Víkurfréttir - 07.12.2022, Blaðsíða 16
Verkalýðs- og sjómannafélag
Keflavíkur og nágrennis
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
Allsherjaratkvæðagreiðsla
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu hjá
VSFK um kjör aðalstjórnar samkvæmt A-lið laga um stjórnar-
kjör og stjórn sjómannadeildar ásamt trúnaðarmannaráði,
stjórn sjúkrasjóðs, orlofsheimlasjóðs og fræðslusjóðs og
trúnaðarmannaráð.
Félagið leitar eftir félagsmönnum sem vilja taka þátt í starf-
semi félagsins og hvetjum áhugasama til að hafa samband.
Tillögum og ábendingum skal skilað á skrifstofu félagsins
í síðasta lagi fimmtudaginn 15. desember kl. 12.00.
Fylgt er reglugerð ASÍ þar að lútandi.
Nánari upplýsingar á skrifstofu félagsins
Kjörstjórn VSFK og nágrennis.
SUÐURNESJABÆR
Hilmar Bragi Bárðarson
hilmar@vf.is
Jólaljósin voru tendruð í Suður-
nesjabæ á Fullveldisdaginn 1. des-
ember líkt og síðustu ár. Dagskrá
var í báðum byggðakjörnum, Garði
og Sandgerði, þar sem í boði var
skemmtidagskrá í kjölfar þess að
yngstu nemendur grunnskólanna
ásamt bæjarstjóra kveiktu jólaljósin
á jólatrjám.
Jólaálfar og jólasveinar voru á
staðnum og boðið var upp á rjúkandi
heitt súkkulaði og piparkökur.
Meðfylgjandi myndir tók Hilmar
Bragi við þetta tækifæri.
Bæjaryfirvöld í Suðurnesjabæ hafa
átt fund með heilbrigðisráðherra
um heilbrigðisþjónustu í Suður-
nesjabæ.
Minnisblað frá bæjarstjóra um
fund með heilbrigðisráðherra og for-
stjóra HSS var tekið fyrir á síðasta
fundi bæjarráðs Suðurnesjabæjar.
Þar kemur m.a. fram að bæjarstjóri
og forstjóri HSS munu skila ráðherra
greinargerð og tillögum um húsnæði
og þjónustu heilsugæslu í Suðurnes-
jabæ.
Afgreiðsla bæjarráðs var að bæjar-
stjóra er falið að vinna málið áfram
eins og lagt er til í minnisblaðinu.
Suðurnesjabær er tæplega 4000
manna sveitarfélag en mörg ár eru
síðan síðast voru opnar heilsugæslu-
stöðvar í Sandgerði og Garði. Þessu
vilja bæjaryfirvöld snúa við og hafa
því fundað með ráðherra um málið.
Fundað með ráð-
herra um heil-
brigðisþjónustu í
Suðurnesjabæ
Jólaljósin tendruð
á Fullveldisdaginn
16 // vÍkurFrÉttir á suðurNesJuM