Rökkur - 01.04.1949, Side 53

Rökkur - 01.04.1949, Side 53
RÖKKUR 53 fara öll vel með húðina, ef gætilega er að farið og draga eitthvað úr kappi sveppanna. En þetta getur í rauninni varla kallazt annað en stríðni við ixi, þvi að svo lítið gagn er að því. Herlæknar starfa líka af kappi og einn hefir fundið það ráð, að setja eins- konar koparhúð á fæturna, en hún drepur sveppina og flagnar af eftir fáeina daga. Annar notaði sulfa, sem hann taldi koma að miklu gagni, en aðrir læknar telja það stafa af þvi, að sulfalyfið hafi drepið bakteríur, sem kom- ust i fleiður eftir sveppina. Arangur, sem gefur góðar vonir, fékkst með notkun sérstakra cadmiumsalta, en cadmium er málinur, líkur zinki, sem virðist verða sveppunum að bana, án þess að gera húðinni mein. En því miður er það einnig eitur og langvarandi notkun gæti reynzt hættuleg. Rannsóknir standa yfir á þvi sviði, svo að um endanlegan árangur hefir ekki verið að ræða. Næsti leikur er að drepa sveppina, áður en þeir kom- ast á fæturna. Af þeim á- stæðum ráðleggja læknar mönnum að ganga i bómull- arsokkum, sem hægt er að dauðhreinsa með þvotti, þótt ullarsokkar sé mýkri fyrir fætur þeirra, sem þurfa að ganga eða hlaupa mikið. Víða eru menn líka látnir reka fæturna ofan í sérstakar efna- blöndur, sem drepa sveppina, áður en þeir fara i steypiböð, sem sótt eru af mörgum og hugvitssamur maður tók meira að segja upp á því að búa til sokka, sem voru sáldr- aðir koparögnum, örsmáum, svo að þær særðu ekki fæt- urna. Einnig hætta á ofnæmi. Fótraki og sveppir með honum valda einnig ofnæmi, svo tekið hefir verið upp á því, að sprauta fótraka menn með efnum, sem unnin eru úr þvi, sem þeir eru ofnæmir fyrir. Það kemur að notum fyrir suma en venjulega að- eins skamma hríð. Músiu hafði enn sloppið úr gildr- unni. Það er sérstaklega eitt, sem gerir það að verkum, að erf- itt er að uppræta þessa plágu. Það er að menn mega alltaf vera vissir um, að sveppur- inn lifi enn i fótabúnaði þeirra, þótt þeim takist að uppræta hann á sjálfum fæt- inum. Ef vel ætti að vera, þyrfti að sótthreinsa allt um-

x

Rökkur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.