Fréttablaðið - 20.01.2023, Page 6
Það má vel vera að
þetta verði hættulegt.
Veiga Grétarsdóttir, kajakræðari
og umhverfissinni
kristinnhaukur@frettabladid.is
orkumál Nærri 86 prósent af orku
Íslands komu frá endurnýjanlegum
orkugjöfum árið 2021. Hækkaði
hlutfallið um 2 prósent frá árinu
áður og er langhæsta hlutfallið í
Evrópu. Þetta kemur fram í nýjum
tölum frá Eurostat, tölfræðistofnun
Evrópusambandsins.
Ísland hefur leitt listann frá því að
Evrópusambandið tók fyrst saman
tölur árið 2004, en aldrei með jafn
miklum mun og nú. Í öðru sæti er
Noregur með 74 prósent endurnýj-
anlegrar orku, 11 prósentum minni
en Ísland. Til samanburðar munaði
aðeins hálfu prósenti á löndunum
tveimur árið 2004 þegar Evrópu-
sambandið tók fyrst saman tölur
um endurnýjanlega orku.
Það ár var hlutfall Íslands aðeins
tæplega 59 prósent og hefur það því
hækkað um tæplega 27 prósent á 17
árum. Hlutfall Evrópusambandsins
hefur á sama tíma hækkað úr tæp-
lega 10 prósentum í 22.
Þrátt fyrir að hlutfall endurnýjan-
legra orkugjafa hafi hækkað mikið á
undanförnum árum eru þeir aðeins í
meirihluta í þremur löndum. Íslandi,
Noregi og Svíþjóð. Stórþjóðir á borð
við Þýskaland, Frakkland, Ítalíu og
Spán eru allar undir Evrópumeðal-
talinu. Á botninum eru Lúxemborg,
Írland, Holland og Malta með 12 pró-
sent.
Þegar skoðaðir eru einstakir þættir
sést að nærri 100 prósent íslenskrar
raforkuframleiðslu eru endurnýjan-
leg, 97 prósent orku til húshitunar og
12 prósent í samgöngum. En í sam-
göngum standa Svíar, Finnar og
Norðmenn okkur framar. n
Hlutfall sjálfbærrar orku á Íslandi er það langhæsta í Evrópu
Rafbílavæðingin ýtir hlutfalli Íslands
upp. Fréttablaðið/Vilhelm
Í næstu viku verður flutt í
Hæstarétti mál um lögmæti
uppgreiðslugjalds á lánum
ÍL-sjóðs. Hæstiréttur hefur
þegar staðfest að ÍL-sjóður
hafi brotið gegn neytenda-
lánalögum og nú er tekist á
um hvort lögbrotið leiði til
þess að sjóðnum verði gert
að endurgreiða gjaldið. Lög-
maður segir málið prófstein á
réttindi neytenda.
olafur@frettabladid.is
NEYTENDur Miðvikudaginn 25.
janúar næstkomandi mun Hæsti-
réttur Íslands fjalla um lögmæti
uppgreiðslugjalds ÍL-sjóðs (áður
Íbúðalánasjóður) í máli sambúðar-
fólks gegn sjóðnum. Með dómi fjöl-
skipaðs Héraðsdóms Reykjavíkur
frá 17. desember 2020 var fallist á
kröfur lántakendanna um endur-
greiðslu á um 2,8 milljóna króna
uppgreiðslugjaldi, sem þeim var
gert að greiða í tengslum við upp-
greiðslu láns sem var upphaflega að
fjárhæð 20 milljónir króna.
Niðurstaða réttarins byggði á
því að sjóðurinn hefði brotið gegn
þágildandi neytendalánalögum
með því að tilgreina ekki í skulda-
bréfi hvernig uppgreiðslugjaldið
skyldi reiknað út og hvenær slíkur
uppgreiðslukostnaður félli til.
ÍL-sjóður sótti í framhaldinu um
leyfi til þess að áfrýja héraðsdóm-
inum beint til Hæstaréttar, án máls-
meðferðar í Landsréttar. Slíkt leyfi
skal ekki veitt nema brýn þörf sé á
skjótri úrlausn réttarins um efnið
og niðurstaðan geti verið fordæmis-
gefandi eða haft verulega samfélags-
lega þýðingu.
Hæstiréttur taldi þessi skilyrði
uppfyllt í málinu og samþykkti, í
fyrsta skipti, slíka beina áfrýjun. Í
framhaldinu var málið f lutt fyrir
fjölskipuðum sjö manna Hæsta-
rétti sem komst að þeirri niðurstöðu
í maí 2021 að annmarki hefði verið á
dómi héraðsdóms. Var dómur hans
því ómerktur og málinu vísað aftur
til málsmeðferðar í héraði. Þrátt
fyrir það tiltók Hæstiréttur sérstak-
lega að niðurstaða héraðsdóms um
brot gegn neytendalánalögum í
aðdraganda lánveitingar væri rétt.
Málið var í framhaldinu aftur
flutt fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur,
en í það skipti taldi héraðsdómari
að óumdeild brot á neytendalána-
lögum skyldu ekki hafa þær afleið-
ingar að sambúðarfólkið ætti rétt á
endurgreiðslu uppgreiðslugjaldsins
og var sjóðurinn því sýknaður af
kröfum þess. Sú niðurstaða var stað-
fest af Landsrétti í apríl á síðasta ári.
Í framhaldinu sótti sambúðar-
fólkið um áfrýjunarleyfi til Hæsta-
réttar og samþykkti rétturinn þá
beiðni með þeim rökum að dómur
í málinu geti haft fordæmisgildi um
atriði sem áfrýjunarleyfisbeiðnin
er reist á. Málið verður sem fyrr
segir 25. janúar fyrir Hæstarétti og
mun þá væntanlega skýrast hvort
brot Íbúðalánasjóðs á neytenda-
lánalögum með því að tiltaka ekki
útreikning uppgreiðslugjalds í láns-
samningi, hafi þær afleiðingar að
lántakar eigi rétt á endurgreiðslu
uppgreiðslugjaldsins.
Í málinu reynir á lánaskilmála
sem eru nokkuð frábrugðnir þeim
skilmálum sem reyndi á í öðru
dómsmáli þar sem ÍL-sjóður var
sýknaður í Hæstarétti á árinu 2021.
Ætla má að þeir lánaskilmálar sem
nú eru fyrir dómi hafi verið mun
minna notaðir og því verði áhrif á
ríkissjóð takmörkuð verði niður-
staða Landsréttar sambúðarfólkinu
í vil.
Jónas Fr. Jónsson, lögmaður sam-
búðarfólksins, sagði í samtali við
mbl.is í júní 2022, eftir að Hæsti-
réttur samþykkti að taka málið
fyrir, að hann teldi þetta mál vera
prófstein á réttindi neytenda.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir fullkom-
lega óeðlilegt að lánafyrirtæki
hafi sjálfdæmi um útreikning og
fjárhæð uppgreiðslugjalds og séu
ekki gerð ábyrg fyrir brotum á
neytendalánalögum. Hann segir
uppg reiðslu sk ilmá la ÍL-sjóðs
ósanngjarna og dómafordæmi séu í
evrópskum rétti fyrir því að ósann-
gjarnir skilmálar neytendalána séu
ógiltir en lánin látin standa að öðru
leyti. „Þetta er meðal annars til að
fæla fjármálafyrirtæki frá því að
beita af lsmun gagnvart neytend-
um,“ segir Breki. n
Prófsteinn á rétt neytenda
Það er undir Hæstarétti komið hvort ÍL-sjóður ber ábyrgð á lögbrotum sínum. Fréttablaðið/SiGtrYGGUr ari
Jónas Fr. Jóns-
son, lögmaður
Breki Karls-
son, formaður
Neytendasam-
takanna
ÍL-sjóður braut neyt-
endalánalög og nú er
tekist á um hvort lög-
brotið hafi afleiðingar
fyrir sjóðinn og hver
réttur neytenda er á
Íslandi.
helgisteinar@frettabladid.is
NorEgur Síðasti eldisminkur Nor-
egs er á leið úr landi og verður hann
fluttur til Danmerkur þar sem hann
mun öðlast nýtt líf. Minkurinn
hefur verið í eigu norska bóndans
Jon Sørby sem stundað hefur loð-
dýrarækt í meira en 50 ár.
Árið 2019 ákvað norska þingið að
leggja niður loðdýraiðnaðinn, en
hann hefur verið mikilvægur fyrir
mörg héruð í Noregi þar sem lítið er
um annars konar starfsemi.
„Þetta er undarlegur og sorglegur
dagur fyrir mig. Minkar hafa skipt
mig miklu máli en frá og með deg-
inum í dag verða engin loðdýr eftir
í Noregi,“ segir Jon.
Á tímum kórónaveirufaraldurs-
ins bönnuðu Danir loðdýrarækt og
var milljónum minka lógað. Ríkis-
stjórn Danmerkur aflétti hins vegar
nýlega banninu og byrjuðu bændur
á Norður-Jótlandi þar með að kaupa
þá minka sem Norðmenn voru að
losa sig við.
Jon segir að þeir sem keyptu
minkana í Danmörku séu afar
ánægðir með kaupin og að hann
hafi einnig fulla trú á því að farið
verði vel með dýrin hans í nýjum
heimkynnum þeirra. n
Síðasti minkur Noregs yfirgefur landið
Loðdýrarækt var lögð niður í Noregi
árið 2019. Fréttablaðið/GettY
ser@frettabladid.is
umHVErFISmál Veiga Grétars-
dóttir, kajakræðari og umhverfis-
sinni, undirbýr að gera gott betur
en að róa á kajak sínum umhverfis
Ísland, en hún undirbýr nú að kljúfa
öldurnar eftir endilangri sjávarsíðu
Noregs, úr norðri til suðurs.
Ferðina ætlar hún að nota til að
vekja athygli á umgengi mannsins
við sjávarsíðuna, en mikil plast-
mengun blasir víða við á ströndum
Noregs, rétt eins og Íslands.
Veiga lýsti þessum áformum
sínum í viðtalsþættinum Manna-
máli á sjónvarpsstöðinni Hring-
braut í gærkvöld, en hún stefnir að
því að halda utan í apríl á þessu ári
og hefja róðurinn í maí á nyrstu
ströndum Noregs.
Að sögn ræðarans mun leiðang-
urinn taka sinn tíma, líklega þrjá
til fjóra mánuði, allt eftir vindum
og veðrum meðfram vogskorinni
og skerjóttri strönd Noregs. Á end-
anum ætlar hún að sveigja bátnum
fyrir suðurströndina og róa að
lokum inn Oslóarfjörðinn.
Alls er leiðin um þrjú þúsund
kílómetrar, en til samanburðar var
hringferðin um Ísland, sem Veiga
réri sumarið 2019, um 2.100 kíló-
metrar.
Aðspurð hvort svona sigling á
litlum kajak geti ekki verið hættu-
leg, svarar Veiga af hógværð: „Það
má vel vera að þetta verði hættu-
legt.“ n
Á kajak eftir allri sjávarsíðu Noregs
Veiga Grétarsdóttir kajakræðari verður þrjá til fjóra mánuði á leiðinni með
ströndum Noregs. Fréttablaðið/Valli
6 fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 20. jAnúAR 2023
fÖStUDAGUr