Fréttablaðið - 09.03.2023, Blaðsíða 32
frettabladid.is
550 5000
RitstjóRn
ritstjorn@frettabladid.is
AuglýsingAdeild
auglysingar@frettabladid.is
PRentun & dReifing
Torg ehf.
2022 - 2025
Ég er mikið að vinna með „allt er
betra en ekki neitt“. Mér finnst
þetta frábært hjá mér. Ég get svo
oft platað mig til að byrja á hinu
og þessu með slíku hugarfari. Ekki
svo fullkomið að það takist alltaf,
en mjög oft. Til dæmis er kemur
að hreyfingu. Á mínum aldri er
mikilvægt að hreyfa sig, og auð-
vitað alltaf, en ekki minna er maður
fer að eldast. Eins og einhver sagði
um líkamann: If you don’t use it,
you loose it. Þegar ég nenni ekki að
fara og lyfta hugsa ég: „Ég ætla bara
að vera stutt og gera smá.“ Mjög oft
er ég stutt og geri bara smá, sem er
samt betra en ekki neitt.
Oft nenni ég ekki að þrífa, hugsa
með mér að ég ætli bara að ryksuga
hjónaherbergið. Ég geri það en tek
svo kannski ganginn líka.
Ég er að deila þessu til þeirra sem
eru fastir í allt eða ekkert hugsun.
Ég var mikið þar einu sinni og dett
þangað endrum og sinnum. Held
ég sé með skikkju og reyni að gera
mikið og margt og helst allt í einu.
En það er bæði erfitt og slítandi.
Gott að flæða svolítið og gera smá
og vera ekki fastur í einhverjum
fasista-listum (sem maður útbýr
sjálfur) um hvað þarf að gera og
hvenær og hversu mikið. Það er líka
svo oft sem það allt mistekst hjá
manni. Þá verður maður svo leiður.
Ég man að amma mannsins
míns, sem varð 101 árs, sagði einu
sinni við mig: „Þegar það er mikið
að gera og maður veit ekki hverju
er best að byrja á, er best að leggja
sig í smástund.“ Frábært ráð. Það á
líka við ef maður er mjög þreyttur.
Gott að stinga sjálfum sér í hleðslu í
15 mínútur og slaka bara á. Leggjast
niður og hlusta á hugleiðslu, pod-
kast eða eitthvað annað. Gefa sér
smá slaka. Allt verður auðveldara
og skýrara á eftir. n
Allt eða ekkert
bakþankar |
Ebbu Guðnýjar
Guðmundsdóttur
Sparaðu tíma og
gerðu einfaldari
innkaup á netto.is
Fyrir fólk í leit af
nýjum tækifærum
Kauptu Mottumarssokkana á mottumars.is eða á næsta sölustað.
Allur ágóði af sölu sokkanna rennur til Krabbameinsfélagsins!