Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.12.2022, Blaðsíða 22

Víkurfréttir - 07.12.2022, Blaðsíða 22
– segir Jonathan Glenn sem tók við stöðu þjálfara meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá Keflavík fyrir skemmstu en á síðasta tímabili þjálfaði hann meistaraflokk kvenna hjá ÍBV. Glenn, sem er frá Trínidad og Tóbagó, kom til Íslands árið 2014 þegar hann gekk til liðs við Pepsi-deildarlið ÍBV – það var Sigurður Ragnar Eyjólfsson sem fékk Glenn til Eyja en Sigurður, sem er núverandi þjálfari karlaliðs Keflavíkur, var með Eyjaliðið á þeim tíma. Hvernig stendur á því að þú, kom- andi frá Trínidad og Tóbagó, endar á Íslandi af öllum stöðum? „Það er svolítið fyndið því eftir að hafa lokið skólagöngu í Trínidad [High School] fékk ég styrk til að fara til frekara náms í háskóla í Bandaríkj- unum, þar spilaði ég fótbolta og lauk mínu námi. Eftir það fékk ég tæki- færi til að fara í atvinnumennsku í Bandaríkjunum þar sem ég lék í tvö tímabil,“ segir Glenn þegar Víkurfréttir hittu hann á skrifstofu knattspyrnudeildar Keflavíkur við Sunnubraut. „Það er svolítið fyndið en Siggi Raggi var þá að þjálfa ÍBV og það var hann sem samdi við mig og fékk mig hingað. Ég kom til ÍBV árið 2014 og var þar í eitt og hálft tímabil, ég skipti yfir í Breiðablik um mitt tímabil 2015 og lék með þeim í tvö ár en þá fór ég aftur til Banda- ríkjanna.“ Glenn sneri aftur til Ís- lands árið 2018 og gekk þá til liðs við Fylki en hélt aftur til Eyja ári síðar. „Ég vissi þá að ég myndi vilja fara að snúa mér að þjálfun í auknum mæli en ég hafði verið að þjálfa úti í Bandaríkjunum. Svo samhliða síð- ustu árunum mínum hjá ÍBV tók ég að afla mér UEFA-þjálfararéttinda. Þetta er búið að vera skemmtilegt ferðalag en það er mjög ánægjulegt að hafa fengið að þjálfa frá yngri flokkum og upp í meistaraflokk, að fá að kynnast mörgu áhugaverðu fólki og byggja upp sambönd,“ segir Jonathan sem er í dag kvæntur ís- lenskri konu, Þórhildi Ólafsdóttur, og saman eiga þau eina dóttur. „Við hittumst þegar ég kom hingað árið 2014,“ rifjar Jonathan upp. „Hún var leikmaður kvennaliðs ÍBV og við byrjuðum að spjalla, fórum á stefnumót og svo giftum við okkur í Bandaríkjunum árið 2017. Núna eigum við fallega, þriggja ára dóttur, Amelía Grace.“ Þórhildur lék með ÍBV á síðasta tímabili svo það er ekki úr vegi að spyrja hvort hún verði áfram í boltanum. „Hún er að hugsa málið, það er ekki víst. Hún spilaði vel síðasta sumar og naut þess, hún er ekki viss hvort hún haldi áfram. Það er svolítið erfitt að vera með lítið barn þegar við erum bæði á sama tímaplani, allur tíminn fjarri henni. Það var auðveldara úti í Eyjum, þar sem foreldrar Þórhildar gátu hlaupið undir bagga með okkur. Núna erum við að flytja á nýjan stað, hún að byrja í nýjum leikskóla og við hugsum málið.“ Ég spyr Jonathan hvort hann sjái fyrir sér að hann sé kominn til að vera á Íslandi. Eða hvert stefnirðu sem þjálfari? „Þegar maður velur að gera fótbolta að sínum starfsferli þá veit maður aldrei hvert hann tekur mann. Við Þórhildur gerum okkar plön en þau eru sveigjanleg, núna viljum við njóta þess sem við höfum og ein- beita okkur að því – fá að kynnast skemmtilegu og áhugaverðu fólki og halda fótboltaferðalaginu áfram.“ Trínidad og Tóbagó var smæsta þjóðin til að komast á HM ... þar til Ísland sló þeim við Jonathan kemur frá Trínidad og Tóbagó sem eru eyjar í Karabíska hafinu, staðsettar skammt undan ströndu Venesúela í Suður-Am- eríku, með um 1,4 milljónir íbúa. „Flestir búa á eyjunni Trínidad en Tóbagó, sem er minni eyjan, má segja að sé meiri ferðamannastaður,“ segir Glenn. Fótboltinn er vinsæl íþrótt á Trínidad og margir sterkir leikmenn koma þaðan. Sennilega er knatt- spyrnumaðurinn Dwight Yorke þeirra þekktastur en hann gerði garðinn frægan með liðum eins og Manchester United, Aston Villa og Blackburn Rovers. „Dwight Yorke er algjört „legend“,“ segir Glenn með glampa í augum. „Skóladeildin [High School League] er mjög sterk og hún er vinsælli en efsta deildin, margir leikmenn úr henni fara á samning til Bandaríkj- anna í nám.“ Trínidad og Tóbagó keppti á HM 2006 og var þá smæsta þjóðin sem hafði náð að komast í úrslita- keppnina, Ísland tók það met af þeim fyrir fjórum árum. „Eftir að hafa komist á HM átti ég von á að fótboltinn á Trínidad færi upp á við en hann fór eiginlega í hina áttina. Mér finnst að við hefðum getað nýtt það tækifæri betur en ég elska landið mitt, það er svo fallegt – æðislegt.“ Ánægður með það sem hann hefur í höndunum Jonathan tók við meistaraflokki kvenna hjá Keflavík fyrir rétt um mánuði síðan og hefur því aðeins náð að mynda sér skoðun á liðinu. Hann hefur þegar fengið tvo leik- menn sem léku með ÍBV á síðasta tímabili, Madison Wolfbauer og lettnesku landsliðskonuna Sandra Voitane. Jólin eru magnaður tími á Trínidad og Tóbagó ... við byrjuðum að spjalla, fórum á stefnumót og svo giftum við okkur í Bandaríkjunum árið 2017. Núna eigum við fallega, þriggja ára dóttur ... M yn di r a f F ac eb oo k- sí ðu J on at ha n Gl en n Glenn og Luka Jagacic, yfirmaður knattspyrnumála hjá Keflavík, við undirskrift ráðningarsamningsins. VF-mynd: JPK Jonathan og Þórhildur giftu sig árið 2017 í Jacksonville í Florida. sport

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.