Fréttablaðið - 22.02.2023, Page 4

Fréttablaðið - 22.02.2023, Page 4
Við erum að taka saman samskiptin út af þessu húsi. Stefán Þór Eysteinsson, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar Við förum ekki í gulu vestin milli fyrirtækja til að skoða hvernig starfseminni er háttað. Ragnar Árnason, forstöðumaður vinnumarkaðs- sviðs SA kristinnhaukur@frettabladid.is AUSTURLAND Samkvæmt Stefáni Þór Eysteinssyni, formanni bæjar- ráðs Fjarðabyggðar, er meirihluta- samstarf Fjarðarlistans, sem hann fer fyrir, og Framsóknarf lokksins ekki í hættu. Þegar sé nýr bæjar- stjóri kominn í sigtið. „Þegar Jón Björn tilkynnti okkur að hann myndi hætta ræddum við um að meirihlutasamstarfið myndi halda áfram sterkt. Á því verður engin breyting,“ segir Stefán Þór. Eins og Fréttablaðið greindi frá í gær á Jón Björn Hákonarson, bæjarstjóri og oddviti Framsóknar- f lokksins, sumarhús í Norðfirði sem ekki er á skrá heldur aðeins lóðin. Þar af leiðandi hafa ekki verið greidd fasteignagjöld af hús- inu. Að ósk minnihluta Sjálfstæðis- manna verður málið tekið fyrir á fundi bæjarráðs næstkomandi mánudag. „Þetta mál er í eðlilegum farvegi hjá okkur. Við erum að taka saman samskiptin út af þessu húsi,“ segir Stefán Þór, aðspurður hvort Jóni Birni sé stætt á því að sitja áfram fram í mars, en þá hyggst hann hætta sem bæjarstjóri og bæjar- fulltrúi. Jón Björn segir sjálfur að uppsögn sín tengist ekki máli bústaðar ins. Stefán Þór segir að ekkert meira verði gert í augnablikinu, það er fyrr en bæjarráð fjalli um málið. Jóna Árný Þórðardóttir, fram- kvæmdastjóri Austurbrúar, verður næsti bæjarstjóri Fjarðabyggðar. Frá þessu var gengið í gær og greint frá á vef Austurfréttar. n Meirihlutasamstarfið ekki í hættu vegna bústaðamálsins Yfirvofandi verkbann SA á Eflingarfólk mun skilja fólk eftir án framfærslu. Skylda liggur þó á hinu opinbera og jafnvel fjölskyldum sé fólk komið á vonarvöl. kristinnhaukur@frettabladid.is KJARAMÁL Lagalega ber engum skylda til að grípa félagsfólk Ef l- ingar sem verður fyrir mögulegu verkbanni Samtaka atvinnulífsins. Almenn framfærsluskylda gildir þó enn í landinu, á hinu opinbera og fjölskyldum. „Ef fólk er á vonarvöl getur það átt rétt á styrk til framfærslu,“ segir Lára V. Júlíusdóttir, hæstaréttar- lögmaður og sérfræðingur í vinnu- rétti. „Það er framfærsluskylda hjá sveitarfélögum og meira að segja innan fjölskyldna. En það er mjög langur ferill frá því að fólk verður tekjulaust og að því að það eigi rétt á framfærslu hins opinbera. Það getur tekið mánuði eða ár.“ Taki verkbann gildi þann 2. mars næstkomandi á það við um 20.600 starfsmenn Ef lingar sem starfa undir almennum samningi SA og Eflingar eða veitinga- og gistisamn- ingnum. Á bilinu 3 til 4 þúsund eru þegar í verkfalli og verkbann á ekki við um hópa sem starfa undir sér- kjarasamningum, svo sem starfs- menn einstakra sjálfstæðra grunn- og leikskóla eða einstakra annarra fyrirtækja, svo sem hjá Orkuveitu Reykjavíkur. Sólveig Anna Jónsdóttir, for- maður Eflingar, hefur lýst því yfir að ekki verði greitt úr vinnudeilu- sjóði vegna verkbanns. Í lögum Efl- ingar, sem birt eru á netinu, er ekki að finna reglur um vinnudeilusjóð en Lára segir að slíkar reglur eigi lögum samkvæmt að vera til. Fólk hafi greitt til stéttarfélags í trausti þess að geta gengið að fé þegar á þurfi að halda. Vinnumálastofnun mun ekki greiða bætur vegna verkbanns. Sver r ir B. Ber ndsen, y f irlög- fræðingur hjá stofnuninni, segir atvinnuleysisbætur hvorki greiddar í verkföllum né verkbanni. „Lög um atvinnuleysistryggingar gilda þegar einstaklingar verða atvinnulausir eftir að hafa misst starf sitt,“ segir Sverrir. Sérstaklega sé tekið fram í lögum um atvinnuleysistryggingar að verkföll eða verkbann takmarki rétt til atvinnuleysistrygginga. Heiða Björg Hilmisdóttir, for- maður Sambands íslenskra sveitar- félaga, segir mjög ólíklegt að það komi til kasta sveitarfélaga að veita fjárhagsaðstoð til fólks í kjara- baráttu, hvort sem um sé að ræða verkföll eða verkbönn. „Það væri þá ekki nema í kjölfar hamfara á vinnumarkaði þar sem fólk væri án framfærslu í lengri tíma,“ segir hún. Fréttablaðið sendi fyrirspurn á Guðmund Inga Guðbrandsson, félags-og vinnumarkaðsráðherra, um hvort ríkið myndi grípa fólk í fyrirsjáanlegu neyðarástandi, líkt og gert var fyrir fyrirtæki landsins í faraldrinum, en ekki hafa enn borist svör. Fyrir utan hina óljósu framfærslu tug þúsunda manns þá mun mörg önnur starfsemi raskast komi til verkbanns. Jóhannes Rúnarsson, framkvæmdastjóri Strætó, segir bíl- stjóra hjá einum af þremur rekstr- araðilum hjá Eflingu. Þetta er um þriðjungur af leiðunum. Auk þess sé ræstingafólk hjá fyrirtækinu í Efl- ingu. „Ef við fáum ekki undanþágu mun þetta hafa áhrif á leiðakerfið,“ segir Jóhannes en er þó bjartsýnn á að fá hana. Þegar hafi Strætó fengið undanþágu vegna olíudreifingar í verkfalli Eflingar. „Samtök atvinnulífsins sjá engan ávinning í að lama almenningssam- göngur,“ segir Ragnar Árnason, for- stöðumaður vinnumarkaðssviðs SA. Reiknar hann með því að sótt verði um undanþágur, bæði hjá Strætó og annarri grunnþjónustu, svo sem skólum. Aðspurður um áhrif á fyrirtæki segist Ragnar gera ráð fyrir að starf- semi verði þegar víða löskuð vegna verkfalla. Til dæmis hjá matvæla- fyrirtækjum sem krefjast daglegrar ræstingar. SA muni hins vegar ekki sinna verkbannsvörslu. „Við stöndum ekki í slíku. Við förum ekki í gulu vestin milli fyrirtækja til að skoða hvernig starfseminni er háttað. Enda vitum við ekki í hvaða stéttar- félögum starfsfólk er og höfum ekki heimildir til að spyrja fólk út í það,“ segir Ragnar. n Fái aðeins framfærslustyrk á vonarvöl SA hefur boðað verkbann á stærstan hluta Eflingarfólks. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR olafur@frettabladid.is STJÓRNSÝSLA Eins og fram kom í Fréttablaðinu síðastliðinn föstudag eignaðist framkvæmdastjóri fjár- málastöðugleika hjá Seðlabanka Íslands, einkahlutafélag sem áður var í eigu Steinars Þórs Guðgeirs- sonar lögmanns í nóvember 2019. Haukur Camillus Benediktsson, framkvæmdastjóri í Seðlabank- anum og Steinar Þór hafa unnið náið saman frá árinu 2013. Haukur var framkvæmdastjóri Eignasafns Seðlabanka Íslands og Steinar Þór vann umfangsmikil ráðgjafarverk- efni fyrir það. Haukur var í stjórn Lindarhvols ehf. sem annaðist sölu á stöðugleika- eignum sem ríkið fékk frá slitabúum. Rekstur Lindarhvols var í höndum Steinars Þórs sem hefur fengið hundruð milljóna fyrir þessi störf. Einkahlutafélagið Grjótatún ehf. var í eigu Steinars Þórs fram í nóvem- ber 2019. Skráður tilgangur félagsins var lögfræðiþjónusta. 29. nóvember 2019 voru tilkynnt eigendaskipti á Grjótatúni og nafni þess var breytt í Hraunból ehf. Nýr eigandi var Haukur Camillus Bene- diktsson, sem um svipað leyti var ráðinn til Seðlabankans. Í ársreikningi Hraunbóls 2019 kemur fram að félagið hagnaðist um 20 milljónir eftir skatta og eigið fé þess í árslok 2019 var 21,5 milljón. Þrátt fyrir eigendaskiptin er Steinar Þór Guðgeirsson enn skráður eini stjórnarmaður þess. Lögfræði- þjónusta var áfram tilgangur félags- ins í tæpt eitt og hálft ár, fram í apríl 2021, en Haukur er ólöglærður. Hvorki Haukur né Steinar Þór hafa svarað spurningum Fréttablaðsins um viðskiptin. Fréttablaðið hefur sent Ásgeiri Jónssyni spurningar, meðal annars um það hvenær Seðla- bankanum varð kunnugt um þessi viðskipti Hauks og Steinars Þórs og hvort Seðlabankinn hafi óskað skýr- inga á þessum viðskiptum. Þá var spurt um kaupverðið og hve mikið eigið fé var í félaginu þegar Haukur eignaðist það. Hvernig tekjur urðu til hafi þær orðið til eftir að Haukur eignaðist það. Einnig var spurt hvort Seðla- bankinn telji eðlilegt að maður í framkvæmdastjórn bankans eigi viðskipti af þessu tagi við einstakling sem er í umsvifamiklu viðskipta- sambandi við bankann. n Spurður um viðskipti starfsmanns Ásgeir Jónsson, seðlabanka- stjóri kristinnpall@frettabladid.is SKAGAFJÖRÐUR Á fundi byggðar- ráðs Skagafjarðar í gær var því vísað til sveitastjórnar að fækka kjör- deildum úr átta niður í þrjár. Fram- vegis verði kjördeildirnar á Sauðár- króki, Hofsósi og í Varmahlíð. Í bókuninni kemur fram að þró- unin á landsvísu sé á þann máta að verið sé að fækka kjördeildum víðs vegar og litið til þess að búið er að bæta samgöngur. Í síðustu alþingiskosningum voru kjördeildir meðal annars í Skagaseli, grunnskólanum að Hólum, Höfða- borg Hofsósi og í Varmahlíð. n Leggja til að fækka kjördeildunum kristinnpall@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR Handbolt asamband Íslands, HSÍ og Guðmundur Þ. Guð- mundsson komust í gær að sam- komulagi um starfslok Guðmundar sem þjálfari karlalandsliðsins. Með því lýkur þriðju törn Guðmundar sem þjálfari liðsins sem spannar 22 ár og 16 stórmót. Guðmundur átti rúmt ár eftir af samningi sínum en í tilkynningu HSÍ segir að samkomulagið sé í sátt beggja aðila. Undir stjórn hans lenti liðið í 6. sæti á EM í fyrra en olli von- brigðum á HM á dögunum þar sem það endaði í 12. sæti. n Leiðir skilja hjá Guðmundi og HSÍ Guðmundur Þ. Guðmundsson 4 FRÉTTIR FRÉTTABLAÐIÐ 22. FEBRÚAR 2023 MIÐVIKUDAGUR

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.