Rökkur - 01.04.1949, Side 51

Rökkur - 01.04.1949, Side 51
RÖKKUR 51 eczem og menn töldu, að þeir væru sárfættir af ein- hverjum ástæðum og voru ekkert að hafa fyrir því að leita læknis. Svo voru menn í skotgröfum mánuðum og árum saman og þá kom fyrst skriður á útbreiðsluna, svo að jafnvel æðstu hershöfðingjar höfðu ekki viðþol, þótt þeir væru langar leiðir frá sjálfum vígstöðvunum. Ekki eru til neinar tölur þessu viðvíkj- andi5 en þarna kemur það og til greina, að ýmsir aðrir kvillar hegða sér á mjög lík- an liátt og getur verið erfitt að greina milli jjeirra. 4 Að vísu ekki banvænt, en .... Fótrakinn verður engum manni að bana, en sveppirnir virðast þeim mun slóttugri og lifseigari, enda hefir lækna- vísindum miðað lítt áfram í baráttu sinni gegn þeim. Þrátt fyrir mannsaldurs kappsama baráttu, hefir vis- indunum ekki miðað betur á- fram en svo, að þau vita nú nokkuð um ,,starfshætti“ fjandmannsins, en óbrigðul Jyf hafa ekki fundizt. Þekk- ingin á þessu sviði er þó allt- af mikils virði. En enn sem komið er hafa öll ráð. frá sprautum til rafmagnslækn- inga, reynzt til litils til lang- frama, })ótt ]«m hafi virzt gefa góðar vonir í upphafi. Gallinn er nefnilega sá, að hvert það lyf, sem er nægi- lega máttugt til þess að koma sveppunum fyrir kattarnef, Iiefir einnig þær verkanir, að það skemmir liúðina. Það gerðist til dæmis nýlega, að þekktur og virtur læknir lét það boð út ganga, að phenol- kamfórublanda væri gott vopn á sveppinn. Maður nokkur, sem var þjáður af kvillanum, fór til lyfsala og spurði hann, livort liann gæti ekki látið blanda lyfið fyrir sig. Lyfsalinn kvað það liægt, en bætti við: „Það er bara sá gallinn á ]>essu, að það verður liklega ekkert eftir af liúðinni á fót- um yðar eftir notJamina.“ Hefði getað leitt til dreps. Þetta var liyggilegt lijá honum, þvi að þarna liefði það gerzt, er um raka fætur var að ræða, að phenol liefði skilið sig frá blöndunni og ráðizt á liúðina af lieift. Mað- urinn hefði jafnvel getað fengið drep í fæturna fyrir utan ýmislegt annað, sem liefði þó ekki verið eins hættulegt. 4*

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.