Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 11
Af því að við erum of fín með okkur. Meik- um ekki slorið og gorið, niðurganginn og æluna. Karl Th. Birgisson n Í dag Tvö af stærstu ágreiningsefnum á Íslandi þessar vikurnar snúast um efnalítið og fátækt fólk. Sú staðreynd ein staðfestir enn og aftur hversu mikilvæg baráttan fyrir kjörum þess er. Það er gömul saga og ný. Nýlundan er núna sú, að langflest af þessu fólki er útlendingar. Af því að Íslendingar nenna ekki að vinna erfiðu störfin. Við erum of fín með okkur. Það er einn verkurinn Einkum af því að á sama tíma og vel f lest lægstlaunaða fólkið innan Eflingar er útlendingar hefur ríkis- stjórn Katrínar Jakobsdóttur ákveð- ið að níðast enn frekar á illa settum útlendingum. Með nýjum lögum um þá. Hér er ekki tóm til að rekja efn- isatriði þeirra mála, einungis reynt að setja í samhengi. Jón Gunnarsson, Sigmundur Davíð og Inga Sæland – að ég nefni ekki Birgi Þórarinsson, þennan með altarismyndina af sjálfum sér í prí- vatkirkjunni sinni – klifa á því að svokölluð útlendingamál séu „alger- lega stjórnlaus“ Það er rakin þvæla, og orðbragðið er vísvitandi. 450 milljónir Á morgun gætu 450 milljónir manna flutt til Íslands, ef þau kysu svo. Og ef aðstæður byðu upp á það, til dæmis húsnæði. En annars alveg athugasemda- laust. Af því að það er ferða- og atvinnufrelsi innan EES. Fáein þúsund fólks, sem þarf á skjóli að halda, skapa ekkert stjórnleysi. Slíkar frasaklisjur lýsa vanmætti þeirra sem ráða ekki við verkefnið og kjósa að kenna öðrum um. Útlendingunum. Fyrr á öldum var fólki sjaldnast úthýst í íslenzkum sveitum, beidd- ist það gistingar, en einstaka smá- sál lokaði þó dyrunum með þeim orðum að „þetta“ væri trúlega lúsugt, þótt innan dyra væru f leti, hlýja og nægur grautur. Sú hugsun er enn undirliggjandi þema í máli þeirra sem vilja loka Fátækt fólk, taka tvö FRÉTTAVAKTIN KL. 18.30 ALLA VIRKA DAGA Fjölbreytt fréttaumfjöllun í opinni dagskrá fyrir fólkið í landinu. Úrvalslið fjölmiðlafólks fer yfir fréttayfirlit dagsins ásamt því að fá til sín góða gesti til að ræða helstu mál líðandi stundar. Þátturinn er sýndur á Hringbraut og frettabladid.is dyrunum. Ögn meira um það á eftir. Hreinir eiginhagsmunir Önnur þvæla – jájá – er að nýbúar megi ekki koma til Íslands nema eftir skýrt skilgreindri neyð og alls ekki í leit að betra lífi eða af „efna- hagslegum ástæðum“. Það er svo mikill kostnaður af þessu hyski. Einmitt. Segið það sjúkrahúsunum, hótel- unum, fiskvinnslunni og öðrum verksmiðjum úti um allt land ára- tugum saman – eða bara sláturhús- unum. Helvítis útlendingarnir halda þessari starfsemi uppi, og við þyrft- um fleiri af þeim frekar en hitt. Af því að við erum of fín með okkur. Meikum ekki slorið og gorið, niðurganginn og æluna. Þegar Inga Sæland vill enn einu sinni etja saman fátækum útlend- ingum, sem halda uppi nauðsyn- legri þjónustu, og öðru fátæku fólki – til dæmis öryrkjum og sumu eldra fólki – yfirsjást henni þessar grjót- hörðu staðreyndir. Kannske er Inga ekki rasisti, eins og hún segir. En hún talar af dæmi- gerðri evrópskri útlendingaandúð. Þið dragið svo bara ykkar álykt- anir. Já – rasisminn Eiríkur Bergmann hefur leitt að því rök í sínum fínu skrifum hvers vegna á Íslandi hefur aldrei orðið til alvöru rasistaf lokkur: Rasisminn svolgraðist inn í hina flokkana. Nazistarnir gengu í Sjálfstæðis- flokkinn og ekki vantaði kynþátta- hyggjuna í gamla Framsóknar- flokkinn. (Eða hinn nýja: „Á ég að halda á þessari svörtu?“) Við lokuðum dyrunum á gyðinga fyrir seinna stríð og sendum þá þar með í opinn dauðann. Við tókum blessunarlega á móti fjölda Ungverja upp úr 1956. Áhuga- fólk um íslenzka tónlistarsögu veit hvaða ávexti það bar. Um miðjan áttunda áratuginn varð talsvert uppnám þegar tekið var á móti „bátafólki“ frá Víetnam. Þá var þjóðmenningin í uppnámi og við skipuðum þessu fólki vita- skuld að taka upp íslenzk nöfn. Eilífur Friður hefur alltaf verið í uppáhaldi. En þjóðmenningin fór náttúr- lega á hliðina. Við fengum núðlur og Nings. Svo mætti lengi telja, en gyðingar okkar tíma eru múslimar. Nýja ras- istatízkan er múslimaandúð, eins og dæmin sanna á hverjum degi. Fátækt fólk Fyrir því eru semsagt ótal eigin- hagsmunarök að fá til Íslands fleira fólk en færra, en þau eru hjóm fyrir þá sem eiga í hlut. Það er nefnilega fólk í leit að betra lífi. Eðli málsins samkvæmt f lytja fáir til Íslands vegna veðurfarsins. Barátta Eflingar – og allra hreyf- inga launafólks – snýst að stórum hluta um þetta fólk. Tryggvi Emilsson sendi frá sér hálfáttræður bókina Fátækt fólk. Ári síðar kom Baráttan um brauðið. Gömul saga og ný. Væri einhver til í að redda Hall- dóri Benjamín og Katrínu Jakobs- dóttur bókasafnskorti? Þau virðast hafa týnt sínum. Við þurfum nefnilega að læra. n FRÉTTABLAÐIÐ SKOÐUN 1117. FEBRÚAR 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.