Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 63

Veiðimaðurinn - 01.06.1993, Side 63
Veiðimaðurinn hefur margoft yljað mér um hjartarætumar á dimmum skammdeg- iskvöldum og enn þann dag í dag gríp ég til gamalla blaða, því þama er að fínna heimildir og fróðleik frá upphafi stanga- veiði á Islandi. Það er rétt hjá Guðmundi að útlitshönn- un blaða og tímarita hefur fleygt mjög fram hin síðari ár, en heldur finnst mér hin klassískari og vandaðri blöð fara varlega í útlitsbreytingar og þá einkum ásjónu sína, - forsíðuna. Vil ég nefna sem dæmi: Time, Newsweek, Stem, Der Spiegel og að lokum blaðið sem Guðmundur starfar hjá, sjálft Morgunblaðið. Það hefur verið með sama letrið á forsíðunni í 80 ár! Völvur og tölvur Þá gagnrýndi ég á aðalfundinum fyrirferð- ina í völvu- og tölvuspá blaðsins, sem Guðmundur undrast og segir sig og fleiri lesa og hafa gaman af. Ég skrifaði það einhvem tíma í Veiðimanninn að ég færi til veiða til að flýja allt fjölmiðlafárið, hraðann og streituna sem fylgir borgarlíf- inu. Mig minnir að ég hafi hnýtt aftan við þessar hugleiðingar að ég mundi hætta stangaveiði þegar tölvumar tækju þar einnig við, eins og er að verða í öllu okkar daglega amstri. Ég held að ég muni standa við þessa á- kvörðun mína Guðmundur, ef tölvur eða svo ég tali nú ekki um völvur, eiga að segja mér íyrir um veiði. Nei, fyrir alla muni firrið ekki okkur sérvitringana þeirri ánægju að Qasa um framtíðar veiðihorfur og þá í mesta lagi með upplýsingum frá sérfræðingum Veiðimálastofnunar eins og verið hefur. í þessum 6 blöðum sem nýja ritnefndin hefur staðið að eru teknar 19 bls. undir „Völvu og tölvuspár“! Mundi ekki ein síða í blaði nægja til friðþægingar þeim sem hafa gaman af þessum leik? Forystugreinarnar Að lokum segir Guðmundur mig hafa á ómaklegan hátt, verið að bera saman for- ystugreinar Víglundar og Magnúsar forð- um og nýja ritstjórans Ingva Hrafns og ég hafí verið með bamalegan samanburð á því hver skrifi betur. Bregst þér ekki þama bogalistin með stílvopninu kæri Guð- mundur og er þama ekki skotið yfír mark- ið? Ekki minnist ég þess að hafa borið sam- an ritsnilli fyrrverandi og núverandi rit- stjóra. Aftur á móti bar ég saman lengd forystugreina þeirra og endurtek það hér að ég vildi gjaman sjá tveggja og hálfrar síðu forystugreinar firá Ingva Hrafni, eins og frá fyrrverandi ritstjómm, en ekki að- eins hálfa síðu eins og verið hefur í þeim 6 blöðum sem hann hefur ritstýrt. Þama var ekki verið að gagnrýna núverandi ritstjóra fyrir ritstíl eða efnistök nema síður sé, þegar kallað er eftir meiri skrifum frá hon- um. Forsíðurnar Þó þér, kæri Guðmundur, finnist forsíð- ur síðustu blaða fallegri og nýtískulegri og birtir litmyndir af tveimur forsíðum máli þínu til stuðnings, þá er ég þér alls ekki sammála og æski einnig að fá birtar tvær forsíður t.d. nr. 131 og hina litskrúðugu nr. 135, sem ég nefndi hér fym Það má sjálf- sagt öllu nafn gefa og kalla það nýtísku- legt útlit að setja litaborða og letur (efnis- yfírlit) ofan í fallegar forsíðumyndir. En mér sem ljósmyndara og útlitshönnuði fínnst þetta bæði ljótt og óþarft. Ég sé engin skynsamleg rök fýrir því að vera með efnisyfírlit á forsíðu og síðan aftur á tveimur síðum inni í blaðinu! Er ekki ein síða yfrið nóg fyrir ekki stærra blað? Fræðsluefni Viðvíkjandi efnisútvegun í svona blað, þá veit ég að það er erfítt verk, þrátt fyrir VEIÐIMAÐURINN 61

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.