Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.11.1981, Qupperneq 4
4
Útivist og fritímaiðja.
I. INNGANGUR
Það svið skipulags er varðar útivist og fritímaiðju hefur of oft verið
sett hjá í skipulagsvinnu, þar til öðrum kröfum t.d. um landrými hefur
verið fullnægt. Þessi staðreynd kemur víða fram í aðalskipulagsgreinar-
gerðum sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu sem gerðar hafa verið
síðustu árin. Af þeim má helst ráða að útivist og fritimaiðja séu
litið annað en leikur og að leikir séu barnanna en ekki þeirra full-
orðnu, sem vegna vinnu hefðu ekki tima til að slæpast. Þetta viðhorf
er smám saman að breytast og hefur reyndar gert svo ótrúlega hratt
siðustu árin. Aukin fritimi, menntun, hreyfanleiki, umfjöllun i fjöl-
miðlum og ekki sist aukin fjárráð fólks hafa m.a. orsakað þessa við-
horfsbreytingu. Þörf fyrir fjölbreytta möguleika á þessu sviði er
þvi orðið grundvallaratriði sem nauðsynlegt er að taka fyllsta tillit
við svæðaskipulag og aðalskipulag.
II. SÉRSTAÐA HÖFUÐBORGARSVÆÐISINS
Til höfuðborgarsvæðisins teljast 8 sveitarfélög, Kjalarnes, Mosfells-
sveit, Reykjavik, Seltjarnarnes, Kópavogur, Garðabær, Bessastaðahreppur
og Hafnarfjörður. Á öllu svæðinu bjuggu um siðustu áramót rúmlega 121
þúsund manns eða um 53% þjóðarinnar. Lang stærsti hluti ibúanna býr
i þéttbýli, - borgarumhverfi-, og með öllu þvi vafstri og kapphlaupi
við tíman sem þannig umhverfi oft fylgir. En höfuðborgarsvæðið býður
einnig upp á, og það frá náttúrunnar hendi, að ibúar þess stundi úti-
veru og virðist þvi engin takmörk vera sett, svo margir eru möguleikarnir.
Inn i þéttbýlið teygjast fingur, svo að segja, ósnortins lands; milli
ávala hæða eru dalverpi er tengja sjávarsiðuna svæðum inn til landsins,
staðir með fjölbreytta náttúru, lifriki og fegurð. Allt eru þetta
aðstæður sem fáar ef nokkrar aðrar höfuðborgir geta státað sig af.
Öllum ætti þvi að vera kappsmál að viðhalda þessari sérstöðu svo lengi
sem frekast er unnt.
III. UMRÆÐUTILLAGA
Möguleikar íbúanna á að stunda fjölbreytt áhugamál sin verða til þess
að kröfurnar verða fleiri og margþættari. Misstórir hagsmunahópar
koma fram á sjónarsviðið og setja fram óskir sinar við ráðamenn. Oft
vilja hagsmunir hinna ýmsu sjónarmiða stangast á bæði sin á milli svo
og t.d. við umhverfisverndarsjónarmið.
Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu samþykkti fyrri part
sumars sem leið, að fela Skipulagsstofunni að gera athugun á aðstöðu
til útivistar á svæðinu með það m.a. fyrir augum að marka samræmda
heildarstefnu fyrir svæðið i útivistarmálum.
Ákveðið var að koma á samstarfsnefnd um þessa athugun sem bæði væri
leiðbeinandi um framkvæmd athugunarinnar og sem tæki þátt i endanlegri
stefnumótun. Eftirtöldum aðilum hefur verið boðið að eiga fulltrúa
i samstarfsnefndinni: