Fréttablaðið - 20.01.2023, Qupperneq 28
Þetta sýnir manni bara
það að maður er ekk-
ert ungur að eilífu.
Ég er
virkilega
spenntur
að sjá
hvernig
fólki líst á
þetta og
geri fast-
lega ráð
fyrir því að
halda
tónleika í
Eldborg
von bráðar.
Ari Ísfeld segir mikilvægt að
karlar geti leyft sér að vera
smáir. Ari syngur einmitt
um það í sínu fyrsta lagi sem
kemur út í dag og ber heitið
Smá smár.
odduraevar@frettabladid.is
Leikarinn og nú tónlistarmaðurinn
Ari Ísfeld gaf á miðnætti út nýtt lag
sem ber nafnið Smá smár. Hann
segir að lagið sé persónulegt en jafn-
framt hafi hann líka samið það fyrir
leiksýninguna How to make love to
a man sem sýnd var í Borgarleikhús-
inu í fyrra.
„Það var sýning sem fjallaði um
karlmenn og tilfinningar karl-
manna. Ég vil alltaf hafa lög í mínum
leikritum, bara svona til að sýna
hvað ég er f lottur að syngja,“ segir
Ari í gríni. Í laginu syngur Ari um að
hann sé lítill í sér, en að það sé allt í
lagi að vera smá smár.
Gott að vera
smá smár
Ari Ísfeld syngur
um að það sé í
lagi að vera lítill
í sér.
Fréttablaðið /
Sigtryggur ari
„Við töluðum rosalega mikið um
tilfinningar karlmanna í ferlinu við
gerð leikritsins og hvað það er í raun
mikilvægt sem karlmaður að fá að
vera lítill í sér, fá að vera mjúkur, fá
að sýna tilfinningar sínar og biðja
um knús.“
Ari segist alltaf hafa verið mjúkur
maður. „Og grátið mikið og knúsað
mikið og fannst það liggja beint við
að hvetja aðra karlmenn til þess að
opna sig tilfinningalega.“
Einhverjir karlar myndu eflaust
fussa og sveia yfir slíkum skilaboð-
um og vilja harka allt af sér. Ari fellst
á að sú menning lifi enn góðu lífi.
„Heldur betur. Sérstaklega kannski
kynslóð foreldra okkar. Það er lítið
verið að opna sig um tilfinningar, en
mér finnst það samt vera að breytast
á okkar aldri. Alla vega í kringum
mig, en kannski lifir maður alltaf í
einhverri búbblu.“
Alltaf sé verið að hvetja karlmenn
til þess að opna sig með mismiklum
árangri. „Karlmenn eru hvattir til
þess að fara til sálfræðings, ræða
tilfinningar sínar við vini sína en
samt er það einhvern veginn alltaf
sama gamla sagan og sjálfsvígstíðni
meðal karlmanna því miður enn
há.“
Ari segir að lagið sé þrátt fyrir allt
persónulegt að miklu leyti. „Lagið
hljómar auðvitað eins og mér líði
illa og vilji knús og það er auðvitað
stundum þannig, að ég vilji knús
og líði illa. En ég hef alls ekki verið
smeykur við að gefa lagið út af því
að það sé eitthvað rosalega per-
sónulegt, þó jú, auðvitað séu þetta
tilfinningar sem maður finnur.“
Ari hefur aldrei gefið út lag áður.
„Ég samdi lagið í febrúar í fyrra og
hef aðeins verið að fikta í því síðan.
Þetta er algjört vetrarlag og tilvalið
að hlusta á það núna í þessum skíta-
kulda og undir teppi, kveikja á kerti
og gráta smá.“
Sjálfur samdi hann laglínu og
textann og fékk síðan Magnús
Jóhann Ragnarsson vin sinn sér til
aðstoðar áður en hann leitaði til
annars félaga, gítarhetjunnar Reynis
Snæs Magnússonar sem gerði lagið.
„Þetta var algjört samvinnuverkefni,
ég kann líka ekkert sjálfur,“ segir Ari
hlæjandi.
„Ég er virkilega spenntur að sjá
hvernig fólki líst á þetta og geri fast-
lega ráð fyrir því að halda tónleika
í Eldborg von bráðar. Þetta verða
mjög stuttir tónleikar enda spila ég
bara þetta eina lag. Hendi kannski
remix-i inn í þetta líka,“ segir Ari
enn hlæjandi. n
odduraevar@frettabladid.is
„Þetta hafa verið langir dagar og það
skein kannski í gegn þarna,“ segir
Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfull-
trúi í Kópavogi, sem varð það á að
birta tilkynningu á Facebook-vegg
sínum sem átti eingöngu að fara til
húsfélags hans, um að hann hygðist
taka vatnið af.
„Vatnið fer ekki af í kvöld heldur
annað kvöld klukkan 20.30. Það
verður síðasta skipti sem ég þarf
að taka það af,“ skrifaði Andri á
Facebook. „Ég var búinn að vera að
hringla með þetta fram og aftur og
var að taka vatnið af öllu húsinu og
við höfum verið að vinna í þessu
eftir vinnu og höfum reynt að upp-
lýsa fólk um þetta, við höfum þurft
að taka vatnið af tvisvar áður og
þetta var í þriðja skiptið,“ segir
Andri.
„Svo hendi ég þessu þarna inn
og svo er það ekki fyrr en korteri
seinna að nágranninn á hæðinni
fyrir ofan mig kemur og dinglar
og upplýsir mig um það að ég hafi
hent þessu á rangan stað, þá sé ég að
nokkrir voru búnir að hringja til að
reyna að benda mér á þetta boomer
múv,“ segir Andri og hlær.
Einhverjir spurðu hvort Andri
hygðist taka vatnið af öllum bænum
og var Ásdís Kristjánsdóttir, bæjar-
stjóri Kópavogs, meðal þeirra sem
slógu á létta strengi við færslu
Andra. „Þetta var óheppilegt svona á
þessum kuldatíma að lenda í þessu,
en þetta sýnir manni bara það að
maður er ekkert ungur að eilífu.“ n
Héldu að Andri
hygðist taka
vatnið af Kópavogi
Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfull-
trúi í Kópavogi.
Í helgarblaðinu
U-beygja
Jóhönnu
Guðrúnar
Eftir skilnað ætlaði Jóhanna Guð-
rún að vera ein með börnum sínum
tveimur, en örlögin tóku í taumana
og stuttu síðar var hún komin í
sambúð og þriðja barnið, dóttirin
Jóhanna Guðrún, bættist í hópinn.
Nýbakaðri móðurinni bauðst
svo draumahlutverk á Akureyri og
skoraðist ekki undan.
Hentu öllu út úr hesthúsinu
Hesthús Nadiu Katrínar Banine og eiginmanns hennar
í Víðidalnum er einkar huggulegt enda hefur það vakið
athygli hjá nágrönnum sem hafa jafnvel sótt til þeirra
lausnir og hugmyndir.
Svona áföll
gleymast ekki
Á mánudaginn eru liðin fimmtíu ár
frá því að eldgos hófst óvænt í Vest-
mannaeyjum. Ágústa Berg Sveins-
dóttir var tólf ára þegar gosið hófst
og segir hún minninguna um það
enn ljóslifandi.
20 lífið FRÉTTABLAÐIÐ 20. JAnúAR 2023
fÖSTUDAGUR