Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 6
RITST JORASP J ALL
Júlímánaðar 1993 verður minnst í ann-
álum veiðimanna um allan heim um ó-
komna framtíð því að þá lá fyrir ramma-
samkomulag alþjóðlegu laxakvótanefnd-
arinnar og laxaútgerðarmanna á Græn-
landi um kaup á úthafskvóta þeirra. Þar
með hafði nefndin undir forystu Orra Vig-
fússonar náð þeim ótrúlega árangri að
hafa tekist á aðeins þremur árum að
stöðva nær allar úthafsveiðar á laxi á N-
Atlantshafi. Varla er hægt að tala um
nefndina, sem orsakaaflið í þessu ein-
stæða náttúruverndarafreki, því þótt hún
sé að sjálfsögðu til og starfi, vita allir, sem
fylgst hafa með, að þetta er í nær einu og
öllu verk Orra Vigfússonar. Nafn hans er
löngu landsþekkt og í dag eru ekki margir
Islendingar þekktari úti í hinum stóra
heimi, en Orri Vigfússon og varla til það
blað, er fjallar um umhverfismál, að ekki
sé talað um sportveiði, sem ekki hefur
fjallað um störf hans og birt um hann
greinar og viðtöl og um leið vakið al-
þjóðaathygli á Islendingum sem ábyrgri
þjóð í umhverfismálum og þar með vegið
upp á móti þeirri neikvœðu umræðu, sem
Grœnfriðungar og fleiri samtök hafa hald-
ið uppi gegn okkur í hvalamálinu.
Tímasetning samkomulagsins er einnig
táknræn, því að þótt undirritaður sé í júní-
lok fullkomlega sannfærður um að er upp
verður staðið í vertíðarlok verði stórveiði-
sumar að baki, þá hafa menn orðið fyrir
vonbrigðum með upphaf vertíðarinnar.
Kannski einkum og sér í lagi vegna þess
að sérfræðingar hafa verið óvenju djarfir
í að spá góðu veiðisumri, þar sem öll skil-
yrði hafi verið eins hagstæð og best yrði á
kosið. En þessi trega veiði minnir óneitan-
lega á lélegu veiðiárin, sem komu hvert af
öðru upp úr 1980 og leiddu til þess að
Orri hóf baráttu sína til að stöðva út-
hafsveiðarnar. Efvið reiknum með þriggja
kg meðalþyngd og að samanlagðar veiðar
Fœreyinga, Grænlendinga og sjóræn-
ingjaveiðar frá Borgundarhólmi hafi
numið um 2000 lestum erum við að tala
um friðun allt að 700 þúsund laxa, sem í
framtíðinni gœtu árlega gengið i uppruna-
ár sínar í löndunum við Atlantshafið.
Hvenær það í raun og veru skilar sér í
stóraukinni stangaveiði veit enginn, en
mikið lifandi skelfingar ósköp hlítur að
verða gaman þá. Veiðimaðurinn óskar
Orra Vigfússyni, laxakvótanefndinni og
veiðimönnum hvar sem þeir eru innilega
til hamingju og hvetur þá til að standa um
ókomna framtíð vörð um vöxt og viðgang
þessa konungs laxfiskanna.
IHJ.
Veiðimaðurinn
Málgagn stangaveiðimanna 49. árgangur
nr. 141. Ritnefnd Ingvi Hrafn Jónsson /ábm.
s. 22879, Guðlaugur Bergmann s. 611705,
Jón Skelfir Ársælsson s. 44321 og Kristinn
Valdimarsson s. 13071. Útgefandi
Stangaveiðifélag Reykjavíkur Háaleitisbraut
68,105 Reykjavík.
Kemur út í mars, júní, nóvember.
Eftirprentun aðeins með leyfi útgefenda.
Setning uppsetning og filmugerð,
Prentþjónustan H/F.
Prentun Frjáls Fjölmiðlun H/F.
Verð kr 560.
4
VEIÐIMAÐURINN