Rökkur - 01.04.1949, Page 41

Rökkur - 01.04.1949, Page 41
41 R Ó K K U R leik. Tvær stundir eru liðn- ar. Fjórðungur stundar eftir. I þetta skifti er hann leiddur fyrir skipherrann á Valiant (síðar varaflotafor- ingja), Sir Charles Morgan. Rekinn undir þiljur. Hann er mjúkmáll, en það er þungi undiröldunnar í í röddimii. Hann er á þilfari, er komið er aftur með De la Penne. Skipherrann spyr, hvar hann hafi komið fyrir sprengiefninu. De la Penne neitar að skýra frá því, „Gott og vel, farið með hann undir þiljur". Það er farið með hann í geymsluklefa þar og það er útskýrt greinilega fyrir hon- um hvar í skipinu klefinn sé. Og honum verður ljóst, að hai.n á að vera í haldi heint þar yfir, sem hann hafði komið fyrir 600 pundum sprengiefnis. Svo gefa Bret- arnir honum dálitið af rommi og lofa honum að vera ein- um og hugsa málið í friði. De la Penne heyrir, að á þiljum uppi eru gefnar stuttorðar fyrirskipanir, og menn þjóta fram og aftur um þilfarið. En hann veit, að jafnvel þótt þeir fyndu sprengiefnið, gætu þeir ekki f jarlægt það, án þess að skip- ið spryngi i loft upp. Þeir hafa látið hann halda úrinu sínu. Kl. 6,05, þegar 10 mínútur eru eftir, ber De la Penne á dyrnar, og biður leyfis að mega tala við skip- herrann. Hann er leiddur fyrir hann. De la Penne segir hon- um, að eftir nokkrar mín- útur verði sprengingin, og geti hann því enn bjargað skipshöfn sinni. Morgan spyr hvar sprengiefnið sé. Ekkert svar. Þá er De la Penne flutt- ur í sama klefa og áður. Stundin mikla rennur upp. Hann situr þar og horfir á úrið sitt .... 6,09 .... 6,11 .... 6,12 .... 6,13 .... 6,14 .... 6,15. Ægilegar drunur heyrast. Það er eins og herskipið lyft- ist upp og hann óttast að stálþynnurnar í skipshliðinni muni þrýsta honum inn og hann muni merjast til bana. Þilfarið rifnar. Skipshöfnin er að yfirgefa skipið. Ljós slokkna. Reykur berst til hans og honum liggm’ við köfnun. Skipið fer að hallast. En Luigi Durand de la Penne er enn á lífi. Og hann er ó- meiddur, nema að hann hefir

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.