Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 32

Fréttablaðið - 17.02.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is 550 5000 RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is PRENTUN & DREIFING Torg ehf. 2022 - 2025 Undanfarna mánuði hefur mér tekist, með herkjum, að hemja sveitakonuna í mér og forðast að baka tíu kíló af smákökum í desember. Í febrúar halda henni hins vegar engin bönd. Hún vaknar úr dvala, ekki blíðlega eins og páskalilja, heldur ryðst fram eins og krapaflóð sem engu hlífir. Hún þarf ekki einungis að skipuleggja matjurtaræktun sumarsins (halló Excel!), heldur forsá þeim tegund- um sem þurfa hlýju við upphaf ævi- skeiðsins, skipuleggja skiptiræktun og tryggja gott kartöfluútsæði. Sem, eðlilega, fer fram í heimagerðu gróðurhúsi á skrifstofunni. Nýverið ákvað hún að fara alla leið, sem sagt að loka hringnum og búa til sinn eigin jarðveg. Einhver eiga kannski erfitt með að skilja gleðina sem er falin í því að sjá líf- rænt eldhúsrusl breytast í áburð og síðar í jarðveg, sem síðan breytist í grænmeti sumarsins. Trúið mér bara, gleðin er botnlaus. Í þessu öllu felst þó ekki bara persónulegur ávinningur; græn- meti laust við eiturefni, líkamleg vinna, útivist og andleg næring. Við flytjum inn, í tonnatali, fjölda grænmetistegunda sem er nokkuð auðvelt að rækta í venjulegum garði á Íslandi yfir sumartímann. Innflutningurinn krefst þess að við brennum jarðefnaeldsneyti - en um það bil fjórðungur gróðurhúsaloft- tegunda verður til við iðnaðarfram- leiðslu og flutning matvæla. Væri ekki gáfulegra að hvetja fólk til að nota hluta grasbletta sem eru í kringum flest hús til að rækta matjurtir? Þó það dugi kannski ekki fyrir allt sem við borðum þá komumst við samt furðu langt. Það borgar sig nefnilega að rækta garð- inn sinn, fyrir okkur og jörðina. n Að rækta garðinn BAKÞANKAR | Jóhönnu Vigdísar Guðmundsdóttur M O L A R As tr id Li nd gr en 9líf Bubbi Morthens Söngleikur Eftir Thomas Vinterberg Mátulegir Barnasýning ársins 2022 Prinsessuleikarnir Fleiri sýningar á borgarleikhus.is midasala@borgarleikhus.is | 568 8000 Fyrir fólk í leit af nýjum tækifærum

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.