Fréttablaðið - 20.01.2023, Side 20
Þorratrogið er
nokkurs konar ein-
kennisréttur hjá Múla-
kaffi og er ávísum á
algjöra toppþorraveislu
með öllu tilheyrandi.
Þorrinn er mikill anna-
tími hjá Múlakaffi. Í dag,
á sjálfan bóndadaginn, er
þorrahlaðborð á boðstólum
í Hallarmúlanum og þar má
fá smakk af öllu því besta
sem þorrinn hefur upp á
að bjóða. Einnig er hægt að
panta þorratrog og hjóna-
bakka til að njóta heima eða
annars staðar.
„Þorrinn á sér áratugalanga sögu
hjá Múlakaffi og það má segja að
hann sé að ákveðnu leyti eins og
jólin hjá okkur. Það er líf og fjör og
starfsmannahópurinn okkar nýtur
þess að taka þátt í þessari sérís-
lensku hefð. Undirbúningur þorr-
ans byrjar í september hjá okkur
í Múlakaffi og stendur yfir fram
að þorranum. Það kæmi fólki á
óvart hvað þorramatur þarf í raun
mikinn undirbúning og geymslu,“
segir Jóhannes Stefánsson, veit-
ingamaður hjá Múlakaffi.
„Undanfarin ár hefur þorranum
vaxið ásmegin og sífellt f leiri
Íslendingar kjósa að fagna honum.
Stór þorrablót eru haldin víðs
vegar um bæinn og því er í mörg
horn að líta. Þar munar mest um
stóru blótin hjá íþróttafélögum og
bæjarfélögum. Þar koma þúsundir
manna saman og blóta þorrann.“
Þorratrog og hjónabakkar
Að venju býður Múlakaffi upp á
hin sívinsælu þorratrog á þorr-
anum. Jóhannes segir að fólk panti
þau ár eftir ár.
„Þorratrogið er nokkurs konar
einkennisréttur hjá Múlakaffi og
er ávísun á algjöra toppþorraveislu
með öllu tilheyrandi. Vissulega
hefur þetta breyst aðeins með
árunum og margir sem biðja um
meira af nýmeti en súrmeti. Á
þorratroginu er einmitt einnig
heitt saltkjöt og uppstúf og sviða-
kjammar, þannig að hann hentar
flestum,“ segir hann og bætir við
að það sé í raun allt litrófið af fólki
sem pantar þorratrog frá Múla-
kaffi. Allt frá einstaklingum sem
halda í gamlar hefðir og upp í fyrir-
tæki og stærri hópa.
Til að tryggja sér þorratrog er
einfaldast að fara á vefsíðu Múla-
kaffis, www.mulakaffi.is, og panta
trogið þar.
„Annars er alltaf hægt að senda
okkur tölvupóst, hringja eða bara
mæta til okkar í Hallarmúlann,“
segir Jóhannes.
„Við bjóðum líka upp á hjóna-
bakka. Það eru þorrabakkar
með nýmeti og súrmeti fyrir tvo.
Hjónabakkarnir eru mjög vinsælir
hjá okkur. Þeir fást í verslunum
Krónunnar og svo er hægt að fá
þá hjá okkur í Hallarmúlanum á
bóndadaginn og eitthvað áfram á
meðan birgðir endast. Það er líka
hægt að panta hann sérstaklega á
vefsíðunni okkar.“
Hlaðborðið meitlað í stein
Múlakaffi hefur verið með þorra-
hlaðborð á bóndadaginn í áraraðir
og árið í ár er engin undantekning.
Hlaðborðið er opið í hádeginu í
dag frá klukkan 11 til 14 og í kvöld
frá 17 til 20 í Hallarmúla 1.
„Það er meitlað í stein og mun
aldrei breytast hjá okkur,“ segir
Jóhannes og hlær. „Það er vissara
að panta borð fyrir stærri hópa,
en einstaklingar og minni hópar
geta alveg treyst á að mæta bara til
okkar,“ bætir hann við.
„Stemningin á hlaðborðinu er
einstök að okkar mati. Þarna er
samankomið fólk sem kann virki-
lega vel að meta þorramatinn og
stemningin er eftir því. Á hlað-
borðinu er allt sem hinn fjölbreytti
matseðill þorrans hefur upp á að
bjóða.“
Aðspurður hver sé vinsælasti
þorramaturinn svarar Jóhannes að
hrútspungarnir séu alltaf vinsælir
og að sviðasultan hjá Múlakaffi
þyki einstaklega góð.
„Svo finnst okkur alltaf jafn
merkilegt hvað fer mikið magn
af kæstum hákarli,“ bætir hann
brosandi við.
„Okkar eini sanni Guðjón
Harðarson hefur veg og vanda af
því að laga og útbúa þorramatinn.
Hann er svokallaður þorrameistari
Múlakaffis. Guðjón hefur starfað
hjá Múlakaffi í hartnær 40 ár og er
því hokinn af reynslu.“ n
Þorrinn eins og jólin hjá Múlakaffi
Guðjón Harðarson sem hefur veg og vanda af því að laga og útbúa þorramatinn ásamt Jóhannesi. MYNDIR/AÐSENDAR
Hægt er að panta þorratrog hjá Múlakaffi.
Þorrablót verða sífellt vinsælli.
8 kynningarblað A L LT 20. janúar 2023 FÖSTUDAGUR