Fréttablaðið - 16.02.2023, Síða 2
Aðeins undanþágubensín í Fellsmúla
Leigubílstjórar eru á undanþágu frá verkfallsaðgerðum Eflingar og því ákváðu forsvarsmenn Skeljungs að loka bensínstöðinni í Fellsmúla fyrir öllum öðrum
síðdegis í gær. Mikið hefur verið að gera á bensínstöðvum á höfuðborgarsvæðinu vegna verkfallsaðgerða olíubílstjóra. Fréttablaðið/Sigtryggur ari
Sjóðurinn veitir styrki til:
undirbúnings
sýninga
útgáfu, rannsókna og
annarra verkefna
M
yn
dl
is
ta
rs
jó
ðu
r
Umsóknarfrestur er til kl. 16.00 mánudaginn 20. febrúar 2023
Leiðbeiningar, umsóknarform
og reglur má finna á
myndlistarsjodur.is
Úthlutað verður í marsmánuði.
Veittir verða styrkir að lágmarki
300.000 kr. og hámarki
3.000.000 kr. Næsti umsóknar
frestur er 21. ágúst.
Opið er fyrir
umsóknir í
myndlistarsjóð
Alþjóðaheilbrigðismálastofn-
unin, WHO, lýsti yfir áhyggj-
um af fréttum um útbreiðslu
Marburg-veirunnar í Mið-
baugs-Gíneu í vikunni. Smit
hafa komið upp í Kamerún
en smitsjúkdómalæknir hjá
Embætti landlæknis segir
þetta náskylt ebóluveirunni.
kristinnpall@frettabladid.is
heilbrigðismál „Þetta er veira sem
er frekar náskyld ebólu og nafnið
kemur frá því að það tókst fyrst
að einangra hana á rannsóknar-
stofu í Marburg í Þýskalandi,“ segir
Kamilla Sigríður Jósefsdóttir, smit-
sjúkdómalæknir á sviði sóttvarna
hjá Embætti landlæknis.
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin,
WHO, hefur lýst áhyggjum af því að
nýr faraldur sé að brjótast út í Mið-
baugs-Gíneu.
Búið er að staðfesta að einn ein-
staklingur lést af völdum veirunnar
í Kie Ntem-héraðinu í Miðbaugs-
Gíneu og er grunur um að átta
manns til viðbótar hafi látist úr
veirunni. Þá hafa 16 aðrir kvartað
undan einkennum sem geta í alvar-
legustu tilvikum leitt til blæðandi
uppkasta og niðurgangs.
„Einkennin eru svipuð og í ebólu-
smitum. Það geta verið f lensulík
einkenni, hiti, höfuðverkur, upp-
köst og niðurgangur. Þeir sem verða
alvarlega veikir geta fengið alvar-
legri tilvik, blæðandi hitasóttarút-
komur.“
Í yfirlýsingu frá WHO var yfir-
völdum í Miðbaugs-Gíneu hrósað
fyrir viðbrögð sín. Talið er að búið
sé að finna tvö tilfelli í Kamerún
en til þessa hefur oftast tekist að
tempra faraldurinn strax í byrjun.
Mannskæðustu faraldrarnir áttu
sér stað í Kongó rétt fyrir aldamót
þegar 128 létust af völdum Marburg
og þegar 329 létust í Angóla frá 2004
til 2005.
„Það hafa áður komið upp litlir
faraldrar á afskekktum stöðum þar
sem tókst að hamla útbreiðslu með
því að loka landsvæðum eða að
smitandi einstaklingar komust ekki
burt vegna vöktunar á einkennum.
Í dag eru ekki til neinar meðferðir
eða bóluefni en á neyðarfundi
WHO í vikunni voru mögulegir
kandí datar ræddir,“ segir Kamilla
og heldur áfram:
„Auðvitað eru ekki allir sem
verða alvarlega veikir en stór
hluti verður veikur. Um tíma var
dánarhlutfall ebólu um 80 prósent,
sennilega af því að vægari tilfellin
greindust ekki, en er mun lægra í
dag þegar það eru komnar bólu-
setningar og meðferðir. Marburg
ætti að vera á svipuðum slóðum,
en við vitum það ekki fyrir víst því
við vitum ekki hvort það séu mörg
vægari tilfelli.“
Embætti landlæknis er ekki
að vakta stöðuna enda Marburg
aðeins búið að greinast í tveimur
Afríkulöndum en sérfræðingar eru
tilbúnir að aðstoða ef Íslendingar á
svæðinu eða á leiðinni á þetta svæði
koma með spurningar.
„Við erum ekki að leggja mikla
áherslu á að fylgjast með þessu
enda ekki komið á það stig að þetta
varði heimsbyggðina. Þá myndum
við fara að fylgjast með.“ n
Leðurblökuveira breiðir út
vængina í Miðbaugs-Gíneu
Talið er að Marburg-veiruna megi rekja til ávaxtaleðurblakna.
Fréttablaðið/getty
Kamilla Sigríður
Jósefsdóttir,
smitsjúkdóma-
læknir
odduraevar@frettabladid.is
Öryggismál Ef óauðkennd loftför
koma inn á loftrýmissvæði Íslands
sem ekki er hægt að bera kennsl á, á
þeim tíma sem engar þotur eru hér
á landi í loftrýmisgæslu, geta f lug-
herir grannríkja Íslands brugðist
við eftir atvikum samkvæmt mati
herstjórnar Atlantshafsbanda-
lagsins.
Þetta er meðal þess sem fram
kemur í svörum utanríkisráðu-
neytisins til Fréttablaðsins um
loftrýmisgæslu á Íslandi í kjölfar
frétta af kínverskum njósnabelg og
öðrum belgjum í lofthelgi Banda-
ríkjanna.
Bandalagsríki skiptast á að sinna
loftrýmisgæslu hér á landi.Segir
ráðuneytið að það sé herstjórnar
bandalagsins að meta hvernig
brugðist sé við óauðkenndum loft-
förum í lofthelgi Íslands. n
Aðskotaloftför
kalla á aðstoð frá
grannríkjunum
Þýsk herþota hér á landi við gæslu.
odduraevar@frettabladid.is
kjaramál Þórður Guðjónsson,
forstjóri Skeljungs, segir að líklega
muni fyrstu bensínstöðvar á höfuð-
borgarsvæðinu tæmast í dag, vegna
verkfalls olíubílstjóra Eflingar þar
sem tankapláss sé takmarkað.
Þórður sagði á Fréttavaktinni á
Hringbraut í gærkvöldi að mikil-
vægt sé að fólk haldi ró sinni. Mikið
hefur borið á að fólk hafi hamstrað
eldsneyti. Hefur Slökkvilið höfuð-
borgarsvæðisins hvatt fólk til að
geyma bensín ekki í heimahúsum
vegna mikillar eldhættu.
„Það munu stöðvar tæmast á
fyrstu tveimur, einum sólarhringn-
um, það liggur alveg ljóst fyrir, þar
sem tankapláss á þessum stöðum
er takmarkað. Það er hins vegar nóg
eldsneyti á höfuðborgarsvæðinu og
fólk þarf ekkert að panikka.“
Þórður segir ljóst að haldi aðgerð-
ir áfram muni aðgengið verða tak-
markaðra að eldsneyti á höfuð-
borgarsvæðinu strax næstu daga.
„Svo mun þetta bara halda áfram
að bíta og bíta eftir því sem fleiri
stöðvar tæmast.“
Á vef Fréttablaðsins má fylgjast
með stöðunni á bensínstöðvum. n
Nóg bensín til á höfuðborgarsvæðinu
Þórður
Guðjónsson
forstjóri
Skeljungs
2 Fréttir FRÉTTABLAÐIÐ 16. FeBRúAR 2023
FiMMtUDAGUr