Fréttablaðið - 20.01.2023, Page 14
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Þorrinn hefst í dag, bóndadag,
föstudaginn 20. janúar, en fyrstu
stóru þorrablótin voru haldin
um síðustu helgi. Fram undan er
fjöldi þorrablóta um allt land en
þau hafa að mestu leyti legið niðri
undanfarin tvö ár vegna heims-
faraldursins.
Í dag eru þorrablótin meðal
stærri viðburða ársins enda mikið
lagt upp úr vönduðum skemmti-
kröftum og vinsælu tónlistarfólki
í bland við þorramatinn og aðra
rétti á hlaðborðinu.
Söngkonan Sigga Beinteins hefur
komið fram á ófáum þorrablótum
undanfarin ár og segir alltaf jafn
gaman að skemmta á þeim. „Mér
finnst þorrablótin vera mjög
skemmtileg og það er frábært að
halda í þessa gömlu hefð. Það sem
að einkennir þau kannski helst
umfram aðrar stærri skemmtanir
er að gestirnir syngja mikið með.
Því er miklu meiri samsöngur en
gerist almennt til dæmis á árs-
hátíðum og öðrum skemmtunum.“
Og hún finnur fyrir öðruvísi
andrúmslofti kringum þorra-
blótin. „Fólk er bara svo glatt og
það er helsti munurinn sem ég finn
á þorrablótum og öðrum skemmt-
unum. Gestir mæta yfirleitt í
rosalegu stuði og eru mættir til að
skemmta sér og öðrum.“
Borðar lítinn þorramat sjálf
Þorrablótin voru með öðru sniði
þegar Sigga ólst upp. „Ef ég man
rétt var ekki gert svona mikið
úr þorranum þegar ég var lítil.
Ég man til dæmis ekki eftir því
að mamma og pabbi hafi farið á
þorrablót og þau voru örugglega
ekki svona stór í þá daga eins og
þau eru núna. Á bóndadaginn gaf
mamma pabba oft blóm og ég man
að við borðuðum þá slátur, f lat-
kökur og harðfisk.“
Þótt henni finnst þorrinn
skemmtilegur tími borðar Sigga
ekki mikinn þorramat sjálf. „Ég
veit ekki hvort það kallist að borða
þorramat þegar maður borðar
bara slátrið, harðfiskinn og hangi-
kjötið. Mér finnst súri maturinn
ekki vera góður og ég borða ekki
hákarlinn, lundabaggana né hrúts-
pungana. Samt er ég nú skárri en
margt af unga fólkinu sem borðar
ekkert af þessu.“
Sjálf sækir hún að minnsta kosti
eitt þorrablót þegar hún mætir á
Hrafnistu þar sem faðir hennar
býr. „Þá ætla ég að sitja til borðs
með honum og bróður mínum og
hafa gaman. Þetta er alltaf ákveðin
stemning finnst mér og fastur
punktur í tilveru okkar. Ég mun að
minnsta kosti fá mér lifrarpylsu,
blóðmör og rófustöppu.“
Stórafmæli hjá Stjórninni
Þorrablótstímabilið lítur vel út hjá
Siggu sem kemur fram á nokkrum
blótum hér og þar á næstunni.
Utan þess hefur nýtt ár byrjað vel
þar sem hún er bókuð víða og því
nóg að gera hjá henni. „Mér sýnist
á öllu að árið 2023 verði frábært ár í
spilamennskunni. Síðan á Stjórnin
stórafmæli en bandið verður 35
ára í ár. Við erum að spila á fullu og
ætlum okkur að halda stórtónleika
í lok september í Háskólabíó af því
tilefni. Undirbúningur fyrir þá er á
byrjunarstigi og við erum ekki enn
búin að ákveða hvernig þeir verða
en eitt er víst, þeir verða skemmti-
legir. Það get ég svo sannarlega sagt
um þá á þessu stigi.“
Það eru ekki margar hljómsveitir
sem ná svo háum aldri hér á landi.
Hvernig skýrir Sigga vinsældir
Stjórnarinnar? „Ég held að Stjórnin
hafi lifað svona lengi meðal annars
út af lögunum sem eru flest létt
og skemmtileg. Textarnir eru líka
frekar léttir og auðveldir og því er
fólk almennt fljótt að læra þá.“
Ólíkar kynslóðir mæta
Hún segir meðlimi Stjórnarinnar
líka hafa alla tíð lagt upp með að
skemmta fólki og það segir líka
sitt þegar kemur að háum lífaldri.
„Það er líka frábært að sjá aldurs-
bilið sem við erum að fá á tónleika
hjá okkur. Ætli yngsti hópurinn sé
ekki frá svona 17–18 ára og upp úr.
Meðal þeirra sem sækja tónleika
okkar er fólk sem var unglingar
þegar það kom fyrst á sveita-
böllin í kringum 1988–1990. Þetta
sama fólk á núna börn og jafnvel
barnabörn sem nú eru að koma á
tónleikana okkar og elska þessi lög
enda alist upp við þau frá því að
þau fæddust.“
Eftirminnileg í skaupinu
Landsmenn sáu nýja hlið á Siggu
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Stjórnin heldur upp á 35 ára afmælið í lok september. Sveitin kom meðal annars fram á Tónaflóði
við Arnarhól á Menningarnótt árið 2019 við afar góðar undirtektir. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Þótt Sigga borði
ekki súrmat þá
finnst henni frá-
bært að halda
í þessa gömlu
hefð. Sjálf fær
hún sér helst
lifrarpylsu,
blóðmör og
rófustöppu.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
á gamlárskvöld þar sem henni
brá fyrir í óborganlegu sketsi í
ára móta skaupinu. „Það var mikill
heiður fyrir mig að vera beðin um
að taka þátt í skaupinu og hrika-
lega gaman að fá að vera með. Ég
hef aldrei verið beðin áður svo mér
fannst þetta mjög spennandi.“
Upptökurnar fóru fram í nóvem-
ber á síðasta ári og henni fannst
erfitt að þurfa að þegja yfir því að
hún kæmi fram í skaupinu. „Ég var
allan daginn á tökustaðnum þó
svo að senan mín væri mjög stutt.
Þannig að biðtíminn var frekar
langur en þannig er það bara þegar
verið er að taka upp fyrir sjón-
varp.“ n
„Það var mikill heiður fyrir mig að vera beðin um að taka þátt í skaupinu og hrikalega gaman að
fá að vera með,“ segir Sigga sem kom fram í einum skets. MYND/ÓLÖF ERLA EINARSDÓTTIR
Fólk er bara svo
glatt og það er
helsti munurinn sem ég
finn á þorrablótum og
öðrum skemmtunum.
Gestir mæta yfirleitt í
rosalegu stuði og eru
mættir til að skemmta
sér og öðrum.
Sigga Beinteins
2 kynningarblað A L LT 20. janúar 2023 FÖSTUDAGUR