Fréttablaðið - 16.02.2023, Blaðsíða 22
Stemningin sem er í
Krikanum núna flýtti
samt kannski aðeins
fyrir og gerði ákvörð-
unina um að koma
heim strax í sumar
auðveldari.
Barcelona situr í
toppsætinu á Spáni
á meðan Manchester
United er í þriðja sæti á
Englandi.
Það er alltaf mikil
eftirvænting hjá golf-
áhugafólki þegar Tiger
Woods reimar á sig
skóna og tekur upp
kylfurnar. Hann hefur
ekki tekið þátt í móti
frá því á miðju síðasta
ári.
hordur@frettabladid.is
Golf Tiger Woods, einn fremsti kylf-
ingur sögunnar, snýr aftur á golfvöll-
inn í dag þegar Genesis-mótið fer af
stað í Kaliforníu. Líkamlegt ástand
Tiger hefur komið í veg fyrir að hann
spilaði golf undanfarna mánuði.
Kylfingurinn lenti í mjög alvarlegu
bílslysi árið 2021 þar sem hann var
nær dauða en lífi. Læknar telja það
kraftaverk að hann geti gengið í dag,
hann hefur tekið þátt í nokkrum
mótum eftir slysið en ekki spilað
síðan í júlí á síðasta ári. Tiger hafði
boðað endurkomu sína á golfvöllinn
í desember en varð að draga sig úr
leik á síðustu stundu vegna eymsla.
„Það er meira ökklinn á mér sem
er til vandræða frekar en leggurinn.
Leggurinn er betri en á síðasta ári
en núna er það ökklinn. Þetta snýst
um að hann jafni sig frá degi til dags.
Þetta hefur tekið á,“ segir Tiger í
aðdraganda mótsins.
Um undirbúning sinn undan-
farnar vikur segir Tiger hann hafa
gengið ágætlega. „Ég vippa og pútta,
ég er með fínt æfingasvæði í garð-
inum hjá mér. Ég fer svo út á völl og
slæ bolta og reyni að labba völlinn,
ég hoppa upp í golfbíl ef ég finn fyrir
þreytu. Ég hef verið að vinna mig upp
úr því að spila nokkrar holur, yfir í
níu holur og svo klára 18 holur. Þetta
snýst um að byggja sig rétt upp og
það hefur gengið frábærlega undan-
farið,“ segir Tiger, sem vinnur að
því að vera í sínu besta formi þegar
Masters-mótið verður leikið í byrjun
apríl.
Genesis-mótið er eitt af þeim
stærstu á ári hverju fyrir utan stór-
mótin fjögur en á vellinum verður
að finna flesta af fremstu kylfingum
í heimi. n
Eftirvænting fyrir endurkomu Tígursins á golfvöllinn
Tiger Woods mætir til leiks í dag. Fréttablaðið/Getty
hordur@frettabladid.is
fótbolti Tvö af stærstu félagsliðum
fótboltans, Barcelona og Manc-
hester United, eigast við síðdegis
í dag þegar liðin mætast í Evrópu-
deildinni. Bæði félög hafa gengið í
gegnum verulega erfiða tíma síð-
ustu ár og eru ekki á meðal liða sem
taka nú þátt í Meistaradeild Evrópu
sem er stærsta svið fótboltans.
Barcelona mistókst að komast
upp úr riðli sínum í Meistaradeild-
inni fyrir áramót á meðan United
hefur í allan vetur spilað í Evrópu-
deildinni. Um er að ræða fyrri leik
liðanna sem fram fer á Nývangi í
Katalóníu en síðari leikurinn fer
fram eftir viku í Manchester.
Það verður áfram hausverkur
fyrir Erik ten Hag, stjóra Manches-
ter United, að stilla upp miðsvæði
sínu en Christian Eriksen er áfram
frá vegna meiðsla og þá tekur Mar-
cel Sabitzer út leikbann. Ten Hag
gleðst þó yfir því að Casemiro er
aðeins í banni í enska boltanum og
má því taka þátt í leiknum í kvöld.
„Bæði félög hafa gaman af því
að mæta hvort öðru, þetta er stór
áskorun. Við hefðum viljað mæta
þeim í úrslitum en svona er þetta,“
segir Ten Hag um leikinn en sigur-
vegari einvígisins fer í 16 liða úrslit.
„Við erum spenntir, þetta gefur
okkur mikla orku því þetta verður
frábær leikur. Þetta verður mikil
áskorun, við sjáum hvaða leik-
menn eru heilir en þetta verður
leikur í hæsta gæðaflokki,“ segir sá
hollenski. n
Stórslagur á
Nývangi í kvöld
Ten Hag, stjóri Manchester United,
er spenntur. Fréttablaðið/Getty
Markvörðurinn Daníel Freyr
Andrésson er á leið aftur
til Íslands. Hann heldur
aftur í uppeldisfélagið, FH.
Daníel segir að ekkert annað
hafi komið til greina en að
fara í Fimleikafélagið eftir
að ákvörðun um að flytja
heim til Íslands hafði verið
tekin. Hann er spenntur fyrir
komandi tímum.
helgifannar@frettabladid.is
Handbolti Það var staðfest í gær að
handboltamarkvörðurinn Daníel
Freyr Andrésson myndi ganga í
raðir FH á nýjan leik. Hinn 33 ára
gamli Daníel kemur frá danska
úrvalsdeildarliðinu Lemvig-Thybo-
røn, þar sem hann hefur leikið frá
því síðasta sumar. Kappinn gerir
tveggja ára samning við Fimleika-
félagið.
„Þetta er í raun ekki búið að eiga
sér langan aðdraganda. Ég talaði
fyrst við FH í kringum áramótin og
síðan gekk þetta frekar hratt fyrir
sig í kjölfarið,“ segir Daníel í samtali
við Fréttablaðið.
Tímasetningin hentaði
Sem fyrr segir hefur Daníel áður
verið á mála hjá FH. Hann er uppal-
inn hjá félaginu og náði með því frá-
bærum árangri á árum áður. Daníel
varð til að mynda Íslandsmeistari
með FH árið 2011 og var á meðal
bestu markvarða í handboltanum
hér á landi. Kappinn hélt svo frá FH
í atvinnumennsku árið 2014.
„Það kom ekkert annað til greina
en að fara aftur heim í Krikann,“
segir hann eftir endurkomuna.
Samningur Daníels við Lemvig-
Thyborøn átti ekki að renna út fyrr
en eftir næstu leiktíð en verkefnið
hjá FH heillaði, enda búið að leggja
mikið í að styrkja liðið fyrir átökin á
næstu árum. „Mér leið eins og þetta
væri f lottur tímapunktur. Það eru
líka spennandi tímar fram undan í
Krikanum.“
Félag með háleit markmið
Sem fyrr segir er FH stórhuga fyrir
næstu leiktíð í Olís-deildinni. Ljóst
er að landsliðsfyrirliðinn Aron
Pálmarsson mun einnig snúa heim
í Kaplakrika fyrir næstu leiktíð.
Hann hefur verið einn fremsti
handboltamaður heims undanfarin
ár og er afar sigursæll. Ef allt er eðli-
legt ætti Aron að reynast hvalreki
fyrir Fimleikafélagið. Daníel segir
það hafa haft áhrif.
„Það spilaði inn í, þó að planið
hafi alltaf verið að fara heim í FH.
Stemningin sem er í Krikanum
núna f lýtti samt kannski aðeins
fyrir og gerði ákvörðunina um að
koma heim strax í sumar auðveld-
ari.“
Lemvig-Thyborøn sýndi ákvörð-
un Daníels um að halda heim á leið
skilning. „Það var ekkert vesen að
fá að fara. Þau skildu ákvörðunina
mína vel.“
Líklega kominn til að vera
Auk þess að spila með Lemvig-
Thyborøn hefur Daníel einnig
leikið með Eskilstuna Guif og Ricoh
í Svíþjóð, sem og SönderjyskE Dan-
mörku.
En hefur hann nú sagt skilið við
atvinnumennskuna fyrir fullt og
allt?
„Ég held það. Ég er samt ekki
búinn að taka neina ákvörðun um
það en það er allavega ekki í áætl-
unum hjá mér núna að fara aftur út,“
segir Daníel, sem einnig á að baki
eitt tímabil með Val.
Daníel áttar sig á því að vænting-
arnar til FH eru miklar á komandi
tímum.
„Ég hef ekki farið náið út í mark-
miðin með FH en ég veit að það er
búið að vera markmiðið hjá FH
lengi að vera besta liðið á Íslandi,
allavega berjast við toppinn. Það
hlýtur að vera það áfram,“ segir
Daníel Freyr Andrésson. n
FH eina félagið sem kom til greina
Daníel Freyr
Andrésson er
mættur heim
til FH, þar sem
hann lék áður
við góðan orð-
stír.
Fréttablaðið/
valli
14 íþróTTir FRÉTTABLAÐIÐ 16. FeBRúAR 2023
FiMMTUDAGUr