Fréttablaðið - 22.02.2023, Qupperneq 12
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jón Þórisson RITSTJÓRI: Sigmundur Ernir Rúnarsson ser@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is
FRÉTTASTJÓRI: Lovísa Arnardóttir lovisa@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út fimm daga í viku og hægt er að nálgast það ókeypis á 120 fjölförnum stöðum á höfuðborgarsvæðinu, á Suðurnesjum, Árborg, Ölfusi, Akranesi, Borgarnesi,
Akureyri og víðar. Að auki er blaðið aðgengilegt í pdf-formi og í appi. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101
Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is. VEFSTJÓRI: Einar Þór Sigurðsson einarthor@frettabladid.is MARKAÐURINN: Guðmundur Gunnarsson ggunnars@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is
MENNING: Þorvaldur S. Helgason tsh@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Hörður Snævar Jónsson hoddi@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is
HALLDÓR
FRÁ DEGI TIL DAGS
Tal um
orðræðu er
í raun gas-
lýsing enda
fáheyrt
að þar sé
vísað til
samtals,
samræðu
eða skoð-
anaskipta. Ólafur
Stephensen
framkvæmda-
stjóri Félags at-
vinnurekenda
„Það er mín skoðun að við séum komin algjörlega
út í ystu mörk á skattlagningu [áfengis]. Þá er ég
einfaldlega að vísa til þess að við erum líklega með
eina dýrustu bjórkrús í Evrópu,“ sagði Bjarni Bene-
diktsson, fjármálaráðherra og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, á netfundi með flokksmönnum sínum í
júní 2021. Rétt hjá honum. Áfengisskattar á Íslandi
eru þeir langhæstu í Evrópu og áfengisverðið eftir
því.
Þetta er sami Bjarni og lagði til sem fjármálaráð-
herra í síðasta fjárlagafrumvarpi að hækka almenna
áfengisskatta um 7,7% – og í fríhafnarverzlunum
voru þeir hækkaðir um 169%. Þetta var réttlætt í
greinargerð fjárlagafrumvarpsins með því að það
væri aðeins verið að láta krónutöluskatta fylgja
verðbólgunni – og svo fylgdi kolröng staðhæfing um
að þessi gjöld hefðu verið „óbreytt frá árinu 2019“.
Áfengisgjald hefur verið hækkað árlega og nemur
uppsöfnuð hækkun þess 16% frá 2019 til 2023.
Félag atvinnurekenda tók sér fyrir hendur, í sam-
starfi við Spirits Europe, Evrópusamtök áfengis-
framleiðenda, að skoða hvernig áfengisskattar hefðu
breytzt í Evrópuríkjum um áramótin. Rétt eins og á
Íslandi var metverðbólga í f lestum ríkjum álfunnar á
síðasta ári og erfitt ástand í ríkisfjármálum. Engu að
síður breyttu 26 ríki af 36 áfengissköttum ekki neitt.
Af þeim tíu Evrópuríkjum sem breyttu sköttum
lækkaði eitt áfengisskattinn, það var Króatía.
Af hinum níu var Ísland það eina sem hækkaði
áfengisskatta umfram verðbólguna, eins og hún er
mæld með samræmdri vísitölu neyzluverðs (sem
er notuð til að bera saman verð milli Evrópuríkja).
Hér á landi hækkaði skatturinn um 7,7% í 7,2%
verðbólgu. Það Evrópuríki sem hækkaði næst mest
miðað við verðbólgu, Rúmenía, hækkaði um 43%
af verðbólgunni á sama tíma og Ísland hækkaði um
107%. Stjórnvöld í öðrum ríkjum reyndu með öðrum
orðum að halda aftur af hækkunum, í þágu neyt-
enda.
Með þessu áframhaldi getur fjármálaráðherrann
okkar hins vegar farið að tileinka sér einkunnarorð
Bósa ljósárs þegar kemur að áfengissköttum: Út fyrir
endimörk alheimsins! n
Endimörk alheimsins
Rúmenía
hækkaði
um 43%
af verð-
bólgunni á
sama tíma
og Ísland
hækkaði
um 107%.
VEIÐIN
HEFST 3. MARS
Veiðimaðurinn Gunnar Bender býður
landsmönnum í veiðiferð á Hringbraut.
benediktboas@frettabladid.is
Popp eða korn
Gísli Snær Erlingsson var ráðinn
sem forstöðumaður Kvikmynda-
miðstöðvar Íslands. Hann birtist
landsmönnum fyrst í þáttunum
Poppkorn sem RÚV framleiddi
árið 1986. Þar fór hann ham-
förum við kynningu á tónlistar-
myndböndum og fór inn á milli
með nýstárleg gamanmál milli
laga ásamt Ævari Erni Jóseps-
syni. Annar sem var orðaður
við stöðuna, Pálmi Guðmunds-
son sem stýrði Símanum upp í
hæstu hæðir, spratt einnig upp
úr svipuðum jarðvegi og birtist
landslýð fyrst í þáttunum Popp
og Kók þar sem hann fór ham-
förum í að kynna lög og vinsæla
tónlistarmenn. Þannig að ráð-
herra hefur mögulega velt fyrir
sér hvor þeirra kæmi með betra
salt á íslenska bíópoppið.
Vinamenning
Vinamenning Kvikmyndamið-
stöðvar Íslands er orðin lands-
þekkt eftir að Benedikt Erlings-
son hlóð í pistill á Facebook um
að forveri Gísla hafi verið ansi
hliðholl vinum sínum. Taldi
Benedikt til nýliða og skreytti
sig svo með stolnum fjöðrum
hinnar frábæru Hross í oss í
kveðjuviðtali sínu. Þá fékk Bene-
dikt einfaldlega nóg og einhverj-
ir vona að Gísli sé ekki alveg jafn
hlutdrægur í styrkveitingum og
glöggt sé gests auga eftir lang-
dvöl erlendis. Friðrik Þór mun
þó alltaf eiga sinn styrk vísan.
Hann nefnilega framleiddi
Poppkorn forðum daga. n
Samkvæmt orðabókarskilgreiningunni
merkir orðræða tal, samræðu og jafn-
vel umræðu. Verst þegar merking orða
og hugtaka leystist upp í valkvæða
merkingarleysu þar sem skoðun er orðin
staðreynd. Og öfugt er öll orðræða einskis verð.
Orðið orðræða er í raun gaslýsing enda fáheyrt
að vísað sé til samtals, samræðu eða skoðana-
skipta. Orðræðan heyrir sögunni til. Rétt eins
og skoðanaskipti eftir að þau urðu staðreynda-
skipti en slík „orðræða“ verður ekki einu sinni
svo mikið sem vísir að vitrænni niðurstöðu.
Sama hvað tautar, raular, öskrar og gargar.
Áður en orðræða komst í tísku og var helst
notuð í akademíunni sá Úlfhildur Dagsdóttir
bókmenntafræðingur orðræðu fyrir sér sem
„hóp af orðum sitja í hring og ræða saman af
kappi yfir flösku af rauðvíni,“ eins og hún orðaði
það í skemmtilegri orðræðugreiningu í kjallara-
grein í DV 1997.
Þarna hlýtur orðræðan að hafa verið býsna
áhugaverð. Skemmtileg jafnvel. „Þessi hugsýn er
ekki svo fjarstæð,“ hélt hún áfram. „Því að í hug-
takinu orðræða felst einmitt ákveðið sjálfstæði
tungumálsins. Orðræða er orð yfir eins konar
sérfræðingamál, en núna eru það ekki bara sér-
fræðingarnir sem tala málið heldur talar málið
sérfræðingana.“
Úlfhildur tengdi þessa pælingu við gagnrýni
sem hluta „af ákveðnu ferli – eða ákveðinni orð-
ræðu – þar sem gagnrýnöndin ræðir viðfangs-
efnið útfrá fleiri en einu sjónarhorni og ,gagn-
rýnin‘ eða álitsdómurinn sem felldur er felst
ekki síður í orðum og orðalagi en yfirlýsingum
og staðhæfingum.“
Skemmtileg orðræða sem á sér varla hlið-
stæðu í umræðunni nú þar sem öll eru orðin
sérfræðingar í öllu á eigin forsendum og skiln-
ingi og geta þannig ekki talað málið frekar en
málið getur talað sérfræðingana þar sem hvorki
mælandinn né orðin vita fyrir hvað þau standa.
Orðöskur er hugtak sem nær betur yfir meinta
orðræðuna, sturlaðan og stjórnlausan heimsku-
og illgirnivaðalinn sem hefur fundið sér víðan
farveg um skólplagnir athugasemdakerfanna
og engu skilar nema meiri skít og áleitnum
spurningum um hversu mikið sé að og yfirleitt
að gerjast í höfðinu á fólki, svo dæmi sé tekið,
sem bara verður að „skoða“ Semu Erlu Serdar,
eðli hennar og hvaðan hún kemur. „Og hvað þú
ert að gera á Íslandi.“
Sema Erla fæddist á Akureyri og var skírð
og fermd í Bústaðakirkju. Hvað er við það að
athuga?
Er ekki ráð að reyna að leiða orðin saman
í huggulegt rauðvínsspjall og lyfta um leið
sjálfum sér, umræðunni og meintri orðræðu á
aðeins hærra plan*?
* svið; stig; flötur, grunnur; torg. n
Orðöskur
Þórarinn
Þórarinsson
thorarinn
@frettabladid.is
12 SKOÐUN FRÉTTABLAÐIÐ 22. FEBRÚAR 2023
MIÐVIKUDAGUR