Fréttablaðið - 31.01.2023, Qupperneq 28
Fólk er að prófa alls
konar hluti og oft fer
einhver vitleysa í gang.
Fríða Rún
Við höfum ekki tekið
þátt í neinum tísku-
bylgjum í fæðubótar-
efnum og þess háttar.
Tómas Hilmar
Hjónin Fríða Rún Þog Tómas
Hilmar hafa rekið vefinn
Heilsutorg. is réttum megin
við núllið í tíu ár. Úthaldið
þakka þau ekki síst því að
þau hafa alltaf látið tísku-
sveiflur eiga sig og lagt áherslu
á öfgalausar og áreiðanlegar
upplýsingar hvort sem um er
að ræða fréttir, greinar eða
auglýsingar sem þar birtast.
toti@frettabladid.is
„Við birtum eingöngu upplýsingar
sem fylgja lýðheilsusjónarmiðum
og styðjumst við háskólasamfélagið
þannig að þarna eru engar skyndi-
lausnir og eingöngu öfgalausar
fréttir og upplýsingar,“ segir Tómas
Hilmar Ragnarz sem er búinn að
reka heilsuvefinn Heilsutorg.is í
tíu ár ásamt íþróttanæringarfræð-
ingnum, næringarráðgjafanum,
hlauparanum og ritstjóranum Fríðu
Rún Þórðardóttur.
„Fríða er búin að vera ritstjóri
vefsins öll þessi ár, hefur byggt á
bæði yfirgripsmikilli þekkingu
sinni og reynslu sem næringarfræð-
ingur og afreksíþróttakona í hlaupi
og er að miðla efni sem virkilega
gagnast fólki,“ heldur Tómas áfram.
„Þetta er fjölsóttasti vefur lands-
ins í heilsu og lífsstíl sem í það
minnsta 6.000 manns fara inn á
daglega og fylgjendum á samfélags-
miðlum fer stöðugt fjölgandi en þeir
eru nú um 25.000.“
Bók breyttist í vef
Fríða Rún segir að hugmyndin að
vefnum hafi í raun sprottið upp úr
bók sem hún ætlaði sér að skrifa
með vinkonu sinni fyrir löngu
síðan. „Bókin átti að heita árið um
kring og við ætluðum að árstíða-
skipta henni með uppskriftum, til-
lögum að hreyfingu og flétta nátt-
úruna svolítið saman við þetta og
vera með alls konar skemmtilegt
um næringu og fleira.“
Fríða Rún segir að sér hafi fundist
þetta ofboðslega falleg hugmynd en
niðurstaðan hafi á endanum orðið
sú að vefur hentaði víðfeðmum við-
fangsefnum hennar betur.
„Bækur ganga náttúrlega úr sér
en þarna geturðu uppfært, lagað og
endurbirt þegar við á,“ segir Fríða
Rún og bendir á þann augljósa kost
að með tíð og tíma verði vefur sem
þessi að heilmiklum gagnagrunni.
Þannig birti hún stundum greinar
sem hún er fengin til þess að skrifa
fyrir aðra miðla og nefnir í því
Heilsutorg
í tíu ár án
skyndilausna
Annálað úthald Fríðu Rúnar á hlaupabrautinni er engu minna á Heilsutorginu þar sem hún er búin að vera á fleygiferð í áratug og á nóg inni. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Æfingar og hlaup á nýju ári
Hvað þarf að hafa í huga þegar fólk byrjar að stunda æfingar og hlaup
á nýju ári? Mikilvægt er að setja sér ekki of háleit markmið. Betra er
að halda út í langan tíma í stað þess að byrja með látum og gefast
strax upp.
Þess vegna er best að byrja æfingar 2 sinnum í viku og eftir nokkrar
vikur bætir maður einni æfingu við og svo framvegis.
Líkaminn þarf aðlögun að þjálfun þannig að með því að gefa
honum tækifæri á að aðlagast nýrri hreyfingu og eða meira álagi í
þjálfuninni er betra að byrja rólega.
Hvað er fasta?
Það kallast fasta þegar mann-
eskja neytir ekki matar í lengri
eða skemmri tíma. Þannig að
í grunninn ganga allar föstur
út á að takmarka inntöku hita-
eininga. Það fer svo eftir lengd
föstunnar hver áhrifin eru á
mannslíkamann.
Talið er að líkaminn sé
kominn í föstuástand 8 klukku-
stundum frá því að síðustu
máltíðar var neytt.
Það segir sig sjálft að ef við
fækkum hitaeiningum sem við
setjum inn í líkama okkar hefur
það áhrif á þyngdina en það
er ýmislegt annað sem gerist í
líkamanum þegar við föstum,
bæði jákvætt og neikvætt.
sambandi SÍBS-blaðið og Tímarit
Astma- og ofnæmisfélags Íslands.
„Þá er maður líka að halda efninu
sínu lifandi og getur haldið utan
um alls konar hluti sem maður
hefur sankað að sér.“ Bendir Fríða
Rún á að þau fái sérfræðinga á
ýmsum sviðum til að skrifa greinar
fyrir Heilsutorg sem einnig safnast í
þennan sarp.
Horft til landlæknis
„Síðan er auðvitað mikilvægt að
vera með eins nýlegar upplýsingar
og mögulegt er þannig að við þurf-
um að fylgjast vel með því hvað er
í gangi og horfum þá til Embættis
landlæknis og höfum það sem þau
eru að ráðleggja hverju sinni svolítið
að leiðarljósi.
Fólk er að prófa alls konar hluti og
oft fer einhver vitleysa í gang og þá
þarf að reyna að vinda svolítið ofan
af því. Það skiptir líka miklu máli og
þá er svo mikilvægt að styðjast við
nýjustu upplýsingar,“ segir Fríða
Rún og bendir á að vitaskuld sé
margt að varast.
Engar skyndilausnir
„Við erum stærst á þessum markaði
og viljum vera leiðandi og stílum
Ekki gleyma D-vítamíninu
Í skammdeginu er mikilvægt
að muna eftir D-vítamíninu
sem er mikilvægt fyrir vöxt og
líkamlegan þroska barna, ekki
eingöngu til að bæta bein-
heilsu heldur einnig vegna
áhrifa þess á aðra starfsemi
líkamans, til
dæmis ónæmis-
kerfið. Við
hvetjum fólk til
að taka D-víta-
mín á hverjum
degi.
bara inn á hágæða upplýsingar í
alla staði en að sjálfsögðu erum við
með léttmeti og góðar ráðleggingar
í bland,“ segir Tómas og bætir við
að þetta eigi jafnt við efni sem aug-
lýsingar.
„Allt efnið er lýðheilsutengt
þannig að við birtum ekki efni, aug-
lýsingar eða kynnum vörur sem eru
eitthvert húmbúkk. Vefurinn hefur
verið rekinn réttum megin við
núllið í öll þessi ár og er sjálfstæður
miðill og engum háður.
Við höfum ekki tekið þátt í nein-
um tískubylgjum í fæðubótarefnum
og þess háttar og leitumst alltaf við
að miðla efni sem gagnast fólki og
erum ekki í skyndilausnum. Bara
heilbrigt efni úr öllum áttum.“ n
toti@frettabladid.is
Seint koma sumir en koma þó. Á
Moggabloggið, það er að segja.
Alþingismaðurinn fyrrverandi
Ólafur Ísleifsson haslaði sér þar
völl á miðvikudaginn gagngert til
þess að bregðast við skrifum Björns
Bjarnasonar, fyrrverandi ráðherra,
um grein sem Ólafur hafði birt dag-
inn áður í einmitt Morgunblaðinu.
„Björn Bjarnason svarar Morgun-
blaðsgrein minni í gær á bloggsíðu
sinni í dag. Af þessu tilefni opnaði
ég bloggsíðu hjá Mogganum þar
sem ég birti andsvar sem ég læt
fylgja hér að neðan,“ skrifaði Ólafur
á Facebook þegar hann fylgdi nýrri
bloggsíðu sinni, olafurisl.blog.is, úr
hlaði á miðvikudaginn.
„Ég þurfti að bregðast við bloggi
Björns og þetta form sýndist hent-
ugt í því skyni,“ segir Ólafur og bætir
aðspurður við að viðbrögðin við
þessu útspili hans hafi verið með
ágætum.
Fyrsta, og enn sem komið er eina
bloggfærsla Ólafs ber yfirskriftina
Viðbrögð við svari Björns Bjarna-
sonar vegna þriðja orkupakkans.
Þótt athugasemd Björns á síðu sinni
hafi farið fyrir brjóstið á Ólafi tekur
hann þó fram, áður en hann svarar
Birni fullumhálsi, að á Björn.is „ber
margt gott fyrir augu.“
Ólafur hefur sjálfsagt ekki sagt
sitt síðasta á þessum nýja vettvangi
enda með ýmis mál sem hann vilji
gjarnan fjalla um. „Og trúi að þetta
stutta og frjálslega form sem bloggið
er nýtist vel fyrir sumt af því. Lengra
mál er gott að fá birt í Mogganum.“
Frumherji fagnar nýliðun
„Já, það er fagnaðarefni að þriðji
orkupakkinn og umræður um hann
urðu til þess að Ólafur Ísleifsson
bættist í hóp okkara bloggaranna,“
svarar Björn þegar hann er spurður
hvort ábyrgð hans megi ekki teljast
mikil með því að hafa ýtt Ólafi út á
bloggvöllinn.
„Að blogg á bjorn.is skuli hafa
kveikt áhuga hans á þessari sam-
skiptaleið er þeim mun ánægju-
legra vegna þess að einmitt nú um
mánaðamótin janúar/febrúar 2023
eru 28 ár frá því að bjorn.is fór í
loftið,“ heldur Björn áfram en eins
og árafjöldinn ber með sér var hann
meðal þeirra fyrstu sem byrjuðu að
blogga af alvöru hér á landi.
„Innkoma Ólafs er til marks um
að áhrif síðunnar halda og eru enn
mikil og vaxandi.“ n
Ólafur velkominn
í hóp bloggara
Björn Bjarnason fagnar um þessar
mundir 28 ára bloggafmæli.
Ólafur byrjaði að blogga til þess að
svara Birni Bjarnasyni sem er með
áratuga forskot á þeim vettvangi.
24 LÍFIÐ FRÉTTABLAÐIÐ 31. JANÚAR 2023
ÞRIÐJUDAGUR