Fréttablaðið - 16.02.2023, Page 24
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð
og hlýhug við fráfall elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
Guðríðar Helgadóttur
Sérstakar þakkir færum við einstöku
starfsfólki Selsins og D-deildar
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir hlýju og
góða umönnun.
Sigurður G. Sigurðsson
Hildur Sigurðardóttir Steinþór Jónsson
Helgi Kjartan Sigurðsson Birna Björk Þorbergsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Hlynur Höskuldsson
lést laugardaginn 4. febrúar.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey.
Ólöf Einarsdóttir
Höskuldur Hlynsson Birna Þórarinsdóttir
Ólafur Hlynsson Guðrún Kjartansdóttir
Hlynur Davíð Hlynsson Lisa Schmitz
og barnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
Jóhann Eyrbekk Sigurðsson
rafvirkjameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Eir,
sunnudaginn 12. febrúar. Útförin fer fram
frá Langholtskirkju, fimmtudaginn 2. mars kl. 13.00.
Laufey Bjarnadóttir
Sigurður B. Jóhannsson Ólöf J. Eyland
Bára Jóhannsdóttir Stefán Magnússon
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær móðir mín og amma okkar,
Unnur Sólveig Björnsdóttir
Bræðratungu 19, Kópavogi,
lést á sjúkrahúsi á Gran Canaria
föstudaginn 27. janúar.
Útför fer fram frá Digraneskirkju
föstudaginn 17. febrúar kl. 11.
Hlynur Aðils Vilmarsson
Nikulás Tumi, Unnur Sólveig, Anna Kamilla og Birna Ída
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Charlotte Guðlaugsson
frá Vík í Mýrdal,
lést á Hjúkrunarheimilinu Kirkjuhvoli
laugardaginn 11. febrúar sl.
Útförin fer fram frá Stórólfshvolskirkju,
Hvolsvelli, mánudaginn 20. febrúar kl. 14.
Streymt verður frá jarðarförinni á Facebook.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Edda, Agnes og Guðlaugur
Antonsbörn
Elskulegur faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
Jóhann Guðmundsson
rennismiður,
lést á Heilbrigðisstofnuninni á
Hólmavík 10. febrúar. Útför hans fer fram
frá Hólmavíkurkirkju laugardaginn 18. febrúar kl. 15.
Guðmundur Jóhannsson Jóhanna Karlsdóttir
Þorkell Jóhannsson Sara Gunnarsdóttir
Kristján Jóhannsson Bára Karlsdóttir
Þór Jóhannsson Þórey Jónasdóttir
Björk Jóhannsdóttir Stefán Gíslason
Ingimundur Jóhannsson Sólrún Jónsdóttir
Smári Jóhannsson Brynja Georgsdóttir
og afabörn
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Ragna Erlendsdóttir
frá Þorlákshöfn,
lést á Hjúkrunarheimilinu Ási í
Hveragerði 11. febrúar.
Útför auglýst síðar.
Linda Björg Sigurðardóttir
Guðlaug Sigurðardóttir Björgvin Jón Bjarnason
Jónas Sigurðsson Áslaug Hanna
og fjölskyldur
Ástkær eiginmaður minn , faðir,
sonur og bróðir okkar,
Ármann Einarsson
Básahrauni 44, Þorlákshöfn,
lést föstudaginn 10. febrúar á
gjörgæsludeild Landspítalans.
Útför hans fer fram laugardaginn 25. febrúar
kl. 13.30 í Þorlákskirkju.
Linda Ósk Jónsdóttir
Unnur Rós Ármannsdóttir
Guðmundur J. Ármannsson Magnea Ásta Magnúsdóttir
Jón Þór Eyjólfsson
Einar Friðrik Sigurðsson Helga Jónsdóttir
Eydís Einarsdóttir Jörgen Jörgensen
Sóley Einarsdóttir Guðbjartur Örn Einarsson
og frændsystkin
Elsku maðurinn minn og besti vinur,
yndislegi pabbi okkar, afi,
langafi og tengdapabbi,
Einar G. Ólafsson
Kambaseli 30,
lést á Landspítalanum laugardaginn
4. febrúar í faðmi fjölskyldu sinnar.
Að ósk hins látna hefur jarðarförin farið fram í kyrrþey.
Kristbjörg Stella Þorsteinsdóttir
Þóra Sigfríður Einarsdóttir Smári Viðar Grétarsson
María Sunna Einarsdóttir Smári V. Waage
Sigríður Lára Einarsdóttir Ólafur Ingi Stígsson
Einar Örn Bergsson Guðrún Ása Eysteinsdóttir
Sunneva, Daníel, Hinrik Atli, Katrín Ósk, Stígur Annel,
Mikael Guðni, Davíð Emil, Rebekka Myrra, Rakel Þóra,
Óliver Smári og Melina Helga
Móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Sólveig Jónsdóttir
Digranesvegi 75,
er látin. Tilkynnt verður um útför hennar síðar.
Jóna Pálsdóttir Garðar Gíslason
Gunnar Steinn Pálsson Lilja Magnúsdóttir
Þórunn Ingibjörg Pálsdóttir Hafþór Kristjánsson
barnabörn og barnabarnabörn
Hannes Hafstein var umvafinn
sterkum konum allt sitt líf sem
höfðu vafalaust mikil áhrif á störf
hans og viðhorf.
arnartomas@frettabladid.is
Sagnfræðingurinn Sigríður Bachmann
flytur fyrirlestur í Hannesarholti í dag
þar sem hún mun ræða nokkrar þeirra
kvenna sem höfðu áhrif á líf Hannesar
Hafstein. Fyrirlesturinn er haldinn í
tilefni tíu ára afmælis Hannesarholts
en Sigríður vann einnig að sýningunni
„Konur – áhrifavaldar í lífi Hannesar
Hafstein“ sem má finna á fyrrum heimili
ráðherrans.
„Þegar ég fór að skoða sögu Hann-
esar varð mér f ljótt ljóst að hann hafi
verið á merkum tímamótum í kvenna-
sögunni,“ segir Sigríður, sem fór í kjöl-
farið að skoða hlutina í stærra samhengi.
„Hannes hefur verið þessi sterka lands-
föður-persóna – maður sér hann uppi
á hesti með kónginn við hliðina. Þegar
maður fer hins vegar að skoða hann frá
annarri hlið þá sér maður af hverju hann
er svo framarlega í kvenréttindabarátt-
unni á sínum tíma.“
Sigríður telur að kraftur Hannesar í
baráttunni sé tilkominn af tvennu.
„Annars vegar þá eru tímarnir að
breytast og í stað rómantíkur þá er raun-
sæið að taka við ásamt kvenfrelsisbar-
áttunni,“ segir hún. „En svo er hin hliðin
að Hannes er í mjög sterkum kvennafans
í gegnum sitt líf.“
Sigríður bendir þar á að Hannes
hafi átt f leiri systur en bræður og fleiri
dætur en syni. Þá hafi hann einnig verið
umvafinn öflugum konum sem ungur
maður.
„Hannes var sendur um tíu ára ald-
urinn í Skagafjörðinn til prestshjóna í
Rípurhreppi. Þar var prestskonan Ingi-
björg Eggertsdóttir ásamt fleiri konum
í hreppnum að stofna fyrsta kvenfélag
Íslands,“ útskýrir Sigríður. „Ég geri ráð
fyrir því að hann hafi heyrt þessar
umræður hennar um þetta og kannski
hefur honum ekki fundist óeðlilegt að
konur væru að spjalla um þetta.“
Á árum sínum í Lærða skólanum
hefur Hannes ef til vill lært mikið af
hálfsystur sinni, Þórunni Jónassen,
sem var á þeim tíma að stofna Thor-
valdsensfélagið. Þá var Hannes einnig
mikill trúnaðarvinur Bríetar Bjarn-
héðinsdóttur.
„Þau lásu mikið hvort fyrir annað og
unnu náið saman. Hún sagði honum allt
sem hún vildi að yrði gert og hann var
sammála og barðist fyrir því. Bríet talaði
oft um hversu mikil og góð samvinna
hefði verið þeirra á milli,“ segir Sigríður.
„Eftir að hafa kynnst öllum þessum
sterku konum fannst Hannesi þannig
kannski ekkert óeðlilegt að konur fengju
sömu réttindi og karlar.“
Fyrirlestur Sigríðar hefst klukkan 17 í
dag og aðgangur er ókeypis. n
Konurnar í lífi Hannesar
Kvenskörungarnir settu eflaust svip sinn á skoðanir Hannesar. myndir/aðsendar
Sigríður Bachmann sagnfræðingur.
16 tímamót FRÉTTABLAÐIÐ 16. FeBRúAR 2023
FImmtUDaGUR