár. Aukameðlimir teldust svo þeir er styttri starfs- tíma hefðu. Fyrstu stjórn félagsins, er þá hét Rafmagnsvirkja félag Reykjavíkur, skipuðu þeir Hallgrímur Bach- man, Guðmundur Þorsteinsson og Ögmundur Sigurðsson. Mikill áhugi ríkti, meðal félagsmanna, um ýms- ar unjbætur, bæði hagsmunalegar og iðnfræði- legar. Strax á öðrum fundi voru tekin til umræðu kaupgjaldsmál og svo væntanleg iðnlöggjöf. Við nýliðarnir í iðninni tókum óspart þátt í félagslífinu, jafnvel þeir, sem takmörkuðu réttindi höfðu í félaginu. Vildum við sýna að rétt hefði verið að hafa okkur með. Fyrstu kaup- og kjarasamningar félagsins voru gerðir við einstaka meistara, en árið 1927 stofn- uðu meistararnir sitt eigið félag og síðan hafa fé- lögin samið sín á milli, þó stundum hafi gengið í brösum. I fyrstu samninganefnd R. V. R. voru kosnir: Guðm. Þorsteinsson, Jónas Guðmundsson, Ög- mundur Sigurðsson, Ágúst Ólafsson og Hafliði Gíslason. Á þeim árum var mikill áhugi fyrir aukinni menntun stéttarinnar og mjög rætt um stofnun bókasafns, þar sem félagsmenn gætu fengið ýms- ar fræðilegar bækur og handbækur sér til upp- byggingar. Einnig var rætt um útgáfu íslenzkrar raffræði- kennslubókar. Nokkrum sinnum var stofnað til námskeiða á vegum félagsins, en árangur varð fremur lítill. Mun það aðallega hafa starfað af of mismun- andi undirstöðuþekkingu þeirra er sóttu nám- skeiðin. Sumum leiddist hægagangurinn og þótti of lengi dvalið við byrjunaratriði, en öðrum þótti of fljótt farið yfir sögu. Fyrsta námskeiðið af þessu tagi, sem ég man eftir, var haldið í húsi Eimskipafélags Islands, en þar hafði R. V. R. tekið stofu á leigu til fundar- halda o. s. frv. Það mun hafa verið í maí-mán. 1930. Fyrstu árshátíð sína hélt félagið í árslok 1930 eða byrjun árs 1931, en áður höfðu verið haldnir nokkrir skemmtifundir. Einhverjir minnisstæðustu atburðir í sögu fé- lagsins, meðan ég var virkur meðlimur þess, eru verkföllin 1936 og 1942. Verkfallið 1936 var ákaflega vel skipulagt. Hafði verkfallsstjórnin bækistöð sína á húsnæði Iðnsambands byggingamanna í Suðurgötu 3 og urðu allir meðlimir félagsins að mæta þar dag- lega, og skiftast á að standa vaktir á vinnustöðv- um víðsvegar um bæinn. Skýrslur voru haldnar um allt er gerðist og nákvæmlega skrifað niður hvenær hver maður kom og fór. Verkfallið 1942, gerðadómslagaverkfallið svo- nefnda, var ekki síður merkilegt. Með gerðar- dómslögunum voru verkföll bönnuð, en fimm félög, Félag járniðnaðarmanna, Prentarafélagið, R. V. R., Félag skipasmíða og Félag bókbind- ara voru þá í verkfalli. Varð því að aflýsa verkföllunum, en menn mættu samt sem áður ekki til vinnu, svo að vinnustöðvunin hélt áfram. Á seinni árum hef ég verið næstum óvirkur meðlimur félagsins og því fylgst minna með störf- um þess. Þó get ég ekki látið hjá líða að geta þess að árið 1943 var stofnaður „sjúkra og elli- tryggingasjóður" félagsins og mun hann nú vera orðinn um 40 þúsund krónur. Að endingu vil ég svo óska félaginu allra heilla, á 25 ára afmælinu, og góðs gengis í framtíðinni. E. Karl Eiríksson TÍMARIT RAFVIRKJA 13

x

Tímarit rafvirkja

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit rafvirkja
https://timarit.is/publication/1766

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.