Fréttablaðið - 20.01.2023, Page 22
Auðvitað á kirkjan að vera
þannig. Ef fólk vill mæta í
lopapeysu þá mætir það
bara í lopapeysu.
Til að birta andláts-, útfarar- eða
þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að
senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is
eða hringja í síma 550 5055 .
Merkisatburðir |
Elsku hjartans eiginmaður minn,
pabbi, tengdapabbi og afi,
Guðjón Elí Sturluson
frá Ísafirði,
lést í faðmi fjölskyldunnar á líknardeild
Landspítalans miðvikudaginn 18. janúar.
Útförin fer fram í Digraneskirkju miðvikudaginn 25. janúar
kl. 13.00. Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem
vilja minnast hans er bent á líknardeild Landspítalans.
Hrefna Rósinbergsdóttir
Elísa Guðjónsdóttir
Nóa Sólrún Guðjónsdóttir Jónas G. Sigurðsson
Haraldur Ketill Guðjónsson Sigrún Inga Gunnarsdóttir
Fríður Guðmundsdóttir Ríkarður S. Ríkarðsson
og barnabörn
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Hrönn Jóhannesdóttir
Hamraborg 18, Kópavogi,
lést á hjúkrunarheimilinu Móbergi
þriðjudaginn 17. janúar.
Útför verður auglýst síðar.
Arndís Baldursdóttir
Sólborg Baldursdóttir Karl Grant
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi,
langafi og langalangafi,
Finnur Arnþór Eyjólfsson
Njarðarvöllum 2, Reykjanesbæ,
lést á Hrafnistu Nesvöllum,
fimmtudaginn 12. janúar.
Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Þorbjörg Finnsdóttir Þorleifur Gíslason
Lúðvík Finnsson Guðlaug Þorsteinsdóttir
Ragna Finnsdóttir
Eyjólfur Finnsson Yvette Lau
Erla Finnsdóttir Kristján Lars Kristjánsson
Guðrún Finnsdóttir Hörður Hilmarsson
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn
Lopapeysumessa er bóndadags-
hefð sem skotið hefur rótum í
Keflavík. Prestur kirkjunnar segir
þemamessur almennt vinsælar.
arnartomas@frettabladid.is
Í dag, á bóndadag, gengur þorrinn í
garð með öllum sínum þjóðlegu siðum
og köldum blæstri. Ein af nýrri þorra-
hefðum landans er svokölluð lopa-
peysumessa sem spratt upp í Keflavík á
síðustu árum og hefur fest rætur í kjölfar
bóndadagsins. Á sunnudagskvöld leiðir
séra Fritz Már Jörgensson lopapeysu-
messuna í Keflavíkurkirkju en hann er
sjálfur ekki alveg viss um hvernig siður-
inn sé tilkominn.
„Ég held að þetta hafi nú bara verið
góð hugmynd sem einhver hefur feng-
ið,“ segir hann. „Fyrst um sinn voru það
karlarnir í kirkjukórnum sem ákváðu
að vera í lopapeysu eftir bóndadaginn
þegar þeir sungu.“
Fritz útilokar ekki að ofan í klæða-
burðinn verði messan sjálf mögulega
dálítið þorrablandin.
„Við reynum að hafa þetta bara létt og
skemmtilegt, í anda þess að þorrinn er
genginn í garð. Við tölum kannski aðeins
um súran mat og svona,“ segir hann og
hlær. „Það er aðalatriðið að hafa þetta
bara á léttu nótunum með góðri tónlist
og svona. Það er ekki að vita nema við
tökum eins og eitt gott þorralag.“
Ekkert betra en íslensk peysa
Í vetrarhörkunum sem gengið hafa yfir
landið upp á síðkastið hljómar það ansi
praktískt að geta mætt peysuklæddur í
kirkjuna. Fritz tekur þar undir.
„Auðvitað á kirkjan að vera þannig. Ef
fólk vill mæta í lopapeysu þá mætir það
bara í lopapeysu.“
Áttu sjálfur góða peysu?
„Já, ég á sko góðar peysur,“ svarar Fritz,
með áherslu á f leirtöluna, aðspurður
hvort hann verði nú ekki rétt klæddur í
messunni. „Ég elska útivist og þá verður
maður að eiga góða lopapeysu. Það er
ekkert betra en þessar íslensku.“
Kirkjustarf í Bítlabæ
Lopapeysumessan er ekki eina þema-
messan sem fer fram í Keflavíkurkirkju.
Sem dæmi má nefna mótorhjólamessu,
bleika messu, göngumessu og svo mætti
lengi telja.
„Við reynum hvað við getum að vera
með þemamessur og reynum þá einmitt
að tengja inn á hitt og þetta,“ segir hann
og bætir við að það verði að sjálfsögðu
líka messa í tengslum við konudaginn
„Það verður svo væntanlega U2-messa
hjá okkur í vor þar sem við ætlum að
taka nokkur vel valin lög frá þeim.“
Verður þá predikað með Bono-gler-
augu?
„Ég veit svo sem ekki hvort okkar verð-
ur með messuna, en ég er sannfærður
um að það okkar verði með Bono-gler-
augun,“ segir hann. „Við erum auðvitað
svo lánsöm að búa í Bítlabænum því hér
er allt vaðandi í tónlist sem fellur vel að
því sem við erum að boða.“
Fritz segir að lokum að þemamess-
urnar hafi falli vel í kramið hjá gestum
kirkjunnar.
„Hér er almennt góð mæting.“
Lopapeysumessan hefst klukkan 20 á
sunnudagskvöld. n
Lopapeysumessa í Keflavík
Lopapeysan er ansi praktísk flík í kvöldmessu á þorranum. Mynd/Aðsend
arnartomas@frettabladid.is
Í dag eru liðin hundrað ár frá fæðingu
Halldórs Rafnar, fyrrverandi formanns
og framkvæmdastjóra Blindrafélagsins.
Í tilefni þeirra tímamóta boðaði Blindra-
félagið ásamt fjölskyldu Halldórs til
minningarathafnar í gær þar sem Hall-
dórs og þess mikilvæga starfs sem hann
vann í þágu blindra og sjónskertra var
minnst.
Halldór kom fyrst á fund Blindra-
félagsins snemma á áttunda áratugnum
eftir að hafa misst sjónina árið áður.
Hann var fljótlega kjörinn í stjórn félags-
ins og varð formaður þess stuttu síðar.
Halldór var fyrstur blindra Íslendinga til
að fara í endurhæfingu í Torquy í Bret-
landi. Hann kom þaðan gjörbreyttur
maður og varð mikilvirkur í baráttu
blindra og sjónskertra á Íslandi.
„Hann tók sérstaklega á einum hlut
sem fólk gerði gjarnan og gerir enn – að
spyrja sjóndapran einstakling hvort
hann viti hver maður sé þegar maður
hittir hann,“ segir Gísli Helgason, fyrr-
verandi formaður Blindrafélagsins og
vinur Halldórs. „Þegar ég var sjálfur
fimm eða sex ára að dreifa blöðum í
Vestmannaeyjum þá var mér stillt upp
og spurður af mörgum einstaklingum
á fjölmennum vinnustað hvort ég vissi
hver væri að tala við mig. Ég brotnaði
alveg niður.“
Gísli segir að þegar þetta sé gert við
hann þá verði hann alveg brjálaður.
„Þegar Halldór fór að tala um þetta og
ýmsa aðra hluti sem tengjast blindu og
sjónskertu fólki þá var eins og margir
vöknuðu til meðvitundar,“ útskýrir
hann. „Halldór hafði þann góða kost að
hann var jákvæður maður, skemmtileg-
ur og átti auðvelt með að koma orðum að
því sem hann var að hugsa.“ n
Halldórs Rafnar minnst í Blindrafélaginu
Frá athöfninni í Blindrafélaginu í gær. Mynd/Aðsend
Þegar Halldór fór að tala
um þetta var eins og
margir vöknuðu til með-
vitundar.
1885 L.A. Thompson fær einkaleyfi á fyrsta rússíban-
anum.
1946 Leikstjórinn David Lynch fæðist.
1956 Vilhjálmur Einarsson er kosinn íþróttamaður ársins.
Þetta er í fyrsta sinn sem kosið er um titilinn og
hlaut Vilhjálmur hann sex ár í röð.
1961 John F. Kennedy er settur í embætti sem 35. forseti
Bandaríkjanna.
1991 Skíðaskálinn í Hveradölum brennur og er endur-
reistur ári síðar.
1996 Yasser Arafat er kosinn forseti Palestínu.
2017 Donald Trump tekur við embætti sem 45. forseti
Bandaríkjanna.
14 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 20. jAnúAR 2023
FÖStUDaGUR