Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 22
Þetta var feikileg blóðtaka. Til að birta andláts-, útfarar- eða þakkartilkynningar í Fréttablaðinu þarf að senda tölvupóst á timamot@frettabladid.is eða hringja í síma 550 5055 . MERKISATBURÐIR | Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Guðrún Ormsdóttir kennari, áður til heimilis á Hvolsvelli, lést á hjúkrunarheimilinu Brákarhlíð mánudaginn 13. febrúar. Útför hennar verður frá Áskirkju í Reykjavík þriðjudaginn 21. febrúar kl. 11.00. Kristín Helga Gísladóttir Magnús Einar Magnússon Ásgeir Gíslason Hafdís Hulda Friðriksdóttir Jóhanna Lovísa Gísladóttir Valgeir Guðmundsson barnabörn og barnabarnabörn Móðir okkar, amma og langamma, Magnea Rósa Tómasdóttir lyfjafræðingur, Skólabraut 3, Seltjarnarnesi, lést á Minni-Grund í Reykjavík sunnudaginn 5. febrúar. Útför fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju föstudaginn 24. febrúar kl. 13.00 Sigríður Erla Gunnarsdóttir Áslaug María Gunnarsdóttir Darri Gunnarsson Ívar Karl, Ægir Sindri, Óðinn Dagur, Iða Brá, Harpa Lind, Gunnar Dagur, Rósa Líf, Hilda Sól, Gottskálk Darri og fjölskyldur Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, Margrét Stefánsdóttir Hvassaleiti 56, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 14. febrúar. Útför hennar verður auglýst síðar. Stefán Bergsson Jenný G. Magnúsdóttir Tómas Bergsson Nína V. Magnúsdóttir Bergljót Bergsdóttir Birna H. Bergsdóttir Ólafur N. Sigurðsson barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginmaður og besti vinur minn, faðir okkar og tengdafaðir, afi og langafi, Heinz Herbert Steimann Lómasölum 4, Kópavogi, lést á deild 4B á Landspítalanum í Fossvogi 5. febrúar. Útför fór fram 16. febrúar í kyrrþey frá Fríkirkjunni í Reykjavík. Innilegar þakkir færum við læknum og starfsfólkinu á deild 4B, fyrir hlýju og yndislega umönnun. Erla Helena Ísaksen Guðrún Alma Steimann Carlis Wallace Jóhann Viktor Steimann Margrét Halldórsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Áttatíu ár eru liðin frá því að 31 lét lífið þegar skipið Þormóður fórst við Garðskaga. Slysið hafði einkar mikil áhrif á Bíldudal sem varð fyrir mestum mannskaða. arnartomas@frettabladid.is Á morgun verða liðin áttatíu ár frá einu mannskæðasta sjóslysi Íslandssögunnar þegar vélskipið Þormóður fórst við Garðskaga í fárviðri með öllum um borð, 31 talsins. Bíldælingurinn Jakob Ágúst Hjálmarsson gerði grein fyrir slysinu í bók sinni Allt þetta fólk – Þormóðsslysið 18. febrúar 1943, sem gefin var út 2017. „Ég var nú allan tímann að vona að einhver annar tæki sér þetta fyrir hend- ur. Þegar ég sá að það myndi ekki verða, og ég hafði dregið heilmikið efni saman um málið, þá ákvað ég að gera þetta sjálfur enda hafði ég ágætt tóm til þess verandi nýhættur störfum,“ segir Jakob. „Við fólkið, eftirlifendur og afkomendur, höfðum alla ævina saknað þess að geta ekki talað um þetta við foreldra okkar. Þetta var svo sárt fyrir þeim að þau fóru bara að gráta þegar þau ætluðu að tala um þetta. Þá lærði maður að þetta varð að liggja í þagnargildi en það er ómögu- legt til lengdar  þegar um svo stóran atburð er að ræða.“ Dýrkeyptar seinkanir Þormóðsslysið átti sér stað á stríðsárun- um þegar engar skipafréttir voru fluttar eða gefnar út áætlanir um siglingu far- þegaskipa. Þá var orðið heldur langt síðan að ferð hafði fallið frá Bíldudal og suður. „Það voru sjómenn sem þurftu að komast til skipa sinna í Reykjavík, stúlkur sem þurftu að komast í vistir, forráðamenn fyrirtækja  að ganga frá sínum málum fyrir sunnan og f leira,“ segir Jakob. „Það hafði byggst upp mikil óþolinmæði eftir því að komast svo það var gert að ráði að koma við með Þor- móð á Bíldudal en hann var í flutningum á kjöti úr Húnavatnssýslu fyrir herinn.“ Veður var gott þegar Þormóður kom inn á Bíldudal en skipstjórinn sá fyrir sér að hann kæmist suður á fjórtán tímum eða svo. En þá var tekið upp á því að skipið myndi koma við á Patreksfirði þar sem bíða þurfti í nokkurn tíma eftir farþegum. Þormóði hafði þá seinkað þó nokkuð og veðrið fór versnandi. „Hafa þarf í huga að það voru ekki gefnar úr neinar veðurfregnir heldur. Þegar Þormóður álpast út fyrir Öndverð- arnes og út í Faxaflóa var veðrið orðið snarvitlaust,“ segir Jakob. „Vindáttin var þannig að hann varð að halda upp í vestanáttina og ætlaði sér greinilega að koma inn að Keflavík.“ Skipið lenti út fyrir Garðskagann þar sem staðkenning fékkst fyrst þegar sást í Stafnesvita. Þormóður fór að taka inn sjó, það dó á vélinni og svo barðist hann yfir Garðskagaf lösina áður en hann sökk. Langur skuggi Eftirmál slyssins voru mikil. „Þetta var rætt á Alþingi þar sem Gísli Jónsson, eigandi skipsins og alþingis- maður, hvatti til þess að rannsakað yrði sem best hvernig þetta bar allt saman til,“ segir Jakob en í kjölfarið fylgdi mikill pólitískur stormur. „Þetta átti sér stað á tíma mikilla skiptapa vegna Eng- landssiglinganna þannig að mönnum var mikið í mun að reyna að tryggja svona hluti.“ Meðal þess sem Gísli benti á var að vitinn á Garðskaga hafi verið allt of lítill enda var nýr viti reistur 1944. Menn lágu lengi á skýrslu Þjóðdómsins um málið og segir Jakob að greinilegt hafi verið að í gangi hafi verið einhverjar yfirhylm- ingar svo ekki var auðvelt að átta sig á hver gangur mála hafi verið. Áhrif slyss- ins voru þó mest á Bíldudal sem varð fyrir mestum mannskaðanum. „Þetta slys varpaði löngum skugga, og í þessum skugga vorum við sem ung börn og unglingar og auðvitað foreldrar okkar líka. Þetta var feikileg blóðtaka.“ n Áttatíu ár frá Þormóðsslysinu Garðskagaviti eldri var tekinn úr notkun eftir slysið þegar ákveðið var að hann væri of lágur. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN Þormóður hélt merkilega lengi út í fárviðrinu miðað við getu skipsins. 1510 Portúgalski aðmírállinn Afonso frá Albuquerque vinnur borgina Góu á sitt band, átakalítið. 1867 Fyrsta skipið siglir í gegnum Súesskurðinn í Egypta- landi. 1880 Alexander annar Rússakeisari kemst lifandi frá banatilræði. 1904 Madame Butterfly er frumsýnd í fyrsta sinn í óperuhúsinu La Scala í Mílanó. 1924 Johnny Weissmuller setur heimsmet í 100 metra sundi með frjálsri aðferð og syndir vegalengdina á 57,4 sekúndum í Miami í Flórídaríki. 1933 Fyrsta tölublað tímaritsins Newsweek kemur fyrir augu lesenda. 1963 Körfuboltagoðsögnin Michael Jordan fæðist. 1969 Ísraelinn Golda Meir sver emb- ættiseið sem forsætisráðherra Ísraels. Hún er fyrsta konan til að gegna því embætti. 1975 AC/DC gefa út sína fyrstu plötu, High Voltage. 1981 Bandaríska leik- konan Paris Hilton fædd. 1996 Garry Kasparov vinnur ofur- skáktölvuna Deep Blue með fjórum vinningum gegn tveimur. 2008 Kósóvó lýsir yfir sjálf- stæði. 14 TÍMAMÓT FRÉTTABLAÐIÐ 17. FEBRÚAR 2023 FÖSTUDAGUR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.