Fréttablaðið - 16.02.2023, Page 9
Við vissum ekkert við
hverju var að búast
þegar við hleyptum
indó af stokkunum.
Haukur Skúlason, framkvæmda-
stjóri indó
Það eru vonbrigði að
ekki séu gerðar ríkari
kröfur um upplýsinga-
gjöf lánastofnunar eins
og Íbúðalánasjóðs.
Jónas Fr. Jóns-
son, lögmaður
Framkvæmdastjóri indó
segist ekki eiga orð yfir við-
tökunum sem sparisjóðurinn
hafi fengið fyrstu vikurnar.
Hann segir hóflega yfirbygg-
ingu lykilinn að því að geta
boðið betri kjör í bankaþjón-
ustu á Íslandi. Yfir fimmtán
þúsund manns hafa þegar
opnað reikning hjá sjóðnum.
ggunnars@frettabladid.is
„Við fórum í loftið í lok janúar og
það er eiginlega ekki hægt að segja
annað en að viðtökurnar hafa farið
fram úr okkar björtustu vonum,“
segir Haukur Skúlason, fram-
kvæmdastjóri indó sparisjóðs.
Haukur segir annríkið hafa verið
mikið hjá fyrirtækinu að undan-
förnu enda hafi 15 starfsmenn
fyrirtækisins setið sveittir við að
taka á móti alls 15 þúsund nýjum
viðskiptavinum á fáeinum vikum.
„Við vissum ekkert við hverju var
að búast þegar við hleyptum indó af
stokkunum. Viðmiðin eru svo óljós
í þessum bransa því það hefur ekki
verið stofnað nýtt fjármálafyrirtæki
á Íslandi frá árinu 1991.“
Reyndin hafi svo verið að starfs-
menn hafi setið sveittir við símann
í þjónustuverinu frá fyrsta degi.
„Þetta er bara ótrúlega skemmti-
legt. Það skemmir aldrei fyrir að fá
hraustlegan byr í seglin strax í upp-
hafi,“ segir Haukur.
Hjá indó býðst fólki að opna
debetkortareikninga til að byrja
með en Haukur segir að aukin
þjónusta muni svo bætast við síðar
á þessu ári. Viðskiptavinir indó geti
því stundað öll helstu bankavið-
skipti líkt og hjá öðrum bönkum
um leið og reikningur þeirra er
tilbúinn.
Haukur segist gera sér fulla grein
fyrir því að fólk geti verið tregt til að
hræra mikið í sinni bankaþjónustu.
Þess vegna sé ánægjan með viðtök-
urnar meiri en ella.
„Þetta er viðkvæm þjónusta og
við berum mikla virðingu fyrir því.
Við lögðum áherslu á að vanda allan
undirbúning og þaulprófa ferla
áður en við fórum í loftið. Síðast-
liðin fjögur ár, frá því fyrirtækið
var stofnað, hafa miðað að því að
allt yrði pottþétt þegar þjónustan
færi í loftið og engir sénsar teknir. Sú
vinna hefur borið árangur og niður-
staðan er að fólk treystir okkur.“
Haukur segist alveg finna fyrir
því að öflug innkoma indó sé farin
að vekja athygli. Hann segist varla
gera annað þessa dagana en að svara
spurningum um tekjumódel fyrir-
tækisins.
„Tekjur indó eru auðvitað bara
brotabrot af því sem gengur og ger-
ist hjá hefðbundnum bönkum. En
það sama gildir líka um kostnaðinn.
Út á það gengur módelið. Við sjáum
ekki fyrir okkur að starfsmanna-
fjöldi indó þurfi að fara mikið yfir
tuttugu manns. Yf irbyggingin
verður smá í sniðum og við erum til
að mynda ekki með nein útibú eða
uppskrúfaðan húsnæðiskostnað.“
Þannig segir Haukur að unnt sé að
bjóða viðskiptavinum sparisjóðsins
góð kjör.
„Við ætlum að bjóða upp á ein-
faldar en skýrar vörur. Sem standa
öllum til boða. Við munum ekki
bjóða upp á þrjátíu mismunandi
tegundir af bankareikningum. Ein-
faldlega vegna þess að við teljum
enga þörf á því,“ segir Haukur.
Aðalatriðið að hans mati sé að nú
séu að renna upp spennandi tímar í
bankaviðskiptum á Íslandi. Aukin
samkeppni og aðhald. Það í sjálfu
sér sé heilmikill ávinningur.
„Ef indó getur verið lóð á þá
vogarskál þá getum við í raun verið
himinsæl,“ segir Haukur. n
Lítil yfirbygging lykill að
því að geta boðið betri kjör
Haukur segir starfsmenn indó sitja sveitta við að taka á móti nýjum viðskiptavinum. MYND/AÐSEND
Fréttablaðið markaðurinn 916. Febrúar 2023
FimmTuDaGur
Eigum nokkra nýlega fjórhjóladrifna Hyundai
notaða á Krókhálsi 7, Reykjavík sem eru enn í
ábyrgð. Komdu og gerðu frábær kaup!
4x4 MEÐ ALLT
AÐ 7 ÁRA
ÁBYRGÐ!
*
OPNUNARTÍMI:
Mánud. 10-18,
þriðjud.–fimmtud. 9-18,
föstud. 9-17, laugard. 12-16
Hyundai notaðir
K7 – Krókhálsi 7, 110 Reykjavík
Sími 525 8000 - bilaland@bilaland.is
*Hyundai býður eina víðtækustu ábyrgð sem til er. Ábyrgð á öllum nýjum Hyundai bílum
er sjö ár/150.000 km akstur, hvort sem kemur á undan. Átta ár/160.000 km ábyrgð er á
rafhlöðum. Staðbundnir skilmálar gilda. Kynntu þér allt um ábyrgðina á hyundai.is
Rnr. 140080
Rnr. 140059
Rnr. 149599
Rnr. 140046
Rnr. 432927
Rnr. 432944
Rnr. 433043
Rnr. 370414
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
0
1
4
9
7
1
B
íl
a
la
n
d
H
y
u
n
d
a
i
4
x
4
n
o
t
a
ð
ir
2
x
3
8
1
6
fe
b
HYUNDAI Santa Fe IV Style
Nýskr. 07/21, ekinn 50 þ.km,
dísil, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Style MHEV
Nýskr. 08/21, ekinn 17 þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Santa Fe IV Premium
Nýskr. 08/18, ekinn 72 þ.km,
dísil, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Comfort PHEV Panorama
Nýskr. 03/22, ekinn 9 þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Style PHEV
Nýskr. 10/22, ekinn 3 þ.km,
bensín/rafmagn
HYUNDAI Tucson Premium PHEV
Nýskr. 04/22, ekinn 8 þ.km,
bensín/rafmagn, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Premium
Nýskr. 06/20, ekinn 25 þ.km,
dísil, sjálfskiptur
HYUNDAI Tucson Classic MHEV
Nýskr. 06/21, ekinn 51 þ.km,
dísil/rafmagn, sjálfskiptur
VERÐ:
8.490.000 kr.
VERÐ:
7.490.000 kr.
VERÐ:
6.990.000 kr.
VERÐ:
7.590.000 kr.
VERÐ:
7.990.000 kr.
VERÐ:
7.990.000 kr.
VERÐ:
5.990.000 kr.
VERÐ:
5.390.000 kr.
olafur@frettabladid.is
Hæstiréttur staðfesti í gær dóm
Landsréttar um að ÍL-sjóði hafi
verið heimilt að innheimta hátt
uppgreiðslugjald á láni sem upp-
haflega var tekið hjá Íbúðalánasjóði
2008 þrátt fyrir að hvergi komi fram í
skilmálum skuldabréfs hvernig upp-
greiðslugjaldið sé reiknað út, eins og
lög kveða á um.
Hæstiréttur, líkt og Landsréttur,
kemst að þeirri niðurstöðu að lána-
stofnun geti innheimt uppgreiðslu-
gjald án upplýsingagjafar til lán-
takanda um útreikning þess, þrátt
fyrir að lög kveði á um annað. Áður
hafði héraðsdómur komist að and-
stæðri niðurstöðu. Evrópskir dóm-
stólar virðast gera mun ríkari kröfur
um upplýsingagjöf lánastofnana til
neytenda en Hæstiréttur og Lands-
réttur, þrátt fyrir að íslensk lög byggi
að miklu leyti á evrópskri löggjöf í
þessum efnum.
„Það eru vonbrigði að ekki séu
gerðar ríkari kröfur um upplýsinga-
gjöf lánastofnunar eins og Íbúða-
lánasjóðs en gerð sé krafa til neyt-
enda um að kynna sér sérstaklega
hvernig uppgreiðslugjald sé reiknað
út þótt það ráðist af útlánsvöxtum
lánastofnunarinnar eins og þeir eru
hverju sinni,“ segir Jónas Fr. Jónsson,
lögmaður stefnenda í málinu.
Breki Karlsson, formaður Neyt-
endasamtakanna, segir dóminn
vonbrigði og vont að lánastofnanir
geti innheimt hátt uppgreiðslugjald
sem ekki sé stoð fyrir í lánasamningi.
„Neytendavernd á fjármálamarkaði
er í skötulíki,“ segir Breki. n
Litlar kröfur um upplýsingagjöf