Rökkur - 01.04.1949, Page 46

Rökkur - 01.04.1949, Page 46
46 R Ö K K U R moldina, og er þá sjálfsagt að taka gluggana af, raka vel til í reitnum og slétta vel yfirborð jarðvegsins fyrir sáningu. Gluggakarmarnir eru venjulega hafðir úr tré, en væru betri ef þeir væru steyptir, og gluggarnir ættu ekki að vera stærri en það, að þeir væru þægilegir í með- förum fvrir kvenfólk og unglinga, t. d. 1,5 m. á lengd og 1 m. á breidd. Gluggarnir ættu að halla á móti suðri og á þeim ætti að vera góður vatnshallþ svo að poilar myndist ekki á gler- inu. Við venjulegar aðstæður er lítið unnið við að sá í þessa reiti fyrr en fyrrihlula apríl- mánaðar. í flestum tilfellum er fræ- ið rétt hulið örþunnu mold- arlagi. Stóru fræi er jafnan sáð dýpra en litlu fræi. Mjög fin- gert fræ er sáralítið eða ekk- ert þakið eftir sáningu i reit. Að lokinni sáningu skyldi ætíð þjappa mjúklega með sléttri fjöl á yfirborð mold- arinnar. Ef moldin er líkleg til að skorpna, er betra að dreifa ögn af sandi í raðirnar yfir fræin. Sólreitir eru að ytra útliti eins og búnir til þannig, að vermi- reitakarmur með tilheyrandi gluggum er settur þar sem skjól er og sólrikt, reiturinn fylltur af góðri, sigtaðri garðmold, betra er að blanda i moldina ögn af fínmuldum búpengsáburði, jafnað vel til í reitnum og sáð í bann. I sólreit er hægt að sá mán- uði fyrr en hægt er að gróður- setja jurtirnar úti á ber- svæði. Hirðingin i þessum reitum er hér hefir verið get- ið, er fólgin í því að jurtirnar hafi hæfilegan hita og raka og nægilegt ljós og loft, enn- fremur að halda þeim laus- um við illgresi og sjúkdóma. Þegar frost er þarf að þekja reitina með pokum, hálm- mottum eða öðru þess hátt- ar, en taka verður pokana eða motturnar af strax og frostlaust er, til að ljós kom- ist niður til jurtanna. Þegar sumarblómin hafa náð hæfilegum þroska inni eða í vermireit (saðreitnum) verður að gróðursetja þær um, í lítið upphitafían reit, eða góðan sólreit, áður en þær eru fluttar út i garðinn, i lilýrri sveitum hér á landi strax i byrjun júní. Gæta verður þess á meðan jurtirn- ar standa í vermireitnum eða ærra blómjurta má sá beint

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.