Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Page 17

Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Page 17
Fallegt stökk. Ljósm. J.S.A. í þann mund, sem menn voru að fara að taka á sig náðir líklega upp úr eitt urðum við vitni að stórbrotnum náttúrufyrir- bærum. Hann var að breyta um átt. Sunnanskýin með rigningu komu upp Norðurárdalinn, þar sem norðanþræsingur tók á móti þeim og blés sunnanrign- ingunni á okkur úr norðri. I sama mund tóku menn eftir því að áin, sem um kvöld- ið hafði verið blátær var að breytast í litað stórfljót svo að braut á Tvíburunum. Menn skildu í fyrstu ekkert í því hvað væri á seyði, því að úrkoman hafði engin verið. En svo rann upp fyrir okkur ljós snjó- bráðin eftir glampandi sólskin dagsins var að fossa niður dalinn og vorleysingarnar, sem höfðu engar verið í kuldum síðustu tveggja vikna voru byrjaðar. Þetta fengum við staðfest er við vöknuðum um morg- uninn, því að áin hafði hækkað um hálfan til einn metra og orðin ansi súkkulaðilituð. Við flýttum okkur niður í Laugakvöm, þar sem við töldum besta veiðivon á mið- svæðinu í þessum skilyrðum. Þar komst ég örskamma stund í tengingu við lax á túbu nægilega til að fá hjartað til að slá örar, en síðan ekki meir. Hann sló síðan sporðinum einu sinni í maðk, er honum var boðinn hann í desert. Næstu dagar vom svipaðir nema hvað áin hélt áfram að vaxa og litast þannig að veiðivonin var heldur lítil. Þó endaði hollið á að slíta upp eina tíu laxa og menn vom allir alsælir og ákveðnir í mæta til leiks á sama tíma að ári, enda næsta víst að þá verði Norðurá pakkfúll af stórlöxum. IHJ. VEIÐIMAÐURINN 15

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.