Fréttablaðið - 16.02.2023, Síða 27
Ég spilaði fótbolta alla
mína barnæsku og
unglingsár og um leið
og það rúllar einhvers
staðar bolti þá sparka
ég í hann, það eru bara
líkamleg viðbrögð.
Leikritið Óbærilegur léttleiki
knattspyrnunnar skoðar
marglaga heim knattspyrn-
unnar þar sem allar heimsins
tilfinningar fá að njóta sín í
90 mínútur.
Viktoría Blöndal leikstýrir verk-
inu Óbærilegur léttleiki knatt-
spyrnunnar sem frumsýnt verður í
Tjarnarbíói í byrjun mars. Um er að
ræða leikrit eftir Ólaf Ásgeirsson og
hópinn sem fjallar um knattspyrnu-
menningu og er að sögn aðstand-
enda sýning fyrir alla sem elska og
hata fótbolta.
„Þetta er gluggi inn í þennan
heim sem margir þekkja en margir
kannast ekkert við og finnst bara
fáránlegur og hræðilegur. En verk-
ið er hundrað prósent líka fyrir þá
sem standa utan við þessa fótbolta-
menningu, því það er mjög létt að
skella við skollaeyrum og segja að
þetta sé bara kjaftæði og bull en
þessi heimur er raunverulegur fyrir
svo marga,“ segir Viktoría.
Marglaga karlmennska
Verkið fjallar um bræðurna Þorleif
Aron, kallaður Doddi, sem er frá-
skilinn maður á fimmtugsaldri, og
Óla Gunnar, yngri bróður hans, sem
hittast til að horfa á alla leiki Manc-
hester United saman í sófanum.
„Þetta er svolítið svona Ground-
hog Day hjá þeim, það eru hefðir
og venjur og allt svolítið fast í sessi
en þennan dag gerast ýmsir hlutir.
Allt fer eiginlega úrskeiðis, en samt
ekki,“ segir Viktoría.
Eru bræðurnir kannski svolítið
fastir í sama farinu?
„Kannski eru þeir að einhverju
leyti fastir en þeir eru líka bara
ánægðir með hlutskipti sitt. Þetta
er líf þeirra, yndi og ást. Í fótbolt-
anum eru allar heimsins tilfinn-
ingar, hvort sem okkar líkar betur
eða verr. Það eru fimm leikarar á
sviðinu, allt karlmenn, þannig að
við erum auðvitað að skoða aðeins
inn í þessa karlmennsku, sem er
marglaga.“
Er ekki fótbolti einmitt sport þar
sem karlmenn fá tækifæri til að tjá
alls konar tilfinningar sem þeir fá
vanalega ekki leyfi til að sýna?
„Algjörlega, þetta eru þessar 90
mínútur sem þeir hafa til að taka út
bara allar tilfinningar sínar. Takast
Allar heimsins tilfinningar í fótbolta
Viktoría Blöndal
er mikil fót-
boltakona og
heldur með
liðinu Arsenal í
ensku deildinni.
Fréttablaðið/
Ernir
Í verkinu leika
Starkaður Pét-
ursson, Ólafur
Ásgeirsson,
Sveinn Ólafur
Gunnarsson,
Albert Halldórs-
son og Valdimar
Guðmundsson.
Mynd/bErglind
rögnvaldsdóttir
á við skilnað eða missi eða bara lífið.
Þessir menn á okkar sviði, þeir fara í
gegnum allan skalann.“
Allir hafa skoðun á fótbolta
Spurð um hvort hún sé sjálf mikil
fótboltakona tekur Viktoría hik-
laust undir það.
„Ég spilaði fótbolta alla mína
barnæsku og unglingsár og um leið
og það rúllar einhvers staðar bolti
þá sparka ég í hann, það eru bara
svona líkamleg viðbrögð,“ segir hún.
Söguhetjur verksins eru miklir
Manchester United-menn en Vikt-
oría kveðst sjálf hafa verið alin upp
á Arsenal-heimili þótt hún fylgist
ekki ýkja mikið með enska bolt-
anum lengur.
„Ég fylgist ekki mikið með fót-
bolta en ég heyri í honum úti um
allt. Hann er alls staðar, hvar sem
maður kemur, hvort sem maður er í
fjölskylduboðum eða að fæða barn
eða hvar sem er, fótbolti er úti um
allt. Það hafa allir mjög sterkar skoð-
anir á fótbolta, hvort sem þeir hata
hann eða elska, sem er svo fyndið.
Fólk sem veit ekkert um fótbolta og
hefur aldrei spilað fótbolta hefur
mjög sterkar skoðanir á honum
og þeir sem eru í fótbolta hafa það
náttúrlega líka,“ segir hún.
Valdimar leikur sjálfan sig
Tónlistarmaðurinn Valdimar Guð-
mundsson stígur á svið í Óbærilegur
léttleiki knattspyrnunnar og leikur
sjálfan sig auk þess sem hann sér um
tónlistina.
„Hann leikur kannski svona
stórt hliðarskref af sjálfum sér. Það
verður mikil tónlist en hann á sér
draum, Valdimar, í verkinu og við
fáum að fara í gegnum það ferðalag
með honum,“ segir Viktoría.
Leikarar verksins eru allt karl-
menn en listrænir stjórnendur þess
allt konur, á öllum vígstöðvum og
eru allir aðstandendur sýningar-
innar miklir fótboltaáhugamenn.
„Þetta eru fimm karlmenn inni
á sviði en svo eru bara konur utan
sviðs. Leikstjórn, dramatúrgía,
sviðshreyfingar, tækni, hljóð, sviðs-
mynd og búningar. Þannig það
gefur þessu líka mjög skýran blæ.
Allir hafa tengingu við fótbolta
þannig að þetta er ekki við að hlæja
og benda á þessa fótboltamenningu,
heldur slær hjartað í henni, þannig
við skiljum og erum þarna,“ segir
Viktoría.
Í verkinu leika Albert Halldórs-
son, Ólafur Ásgeirsson, Starkaður
Pétursson, Sveinn Ólafur Gunnars-
son og Valdimar Guðmundsson. n
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
FréttAblAðið menning 1916. FebrúAr 2023
FimmTUDAgUR