Veiðimaðurinn - 01.12.1956, Qupperneq 39
Asgeir (j. CJunnlíiugsson.
ÁSGEIR GUNNLAUGSSON kaupm.
lézt að heimili sínu í Reykjavík á þessu
ári, 76 ára að aldri. Hann var einn af
elztu og kunnustu stangveiðimönnum í
bænum, hafði stundað laxveiði frá því
liann var innan við fermingu. í viðtali,
sem birt var hér í ritinu, þegar hann
var sjötugur, sagðist hann hafa veitt fyrsta
laxinn á flugu 13 ára gamall. Það var
í Elliðánum 1892. Faðir Ásgeirs var um
nær 40 ára skeið fylgdarmaður brezkra
ferða- og veiðimanna, og sjálfur hafði
liann það einnig að atvinnu í fjögur
sumur. Hann „komst því snemma í kynni
við dásemdir veiðanna", eins og hann
orðaði það sjálfur. Hann hafði veitt
meira og minna í flestum ám á Suður-
og Suðvesturlandi, en enga þeirra lagði
hann til jafns við Elliðaárnar. Mun hann
hafa verið sammála Englendingunum,
sem eitt sinn veiddu þar, og kváðu upp
þann dóm, að þær væru bezta veiðiáin
félagsmanna Stangveiðifélags Reykjavík-
ur. Síðustu æviárin var honum alveg nóg
að fá að vera með í veiðiferðum, þótt
hann veiddi sjálfur lítið sem ekkert. í
fyrra sumar fór ég litla stund með hon-
um inn að Ám, og fékk hann þá lax.
Það var síðasta veiðiferðin.
Nokkrum vikum áður en hann lagðist
banaleguna, kom hann eitt sinn sem oft-
ar á skrifstofuna til mín. Var liann þá
auðsjáanlega lasinn, enda hafði hann orð
á því, að nú færi að síga á seinni hlut-
á Norðurlöndum og jafnvel í öllum heim-
inum. Frá Elliðaánum átti Ásgeir minn-
ingar um marga ógleymanlega daga, enda
ann fyrir sér. Ég reyndi að eyða þessu
og fór að tala um veiðiferðir okkar í
gamla daga, og létti þá smám saman
yfir gamla manninum. Sló hann þá öllu
í spaug og sagði, að sér fyndist harla ó-
nærgætið af yfirvöldum himins og jarðar
að láta okkur ekkert um það vita, hvort
nokkur veiðiskapur væri hinum megin.
Ekki fannst okkur þó fráleitt, að svo
kynni að vera, og að við ættum eftir að
hittast þar með stengurnar okkar.
Sœmundur Stejánsson.
Veiðimaðurinn
37