Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 16
Sigríður Ósk Hrafnkels-
dóttir, alla jafna kölluð Sigga
Ózk, hefur ávallt vakið
athygli fyrir útgeislun sína,
fallegan klæðaburð og list-
ræna hæfileika. Hún er einn
þátttakenda í Söngvakeppni
Sjónvarpsins 2023.
sjofn@frettabladid.is
Sigga Ózk útskrifaðist frá alþjóða-
brautinni í FG með fatahönnun á
kjörsviði. „Ég söng frumsamið lag
og klæddist kjól sem ég saumaði
sjálf á útskriftardaginn. Ég hef
ávallt haft áhuga á tónlist, söng,
dans, tísku og leiklist. Sem barn
æfði ég píanóleik, leiklist og söng
en var mest á dansæfingum.
Ég byrjaði að dansa með 16 ára
stelpum þegar ég var 12 ára í Sví-
þjóð þegar ég bjó þar,“ segir hún.
„Helsta áhugamál mitt eru „show“
þar sem öllum mínum áhuga-
málum er blandað saman, söngur,
leiklist, dans, tíska og tónlist. Mér
finnst mest gaman að láta alla
þessa hluti tengjast í einu „showi“,“
bætir hún við.
Með stóra drauma
Sigga Ózk er á öðru ári í söngleikja-
deildinni í Söngskóla Sigurðar
Demetz. „Þar fyrir utan hef ég
kennt í grunnskólum auk þess
að koma fram með eigin tónlist
á ýmsum stöðum. Ég stefni á að
gefa tónlistina út um allan heim.
Með henni langar mig síðan að
stofna nokkur fyrirtæki og eitt af
þeim væri fatamerki. Mig hefur
alltaf dreymt um að hanna eigin
fatalínu.“
Sigga Ózk segir að móðir hennar
hafi verið fyrirmynd hvað varðar
tísku. „Mamma hjálpaði mér alltaf
með val á því hverju ég ætti að
klæðast þangað til ég vildi fá að
ákveða það sjálf. Einnig aðstoðaði
hún mig við að læra á saumavél
og sauma mín eigin föt. Ef ég ætti
að velja yrði fatastíllinn minn
afslappaður og klassískur í senn.
Síðustu ár hef ég verið mikið í
ljósum fötum og helst skyrtum
með „puffy“ ermum, mér finnst
það ýkja mittið, sérstaklega ef ég er
í buxum sem eru útvíðar og háar í
mittið, það er stíll sem klæðir mig.
Ég hef mikla skoðun á litasam-
setningu og jafnvægi. Ég reyni að
vera helst ekki meira en í þremur
litum í einu. Ég vil ýkja það sem
mér finnst flott eins og mittið og
fætur. Er nánast alltaf á hælum eða
platform skóm því ég er svo lítil,“
segir hún.
„Það var ekki fyrr en í mennta-
skóla sem ég fattaði að öllum var
Dreymir um að koma tónlistinni út í heim
Sigga Ózk hefur
afslappaðan stíl
en þó klass-
ískan.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ANTON BRINK
Sigga Ózk, sem er meðal keppenda í Söngvakeppni Sjón-
varpsins að þessu sinni, kann best við sig á háum hælum
enda segist hún vera smávaxin.
Ljósir litir eru í uppáhaldi hjá Siggu Ózk og stórar töskur.
Söngkonan Sigga Ózk brá á leik fyrir ljósmyndarann og
smellti á sig skrautermum. Skórnir glitra skemmtilega.
í rauninni sama hverju ég klædd-
ist því flestir hugsa einungis um
sjálfan sig og hvort þeir séu nógu
töff. Á þessum tíma var ég búin að
fara í heimsreisu með mömmu og
systur minni þar sem ég fékk að sjá
alls kyns fatastíla. Ég áttaði mig á
að öllum er sama, ég get verið í því
sem mig langar. Þá byrjaði ég líka
að prófa að mæta í pels, inniskóm
eða einhverju slíku bulli í skólann
en öllum var sama, það var ákveðið
frelsi og góð tilfinning. Þegar ég
hóf nám í háskóla fór ég meira út
í klassíska stílinn og hef haldið
honum. Þegar ég fór að gefa út
tónlist og fór að klæðast alls kyns
glingurfötum á sviði vildi ég að fólk
sæi mig líka vel klædda úti í búð. Ég
fer eigin leiðir í fatastílnum og hef
til dæmis ekki fallið fyrir mikilli
förðun eða lokki í nefi.“
Útvíðar svartar silkibuxur
Fyrir utan kjólinn í Söngvakeppn-
inni segist Sigga Ózk eiga slatta af
uppáhaldsflíkum. „Svo fátt eitt sé
nefnt þá eru svörtu útvíðu silki-
buxurnar mínar í uppáhaldi, þær
eru í raun víetnamskar þjóðbún-
ingabuxur en ég elska að klæðast
þeim, einnig get ég nefnt toppinn
og ermarnar sem Perla Rúnars-
dóttir saumaði handa mér fyrir
online tónleikana mína. Þá keypti
ég skó, icon skó, á DollsKill til að
hafa á cover myndinni á laginu
Segðu mér og mér til furðu sá ég
að Ariana Grande var í eins skóm í
Thank u, next myndbandinu þegar
hún lék Elle Woods í nöglum.“
Fyrir Siggu Ózk er ómissandi að
eiga gott veski. „Ég á tvær stórar
töskur, eina ljósa og eina svarta til
að vera með stóra hluti í en síðan
er ég með tvær litlar töskur, eina
perlu og aðra svarta. Síðan á ég eina
bleika í millistærð úr Yeoman, ég
get komið öllu í þá tösku og líður
eins og Mary Poppins þegar ég er
að taka hluti úr henni,“ segir hún.
„Mér finnst mjög mikilvægt fyrir
ungar stelpur að klæða sig ekki
einungis til að sýna sig fyrir öðrum
eða fá athygli frá strákum. Klæddu
þig bara í því sem þér finnst flott.
Ekki láta aðra ráða því hvernig þú
klæðist heldur farðu að eigin stíl.
Mundu að allir eru bara að reyna
að vera töff líka, vertu þú sjálf,“
segir söngkonan. n
100% náttúruleg
hvannarrót
60 HYLKI FÆÐUBÓTAREFNI
hvannarrót
Leyndarmál
hvannarrótar
Loft í maga?
Glímir þú við
meltingartruflanir?
Næturbrölt
Eru tíð þvaglát
að trufla þig?
Fæst í næsta apóteki, heilsuvöru-
verslun, Hagkaupum og Nettó.
4 kynningarblað A L LT 16. febrúar 2023 FIMMTUDAGUR