Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 55

Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 55
ar Bender og Guðmundur Guðjónsson rit- stýra, hefur komið út á hverju ári síðan eða '89,'90 og'91. „Hann er á !“ (1988) eftir Þröst Elliða- son. „Lífsgleði á tréfæti með byssu og stöng“ (1989) eftir Stefán Jónsson, alþm. „Vatnaveiðibókin" (1989) eftir Guð- mund Guðjónsson. „Þessu trúir enginn!" (1989) Viðtals- bók, gefin út af Stangaveiðifélagi Reykja- víkur í tilefni af 50 ára afimæli félagsins. „Laxá á Ásum“ (1989), sem Páll S. Pálsson og fleiri ritstýrðu. „Hvítá“ (1989) myndabók Hjálmars R. Bárðarsonar, fjallar um vatnasvæði Ölfús- ár-Hvítár. „Vatnsdalsá“ (1990), en Gísli Pálsson hafði umsjón með útgáfúnni. „Með fiskum og flugum“ (1990), bók eftir Kristján Gíslason. „Leyndardómur laxveiðanna“ (1990) eftir Ólaf E. Jóhannsson. Auk þess er stundum í minninga- og viðtalsbókum vikið að þessu efni, eins og í „Glampar í fjarska á gullin þil“ (1985) eftir Þorstein Guðmundsson, Skálpastöð- um og „Leiftur frá landi og sögu“ (1985), viðtalsbók Jóns R. Hjálmarssonar. TÍMARIT Nokkur tímarit hér á landi hafa sér- stöðu, vegna þess að þau fjalla einvörð- ungu um veiðiskap og veiðivötn. Fyrst ber að nefna tímaritið „Veiðimaðurinn“, (stofnsett 1940), með alls 141 hefti til þessa. Ritið var lengi eini vísi vettvangur skrifa um sportveiði og veiðivötn hér á landi. Efnisyfirlit Veiðimannsins (1991), tímabilið 1940 - 1989, sýnir vel öflugt rit af fróðleik og skemmtun fyrir áhugamenn um veiðimál, raunar merkt heimildarrit á þessu sviði. Auk þess hafa sum önnur stangaveiðifélög gefíð út félagsblað, eins Forsíða af 100 tölublaði Veiðimannsins í nóvember 1978, undir ritstjórn Víglundar heitins Möller. og Stangaveiðifélag Keflavíkur og Ar- menn. Auk þessa, koma út „Sportveiðiblaðið" (stofnsett 1981) og „Á veiðum“ (stofnsett 1984), en bæði ritin hafa verið með ágætt, fjölbreytt efni um veiðimál og skotveiði. Ennfremur má í þessu sambandi nefna önnur rit, sem af og til hafa birt greinar um þessi efni: Tímritið „Frcyr“ og „Hand- bók bænda“, sem Búnaðarsamtökin gefa út og „Ægir“, blað Fiskifélags íslands. „Vötn og veiði“ 12 hefti, 564 bls. með upplýsingar um 420 veiðivötn víðsvegar um land, sem út komu á árunum 1980 til 1991 í ritstjóm Hinriks A. Þórðarsonar. Utgáfa þessi er fmmsmíð, brautryðjenda- verk af þessu tagi hér á landi. Einnig má minna á handbókina „Islenskar laxveiði- ár“ (1988). Landssamband veiðifélaga gaf hvorttveggja út. Að síðustu má nefna landkynningar- VEIÐIMAÐURINN 53

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.