Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 17
21. febrúar
þriðjudagur
n Þjóðsögur á þriðjudögum
kl. 16.15
Ásmundarsafn
Boðið er upp á krassandi þjóð-
sagnalestur fyrir börn og
fjölskyldur þeirra alla
þriðjudaga í tengslum
við sýninguna Sigga
Björg og Ásmundur
Sveinsson: Andar-
dráttur á glugga.
Hefðbundnar ís-
lenskar þjóðsögur,
kryddaðar með
glænýjum
þjóðsögum
eftir Siggu
Björgu.
Hvað er um að vera í næstu viku?
Sú hefð að konur fái blóm í til-
efni konudagsins virðist hafa
hafist um miðjan sjötta áratug
síðustu aldar en þá tóku blóma-
salar að auglýsa konudagsblóm.
Þórður á Sæbóli í Kópavogi mun
hafa verið upphafsmaður þess
en fyrsta blaðaauglýsingin sem
hefur fundist frá Félagi garð-
yrkjubænda og blómaverslana er
frá 1957. n
n Konudagsblóm
Á sunnudaginn er konudagurinn
en það er fyrsti dagur fornnorræna
mánaðarins góu, sem er sunnu-
dagurinn í átjándu viku vetrar á
milli 18. og 24. febrúar. Dagurinn er
húsfreyjunni til heiðurs og góu er
fagnað, sem færir með sér vaxandi
birtu og vorinnganginn og þorrinn
er kvaddur.
Íslendingar hafa haldið upp á
konudaginn í áratugi og er hann
einn af þjóðlegum tyllidögum
okkar. Þessi hefð er falleg og brýtur
upp hversdagsleikann og gefur
lífinu lit.
Gleðjum konurnar
Vert er að halda í hefðina og gleðja
konurnar í lífi okkar. Hægt er að
gera það á margvíslegan hátt, bæði
með fallegum gjöfum og upplif-
unum sem búa til góðar minningar.
Til að mynda er fjöldi veitinga-
staða með girnileg sælkeratilboð í
tilefni konudagsins alla helgina og
bjóða fram sælkeramáltíð í tilefni
dagsins. Blómasalar eru í essinu
sínu og galdra fram hina fegurstu
blómvendi.
Bakarar og konditorar leggja
sig fram við að baka köku ársins,
sem má kalla ástarkökuna í ár, og
sælkerabakkelsi sem bráðnar í
Konudagurinn er á sunnudaginn
munni. Svo er hægt að taka forskot
á bollusæluna og bjóða ástinni upp
á ómótstæðilega bollu. Fjölmargar
verslanir og gallerí bjóða upp á
fallegt handverk, hönnunarvörur,
vandaðar flíkur og hvað eina sem
hugurinn girnist í tilefni dagsins.
Einnig er dásamleg tilfinning að
geta komið konunni á óvart með
spennandi upplifun, til að mynda
óvissuferð út á land, heimsókn í
náttúrulaugar, að bjóða henni í
nudd og spa, færa henni morgun-
verð í rúmið með rómantísku
ívafi, í ljúffengan dögurð, róman-
tískan kvöldverð heima eða ferð
upp á jökul. Ferð í leikhúsið eða í
menningarferð í borg ástarinnar
gleður líka, þetta snýst fyrst og
fremst um að finna leiðina að
hjarta þinnar konu og áhugasviði.
Það eru margar leiðir færar til að
gleðja og tjá ást sína á einlægan
og eftirminnilegan hátt. Hvert og
eitt getur gert það með sínu nefi
og veit best hvað gleður konurnar
í sínu lífi. Vert er að minna á að
það má líka gleðja dætur, mæður,
systur, ömmur, frænkur og góðar
vinkonur! n
22. febrúar
miðvikudagur
n Gleym mér ei hádegistón-
leikar kl. 12.15
Kjarvalsstöðum
Nemendur í söng og hljóðfæra-
leik við tónlistardeild Listahá-
skóla Íslands gleðja gesti og
gangandi með ljúfum hádeg-
istónum
n Myndasögusulta kl. 17.00
Loft Hostel
Íslenska myndasögusam-
félagið heldur fyrstu
myndasögusultu ársins
2023 á 4. hæð Loft
Hostel. Áhugafólki
um myndasögur og
myndasögugerð er
boðið að kíkja við,
sýna verk sín og sjá
og hafa það notalegt
saman.
n Spunaspilavinir
kl. 18.00
Spilavinir
Spunaspilavinir er
mánaðarlegur hittingur
hlutverkaspilara þar sem boðið
er upp á einþáttunga (e. one
shot) sem stýrt er af sumum af
bestu dýflissumeisturum lands-
ins. Þátttakendum býðst að skrá
sig fyrir fram eða sæta færis á
að mæta og sjá hvort enn þá séu
laus sæti. Stjórnendur eru mjög
byrjendavænir og hafa gaman
af því að leiða nýja spilara inn í
áhugamálið.
n Lindy Ravers danskvöld kl.
19.00
KEX
Prufutími kl. 19, dansiball
kl. 20. Aðgangseyrir 1.000
krónur, enginn posi.
23.febrúar
fimmtudagur.
n Grillum Þórhall kl. 21.00
Gaukurinn
Þórhallur Þórhallsson er að
verða fertugur og í tilefni
þess ætla vinir hans að rakka
hann niður opinberlega.
Ekki missa af þessu óheflaða
uppistandi sem er ekki fyrir
viðkvæma.
Kaka ársins í ár er með karamellu, heslihnetum og ástaraldinum. Minnir á
hækkandi sól. MYND/MOSFELLSBAKARÍ
RÓMÓ Á
ÞJÓMÓ
Rómantísk leiðsögn klukkan 15:00 - konudaginn 19. febrúar
ALLT kynningarblað 5FÖSTUDAGUR 17. febrúar 2023