Rökkur - 01.04.1949, Page 64

Rökkur - 01.04.1949, Page 64
64 R O K K U R vegna lítilla birgða verður það fyrst notað ])ar sem sér- stök hætta er á smitun, eins og þar sem margt fólk býr saman, svo sem í heimavist- arskólum, herhúðum eða þar sem áríðandi er að verja fólk gegn smitun svo sem sjúkl. - og vanfærar konur. Efnið veitir einnig vörn gegn skarlatssótt og einnig gegn hettusótt (sein oft fer illa með karlmenn) sé gamma-globulinið framleitt úr blóði þeirra sem nýlega hafa haft sjúkdóminn. Auk þess gegn rauðum hundum og er það þýðingarmikið Jæg- ar um er að ræða smithættu hjá vanfærum konum, því smitun }>eirra af þessum sjúkdómi getur stundum valdið því að börn þeirra fæðast vansköpuð. Það er heldur ekki fjarri lagi að ætla að gamma-glohulin geti verið vörn gegn mænu- sótt, þar sem margir, e. t. v. flestir liafa fengið })essa veiki, en aðeins svo væga að þeir liafa lítið eða ekki orðið hennar varir. Það liefir líka heppnast að verja mýs smit- nn, en enn sem komið er hafa slík áhrif ekki sézt hjá mönnum. Loks er hægt að nota það gegn kikhósta. Það gefir mjög góða vörn ef blóðið er frá þeim sem liafa haft veik- ina nýlega og einnig liafa fundist læknandi álirif við þessa veiki. Möguleikar þessa efnis eru ekki reyndir til fulls ennþá, en menn vænta sér mikils af því í baráttunni gegn sjúk- dómum. (Politiken, 21, jan. ’49). Röhhur liefir nú aftur byrjað göngu sina. Vegna erfiðleika á út- vegun pappirs var ekki unnt að láta ritið koma út árið sem leið, og var áskrifendum þess i stað send skáldsagan ..Reynt að gleyma“, sem hafði beðið prentunar mán- uðum saman, en pappir tókst ekki að útvega i hvort- tveggja — söguna og Rökk- ur. Framvegis verður Rökkur að sjálfsögðu látið sitja i fyr- irrúmi. Hefir Rökkur nú sjálft fengið innfluntings- leyfi fyrir pappir og kemur þvi vonandi ekki til frekari erfiðleika af þessu tagi. --

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.